Víkurfréttir - 20.07.1989, Page 10
10 Fimmtudagur 20,'júlí 1989
\liKur<
jutUi
Nokkrir starfsmcnn BG sungu brag um Birgi við mikinn fögnuð.
17ÁRA
ARI DAN JÓN-AXL
Þessir ungu sveinar eiga 17
ára afmæli þessa helgi. Þeir
taka á móti gestum og gjöf-
um á Hafnargötunni á laug-
ardagskvöld, auk þess sem
þeir munu bjóða upp á stutt-
an rúnt gegn afhendingu
pakka (stelpur fá rúnt gegn
kossi).
D.D.D.
Birgir Guðnason og eiginkona hans. Harpa Þorvaldsdóttir, ásamt
fleiri kunnum andlitum. Ljósmyndir: pket.
Biggi Guðna
fimmtugur
Birgir Guðnason, málari
með meiru og rúmlega
það, varð fimmtugur sl.
föstudag, 14. júlí. Var
haldin mikil veisla, höfð-
ingjanum til heiðurs, í sal
BG bílasölunnar í Bíla-
kringlunni hans Bigga.
Hákon Kristinsson, stórkaupmaður, afhendir Birgi gjöf frá Rotary-
klúbbi Keflavíkur, cn þar eru þeir báðir félagar.
Margir Suðurnesjamenn komu til að samfagna Birgi á þessum tímamótum.
Mættu Ijölmargir vinir
og ættingjar Birgis til að
samfagna honum á þess-
um tímamótum. Ljós-
myndari Víkurfrétta var
að sjálfsögðu „blaðið á
staðnum“ og tók með-
fylgjandi myndir.
Það er allt vitlaust að
gera og því er vissara
að panta hópferðabíla
í tíma....
HRINGIÐ STRAX í 15551 eða 15444
SBK ferð er góð ferð
Sérleyfisbifreiðir
Keflavíkur
Langþreyttir
á sóðaskap
sorphreins-
unarmanna
Sandgerðingur hafði sam-
band við blaðið og sagði
menn þar á bæ vera orðna
langþreytta á þeim sóðaskap
sem fylgdi sorphreinsuninni.
Virðist svo vera að þeir sem
sjá um hreinsun þessa geri
ekki nóg í að hreinsa upp eft-
ir sig og eins virðist þessi að-
ferð, að hafa sorppokana
tímunum saman úti í götu,
vera til þess eins fallin að
vera matstaður fyrir varg-
fuglinn.
Sagði hann þetta vera öf-
ugmæli með hliðsjón af því
átaki sem nú væri í gangi í
hreinsunarmálum og væri af
hinu góða. Væri því vart
hægt að líða þetta öllu leng-
ur. Svo mörg voru þau orð.
Víkurfréttir
- það er blaðið