Víkurfréttir - 20.07.1989, Qupperneq 14
\>IKUK
14 Fimmtudagur 20. júlí 1989
ÍBK14ra liða
Mjólkurbikarúrslit
Keflvíkingar eru komnir í
4ra liða úrslit Mjólkurbikar-
keppninnar í knattspyrnu eftir
að þeir sigruðu Þrótt í Reykja-
vík, 3:2, á Sæviðarsundsvellin-
um á mánudagskvöldið.
„Þetta var týpiskur bikar-
leikur, þegar 1. deildarlið mæt-
ir liði úr neðri deild, en við er-
um ánægðir með sigurinn og
það að vera komnir í 4ra liða
úrslitin. Keflvíkingar hafa allt-
af verið mikið bikarlið,“ sagði
Rúnar Lúðvíksson, formaður
knattspyrnuráðs IBK.
Kjartan Einarsson og Óli
Þór Magnússon komu IBK í
2:0 en Þróttarar voru ekki á
þeim buxunum að gefa sig og
jöfnuðu 2:2 fyrir leikhlé. I
seinni hálfleik höfðu Keflvík-
ingar nokkra yfirburði en
tókst þó aðeins að bæta einu
marki við, sem Jón Sveinsson
gerði. Fyrirliði ÍBK, Freyr
Sverrisson, var rekinn af leik-
velli og á yfir höfði sér leik-
bann.
Kjartan Einarsson hefur verið
duglegur að skora fyrir IBK að
undanförnu. Ljósm.: mad.
UutUv
ÍBK
tapaði
fyrir
norðan
Keflvíkingar töpuðu íýrir
KA á Akureyri sl. fimmtu-
dag í Hörpudeildinni í knatt-
spyrnu. KA skoraði 2 mörk
en ÍBK eitt, sem Kjartan
Einarsson gerði um rniðjan
seinni hálfieik.
KA skoraði bæði sín mörk
í fyrri hálfleik en að sögn tíð-
indamanna okkar fyrir norð-
an léku Keflvíkingaraf mikl-
um krafti í seinni hálfleik og
voru ekki langt frá þvi að
jafna.
Sigurður
fór holu
í höggi
Sigurður Friðjónsson,
Golfklúbbi Suðurnesja, varð
fimmti kylfingurinn á Suður-
nesjum til að fara holu í
höggi á þessu ári. Sigurður
náði draumahögginu á fræg-
ustu holu á Hólmsvelli sl.
fimmtudag, Bergvíkinni.
Sigurður var að leika með
Þorleifi bróður sínum og
Friðjóni föður sínum. Hann
sló kúluna með 5 járni, sem
lenti nokkra metra frá holu
og rúllaði síðan rólega í hol-
una.
Sú yngsta
var best
Rakel Þorsteinsdóttir,
unglingalandsliðskona úr
GS, sigraði á Annettumót-
inu í golfi, sem fram fór í
Leirunni sl. föstudag. Rakel
lék á 94 höggum. Formanns-
frúin, María Jónsdóttir, varð
önnur á 101 og þriðja
Magdalena S. Þórisdóttir á
102 höggum. Magdalena
varð hins vegar hlutskörpust
með forgjöf, lék á 71 höggi.
María varð þar einnig í öðru
sæti á 73 en þriðja varð Haf-
dís Gunnlaugsdóttir á 73
höggum.
Sigurður
og Karen
keppa á
NM ‘89
Sigurður Sigurðsson, ís-
landsmeistari í golfi, verður í
eldlínunni um helgina á
Norðurlandamótinu í golfi í
Svíþjóð. Sigurður var næst
stigahæstur í stigamótunum
og er nú að fara í sína aðra
landsliðsferð á árinu. Sama
má segja um Karenu Sævars-
dóttur, sem leikur með
kvennalandsliðinu.
Þorbjrön lek eins og hann gerði best fyrr a arum, er hann sigraði
í Leirumótinu: Ljósm.: pket.
ÞORBJÖRN
í STUÐI
Vann öruggan sigur í Leirumóti öldunga
Þorbjörn Kjærbo sigraði
örugglega á Leirumóti öld-
unga í golfi sl. laugardag, í
flokki 55 ára og eldri. Þor-
björn lék sannkallað meist-
aragolf, kom inn á aðeins
tveimur höggum yfir pari, 74
höggum, og sigraði örugg-
lega. I öðru sæti kom Sigurð-
ur Albertsson á 77 og þriðji
varð Ari Guðmundsson á 81
höggi. Landsliðseinvaldur-
inn, Jóhann Benediktsson,
varð fjórði á 82 höggum.
Með forgjöf sigraði Ari
Guðmundsson á 65 höggum,
Björn Árnason NK kom
næstur ásamt Þorbirni Kjær-
bo, á 68 höggum.
í yngri flokki, sem er fyrir
50-55 ára, sigraði Högni
Gunnlaugsson með forgjöf á
76 höggum, Hilmar Stein-
grímsson og Sigurður Frið-
riksson voru á sama högga-
fjölda en Högni var með
besta árangur síðustu 6 hola.
Án forgjafar var Hilmar
bestur, á 86, en Högni á 87.
Þar varð Ragnar Helgason
þriðji, á 96.
Víðismenn hrelltu
íslandsmeistarana
Víðismenn hrelltu íslands-
meistara Fram í knattspyrnu
þegar liðin áttust við í Garð-
inum í fyrrakvöld í Mjólkur-
bikarkeppninni. Framarar
sigruðu að vísu en sigurmark
Ragnars Margeirssonar var
umdeild og flestir sammála
um að hann hafi verið rang-
stæður þegar hann fékk bolt-
ann en skot hans frá vítateig
v var óverjandi fyrir Gísla.
Lokatölur urðu því 2:1 fyrir
Fram. Klemens Sæmunds-
son náði forystu fyrir heima-
menn eftir aðeins 13 mín.
leik eftir sendingu ftá Vil-
bergi Þorvaldssyni. Ómar
Torfason jafnaði svo fyrir
Fram í síðari hálfleik og
Ragnar skoraði svo sigur-
markið, eins og áður segir.
Fyrsta tap Víðis
Víðismenn voru stutt í
efsta sæti 2. deildar Islands-
mótsins í knattspyrnu. Þeir
töpuðu sínum fyrsta leik á
sumrinu gegn Breiðablik í
Kópavogi sl. föstudagskvöld
með einu marki gegn tveim-
ur.
Það bar helst til tíðinda að
Daníel Einarsson var rekinn
af leikvelli en hann afrekaði
einnig að skora fyrsta mark
leiksins, nema hvað í eigið
mark. Vilberg Þorvaldsson
skoraði mark Víðismanna
seint í síðari hálfleik úr víia-
spyrnu.
Grindvíkingar
á toppi 3. deildar
Toppliðin í A-riðli 3.
deildar Islandsmótsins í
knattspyrnu, Grindavík og
ÍK, gerðu 2:2 jafntefli, er lið-
in áttust við í Kópavogi sl.
föstudag. Páll Björnsson og
Þórarinn Ólafsson skoruðu
mörk Grindvíkinga. Þessi lið
skipa tvö efstu sætin í A-riðli
með 20 stig hvort.
UMFN vann 6:0
Njarðvíkingar gjörsigruðu
Augnablik í leik liðanna í 4.
deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu sl. fimmtudagskvöld,
6:0. Bróðir Gests í IBK-lið-
inu, Ólafur Gylfason, skor-
aði þrennu, Einar mark-
mannshrellir Einarsson 2 og
Björgvin Friðriksson eitt
mark.
Reynismenn stein-
lágu á ísafirði
Reynismenn úr Sandgerði
sóttu ekki gull í greipar BÍ, er
liðin mættust á Isafirði á
föstudag. Heimamenn
skoruðu þrjú mörk gegn
engu Reynismanna, sem
skipa nú neðsta sæti í A-riðli
3. deildarásamt Hveragerði.