Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.1989, Side 13

Víkurfréttir - 31.08.1989, Side 13
yflKUR ttitm Fimmtudagur 31. ágúst 1989 13 Bæjarfógeti og sýslumaður; Þriðja og síðasta uppboð er lokasala Nokkur hefur verið um það að fólk geri sér ekki grein fyrir því að þriðja og síðasta nauð- ungaruppboð, sem auglýst er svo, jafngildi stóra-dómi, því nánast án undantekninga er við- komandi eign þar með seld. Vegna þessa fékk blaðið Jón Eysteinsson, bæjarfógeta í Keflavík, Grindavík og Njarð- vík og sýslumann í Gullbringu- sýslu til að skýra út fyrir lesend- um hvernig nauðungarsala færi fram. Gangur málsins er sá, að þegar uppboðsbeiðni berst er uppboðsþolanum send til- kynning og honum gefinn ákveðinn frestur áður en upp- boðsbeiðnin er send í Lögbirt- ingablaðið. Sinni hann ekki til- kynningunni er þetta sent þangað. Venjulega er þessi frestur mánuður. Síðan birtist tilkvnningin Lyklarnir freistuðu bílþjófanna Lögreglan í Reykjavík stöðvaði á sunnudagsmorg- un unga ökumenn í Breið- holti sem tekið höfðu traustataki bifreið í Njarð- vík kvöldinu áður. Voru piltarnir allsgáðir er þeir voru stöðvaðir en of ungir til að hafa ökuréttindi. Munu lyklarnir hafa verið í bílnum er þeir gengu fram hjá honum, svo freistingin varð sterkari og þeir stálu bílnum. Grindavík: Ekið yfir fót ölvaðs manns Ekið var yfir hægri fót ölv- aðs manns á Víkurbraut í Grindavík aðfaranótt sl. sunnudags. Varþaðekkifyrr en kvöldið eftir sem maður- inn mætti á lögreglustöðina og tilkynnti um atvikið. Við rannsókn læknis kom í ljós að sprunga hafði komið í ökla hins ölvaða. Nokkur ölvun var í Grindavík að- faranótt sunnudagsins en á laugardagskvöldinu opnaði Festi aftur eftir nokkurt hlé. Einn ökumaður var tekinn rakur undir stýri. þrisvar sinnum í Lögbirtinga- blaðinu. Frá fyrstu birtingu og til þingfestingar þurfa að líða a.m.k. sex vikur, en oftast eru þær þó átta. Þar með er kom- inn þriggja mánaða frestur frá því að uppboðsbeiðnin barst og þangað til að hún er þing- fest. Við þingfestingu er tekin ákvörðun um það hvort við- komandi fái áframhaldandi frest á þingfestingu eða hvort eignin verður sett í sölu. Venjulega er þá einn og hálfur mánuður í fyrstu sölu og fari sú sala fram er venjulega jafn langur tími í aðra sölu. Fari önnur sala fram verður þriðja sala að fara fram innan fjög- urra vikna frá annarri sölu og það er svokölluð lokasala. Henni er ekki hægt að fresta. Ef fresta á þriðju sölu verða annað hvort lögmenn eða við- Jón Eysteinsson, bæjarfógeti og sýslumaður komandi stofnun að afturkalla uppboðið, þó þeir fái ekki greiðslu og byrjarþá uppboðið upp á nýtt. Það getur verið erf- iðleikum bundið, því þá hafa þeir glatað svokölluðum vaxtaforgangi, ef þeir aftur- kalla. „Þetta gerir fólk sér almennt ekki grein fyrir, að ef það lendir í því að eign þess fer á 3. sölu, þá er raunar útilokað fyrir það að sleppa út úr þessu nema með greiðslum, nema þá að stofnanirnar eða lögmenn afturkalli uppboðið án greiðslna. Meðan aðeins hefur verið auglýst fyrsta eða annað og síðara má endalaust semja. Það er því mikið atriði fyrir fólk að gera sér grein fyrir þessu. Aðalatriði er því fyrir fólk að koma í veg fyrir að eignin fari á þriðja uppboð og fólk geri sér grein fyrir því að það er endanleg sala. Eftirþað á það ekki að geta fengið neina fresti og þetta hefur komið flatt upp á fólk. Þessi regla breyttist haustið 1987. Þegar þriðja sala fer fram hefur fólkið fengið a.m.k. sex og hálfan mánuð í frest og á þeim tíma hafa oft komið fleiri kröfuaðilar inn í uppboðið. Þá má líka hafa það í huga að þeg- ar fyrsta tilkynning berst er kostnaður aðeins 260 krónur en um leið og tilkynningin ferí Lögbirtingablaðið fara að hlaðast á kröfuna alls kyns gjöld og kostnaður," sagði Jón að lokum. ATVINNA Iðnverkamenn Óska eftir iðnverkamönnum við fram- leiðslustörf. Upplýsingar á trésmíðaverk- stæðinu. TRÉSMIÐJA t áá _ % Iðavöllum 9A - 230 Keflavik Starfskraftur óskast Óskum að ráða starfskraft í afgreiðslu. Upplýsingar á staðnum, ekki í síma. HE>BÖK Hafnargötu 36, Keflavík. Kennarar Vegna forfalla vantar smíðakennara við Grunnskólann í Sandgerði til áramóta í vetur. Upplýsingar veita Guðjón Þ. Kristjánsson og Asgeir Beinteinsson í símum 37610 og 37439. Hársnyrting fyrir dömur og herra Hárgreióslustofan £loúcns Vatnsnestorgi Tímapantanir í síma 14848 SLENDER YOU er einnig fyrir þig Hringdu eða líttu inn og pantaðu frían kynningar- tíma. Ath.: Vigtum og mæl- um reglulega ef óskað er! oflencle> ou ÆFINGASTOFAN Hafnargötu 25 - Sími 15433 Skólavörurnar... '&ólcabúb fce-flavíUur DAGLEGA I LEIÐINNI -

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.