Víkurfréttir - 31.08.1989, Blaðsíða 19
MiKun
julUt
Fimmtudagur 31. ágúst 1989 19
Sundfélagið SUÐURNES stofnað
Sundfélagið Suðurnes var
formlega stofnað á fram-
haldsstofnfundi er haldinn
var í íþróttavallarhúsinu í
Keflavík á mánudagskvöld.
Formaður hins nýja félags
er Jón Bjarni Helgason úr
Njarðvík. Aðrir í stjórn eru
Valdís Tómasdóttir, Ragn-
hildur Sigurðardóttir, Ómar
Jóhannsson og Isleifur
Björnsson. Fyrsta formleg
æfing Sundfélagsins Suður-
nes verður í sundlaug Njarð-
víkur í dag kl. 18.
Starfsemin er strax komin
í fullan gang og í dag heldur
Geir Sverrisson til þátttöku
á móti í Finnlandi. Þá halda
einnig tveir félagsmanna á
æfingar í Svíþjóð bráðlega.
Með stofnun Sundfélagsins
Suðurnes, skammstafað
SFS, verður sunddeild
Njarðvíkur lögð niður.
Jón Bjarni, formaður fél-
agsins, sagði í samtali við
fjölmiðla að sameining
íþróttafólks á Suðurnesjum í
eitt félag væri einnig nauð-
synleg í öðrum íþróttagrein-
um, þar sem oft væri erfiður
fjárhagur og því hagkvæm-
ara að sameinast.
© Reynismenn eru ekki af
baki dottnir, þó þeir séu
dottiJr í 4. deild, því á föstu-
dagskvöldið sigruðu þeir
Gróttu í Sandgerði, 2:1.
Mörk Reynis gerðu þeirÆv-
ar Finnsson og Valdimar
Júlíusson.
• Keflvíkingar stóðu sig
vel á Skagamóti 6. flokks. A-
liðið lenti í 4. sæti en B-liðið í
2. sæti.
• Guðmundur Steinars-
son skoraði 10 mörk á
Fanta-mótinu á Skaganum,
sem var fyrir 6. flokk. Aðeins
einn annar leikmaður skor-
aði einu marki meira en
Guðmundur.
Úr leik Reynis og Stjörnunnar á
Lýsis-mótinu. Ljósm.: hbb.
Keflvíkingar í stórsókn gegn KA. Ljósm.: pket.
Úrslitakeppni Islandsmótsins í 4. flokki
sæti - Reynir í 7.
ÍBK í 3.
Suðurnesjaliðin IBK og
Reynir stóðu sig vel í úrslit-
um íslandsmótsins í knatt-
spyrnu í 4. flokki. Keflvík-
ingar lentu í þriðja sæti en
Reynismenn í því sjöunda.
Keflvíkingar sigruðu KA í
úrslitaleik um 3. sætið, 3:2.
KA náði forystu, 1:0, en ÍBK
skoraði næstu þrjú mörk,
fyrst Guðjón Jóhannsson úr
víti, því næst Sverrir Þór
Sverrisson glæsilegt skalla-
mark og loks bætti mark-
varðahrellirinn Adolf
Sveinsson þriðja markinu
við. KA minnkaði muninn
fyrir leikslok en það dugði
ekki til. Keflvíkingar sigruðu
KR 1:0 og Reyni 4:1 en töp-
uðu fyrir FH ífyrstu umferð-
inni 0:2, sem gerði vonir um
úrslitasæti að engu. Reynis-
menn töpuðu í fyrsta leik,
1:2, fyrir KR, síðan 1:4 gegn
ÍBK og loks 1:6 gegn FH. í
úrslitaleik um 7. sætið sigr-
uðu Reynismenn Týr frá
Vestmannaeyjum 4:2 í góð-
um leik.
KR-ingar urðu í 5. sæti,
unnu ÍA 3:1, en íslands-
meistarar í 4. flokki karla
1989 urðu Valsmenn, sem
unnu FH 3:0 í úrslitaleik.
Mörk Reynis gegn Tý
skoruðu Bergur Eggertsson
2, Bragi Guðjónsson og
Björgvin Guðjónsson.
Lýsismót 4. flokks í Grindavík:
Reynismenn unnu
Reynismenn sigruðu með
glæsibrag á Lýsismótinu 1 4.
flokki sem haldið var í
Grindavík um aðra helgi.
Sigraði lið þeirra örugglega 1
A-riðli og varð í 3. sæti í B-
riðli. Sandgerðingar eiga
orðið mjög sterka yngri
flokka og er Tommamótið 1
Eyjum t.d. til vitnis um það.
Það voru sex félög sem
sendu lið til þátttöku í Lýsis-
mótinu. Voru það Grindvík-
ingar, Reynismenn, Stjarn-
an, IK, Leiknir og Víkingur,
Reykjavík.
Þátttakendurnir í mótinu
voru alls 120 og fengu allir
lýsisflösku í viðurkenning-
arskyni frá Lýsi hf. Strák-
arnir gerðu ýmislegt annað
sér til skemmtunar en að
spila knattspyrnuleiki, því
Bjarni Sigurðsson, landsliðs-
markvörður, kom í heim-
sókn og var í marki í víta-
spyrnukeppni. Það er
skemmst frá því að segja að
hann varði 100 spyrnur af
þeim 120 sem teknar voru.
Áttu Suðurnesjastrákarnir
nokkur af þeim mörkum
sem gerð voru.
Verðlaunahafar úr öllum flokkum helgarmóts Keilubæjar og Keilu-
félags Suðurnesja. Ljósm.: hbb.
NÚ ER AÐ DUGA EÐA DREPAST!
1. deildarsæti er í húfi.
ÍBK-VÍKINGUR
laugardag kl. 14 á Keflavíkurvelli.
Suðurnesjamenn - Styðjum okkar menn!
Reykjanes-
mótið I kprfu
í Keflavík
Reykjanesmótið í körfu-
knattleik fer að þessu sinni
fram í íþróttahúsinu í Kefla-
vík dagana 9. til 20. septemb-
er. Keflvíkingar, Islands-
meistararnir í körfuknatt-
leik, sigruðu í mótinu í fyrsta
skipti í fyrra og hafa því titil
að verja, en UMFN vann
fyrstu 6 árin sem mótið var
haldið, en það, var gert í
fyrsta skipti 1982.
í mótinu taka þátt Suður-
nesjaliðin ÍBK, UMFN og
Reynir og Haukar úr Hafn-
arfírði en lið Tidastóls verð-
ur einnig nteð sem gestir.
Golf um helgina
Opið mót verður á Hólms-
velli í Leiru á laugardag og
verða leiknar 18 holur og
byrjað kl. 9.
Sandgerðingar verða_með
innanfélagsmót, Sparisjóðs-
mótið, á laugardag kl. 14 á
Vallarhúsvelli. Leiknar
verða 18 holur með og án
forgjafar.
• Eldri drengir ÍBK
misstu af íslandsmeistara-
titlinum 1 knattspyrnu er þeir
töpuðu fyrir Val í viðureign
liðanna í Kellavík á föstu-
dagskvöldið. ÍBK náði for-
ystu, 1:0, en það dugði
skammt þvi Valsmenn skor-
uðu næstu tvö mörk og sigr-
uðu, 2:1.
Lávarða-karfa
Nú eru að hefjasj sérstakir
æflngatímar hjá ÍBK fyrir
körfuknattleikslolk, sem
náð hefur þrjátíu ára aldri.
Einnig verður sent lið til
kepphi í Lávarðadeild karla
hjá KKÍ. Hér gefst gott tæki-
færi til að æfa körfuknattleik
í góðum félagsskap, þar sem
höfuð áhersian verður lögð á
léttleikann og ánægjuna.
Inntökuskilyrði eru erjgin,
allir eru velkomnir. Æft
verður tvisvar í viku og verð-
ur fyrsta æfingin fimmtudag-
inn 31. ágúst kl. 20.00 1
Iþróttahúsi Keflavíkur.
Helgarmót í Keilubæ:
AGOST
BESTUR
Ágúst Haraldsson varð
hlutskarpastur í 1. flokki á
helgarmóti Keilubæjar og
hins nýstofnaða Keilufélags
Suðurnesja. I öðru sæti í 1.
flokki varð Hjálmtýr Inga-
son. Sigurjón Hafsteinsson
sigraði í 2. flokki og Elín
Óskarsdóttir varð önnur.
Óskar Þ. Óskarsson varð
hlutskarpastur í 3. flokki en
Helga Sigurðardóttir varð
önnur. Þá varð Tryggvi Þór
Bragason efstur í 4. flokki en
Halldóra S. Jónsdóttir varð í
öðru sæti.
Átján manns tóku þátt í
þessu helgarmóti og komust
færri að en vildu. Næsta mót
verður haldið sunnudaginn
3. september kl. 16. Skrán-
ingu lýkur 15 mínútum fyrir
keppni og er öllum heimil
þátttaka.