Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.08.1989, Síða 20

Víkurfréttir - 31.08.1989, Síða 20
V/KUR Fimmtudagur 31. ágúst 1989 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717. Er það Reykjavíkurpólitik að fjársvelta sjúkrahúsið hér? „Komi eitthvað meira en smáræði fyrir eftir kl. fimm á Suðurnesjum, þá koma sjúkl- ingar beint hingað. Mitt álit er það, að það mætti hætta að hafa vaktir á þessu sjúkra- húsi eftir kl. fimm á daginn, vegna þess að álagið kemur þá nær allt hingað. Það væri al- veg eins gott að fá það allt hingað og nota þá peninga sem varið er vegna vakta á öðrum stöðum til þess að byggja upp betri aðstöðu þar sem vinnan er framkvæmd hvort sem er.“ Þetta er haft eftir Gunnari Þór Jónssyni, yfirlækni slysa- og bæklunardeildar Borgarspít- alans í Reykjavík í dagblaðinu Tímanum í síðustu viku. Ummæli þessi eru jafnframt borin undir þá Konráð Lúð- víksson, sjúkrahúslækni í Keflavík, og Pál Þorgeirsson, heilsugæslulækni í Keflavík. Eftir Konráði er þetta haft: „Þetta álit yfirlæknis slysa- deildar lýsir í sjálfu sér nokk- urri „Stór-Reykjavíkurpóli- tík“.“ Kom fram hjá honum að þarna færu ekki saman sjónarmið landsbyggðarinnar og Reykjavíkursvæðisins. Jafnframt benti hann á að það væri rétt að öll stærri slys sem verða utan almenns dagvinnu- tíma hafi farið til Reykjavíkur. „Ég get fullyrt að það er ekki rétt hjá yfirlækninum að eftir kl. fimm fari allt nema það allra minnsta inn til Reykjavíkur," sagði Páll um málið, „en það getur verið að það fari of margir.“ Síðar kom fram hjá honum að þeir sinntu kúfnum af slysum og vísuðu frá sér erfiðustu tilfellunum til skurðlækna sjúkrahússins og síðan væri það þeirra mál hvort þau væru afgreidd með aðgerð eða send inn eftir. Nauðungarsölur á Suðurnesjum: IVIikið sömu eignirn- ar eða gjaldþrotamál Mikil aukning hefur verið í nauðungarsölu fasteigna á Suðurnesjum það sem af er þessu ári og á því síðasta. Að sögn Jóiis Eysteinssonar, bæj- arfógeta og sýsluntanns, eru ástæðurnar ^aðallega tvenns konar. Mikið hefur verið um gjaldþrot fyrirtækja þar sem stórar eignir hafa verið yfir- veðsettar og því ekki verið hægt að selja þær á frjálsum markaði. Þá er ekkert annað eltir en nauðungaruppboð. Þá er mikið um það að léleg- ar eignir seljist, sumar jafn- vel aftur og aftur. Oft tekur Byggingarsjóður ríkisinsþær til sín á uppboðum og selur þær síðan fólki sem ræður ekki við afborganirnar og eignin fer aftur á uppboð. „Margt af þessu fólki tek- ur að sér að greiða ailt of há lán og þá umfram getu sína. Lánin hækka stanslaust og fólkjð ræður ekki við vísitöl- una og vextina. Það reisir sér hurðarás urn öxl, sem endar með uppboði. Má því segja að yfirleitt séu það lélegar eignir eða eignir er tengjast gjaldþrotum sem seidar eru nauðungarsölu'* sagði Jón í samtali við blaðið. Á síðtt 13 í blaðinu í dag skýrir Jón fyrir lesendum þær breytingar sem gerðar voru á uppboðum fyrir tveimur árum og hafa það í för með sér að nú eru eignir seldar þegar þriðja uppboð hefur verið ákveðið. 100 metra bremsuför ölvaðs ökumanns Um hádegisbilið á sunnu- dag fékk lögreglan í Kefla- vík tilkynningu um að mað- ur, sem ekið hefði suður Víknaveg í Njarðvík á ofsa- hraða, hefði ekið á umferð- armerki á gatnamótum Borgarvegar. Ökumaðurinn er grunað- ur um meinta ölvun við akst- ur en bremsuför hans mæld- ust 100 metrar á þurru mal- biki. Mun hann hafa lent upp á umferðareyju og á um- ferðarmerki sem þar var staðsett. Ber ökumaðurinn það fyrir sig að bifreið haft verið ekið Borgarveg og í veg fyrir akstursstefnu hans og þvi hafi hann lent á umferðar- merkinu. Virðist þó ljóst á bremsuförunum að hann hafi ekið mjög hratt, svo ekki sé meira sagt. r jék ii NS Danski kórinn og eldri borgarar utan við Utskálakirkju. Ljósm.: Hcimir Fjölmenni að Útskálum Undanfarna daga hefur ver- ið staddur hér á Suðurnesjum 90 barna söngkór frá Svenstrup Danmörku, í boði æskulýðsnefndar Rotary- klúbbs Keflavíkur, sem skipulagði heimsókninaásamt Tónlistarskólanum í Keflavík. Með kórnunt sungu tveir Is- lendingar, þ.á.m. Ólöf Einars- dóttir (Júlíussonar). Meðfylgj- andi mynd tók Heimir Stígsson af kórnum ásamt öldruðum, við Utskálakirkju á laugardaginn. Lögguljósunu Önnur bifreiða lögregl- unnar í Grindavík virðist vera með eindæmum vinsæl hjá þjól'um staðarins, því urn síðustu helgi var enn og aft- ur s'tolið bláum ljóskúplum af bifreiðinni og það tveimur í þetta skiptið. Hefur þá fimm kúplum verið stolið af im stolið aftur þessari bifreið á hájfs mán- aðar tímabili. Ekki er vitað hver eða hverjir skemmta sér við þessa iðju, en lögreglan í Grindavík þakkar allar upp- lýsingar sem geta leitt'til þess að kúplarnir finnist. m ~ m mm^m — m _ « V i TRÉ : /\ SPÖN PARKET i TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR IÐAVÖLLUM 7 KEFLAVÍK SÍMI 14700 Verður löggan ekki að fara að taka blikkljósin með sér i háttinn?!!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.