Víkurfréttir - 21.09.1989, Qupperneq 8
8
mdar
grin ■ gagnryni
y vangaveltur-
un^sjón:*emil páll.*»
Varnarliðið kallar
úlfur, úlfur
Að undanförnu hafa verið
tíðar æfingar hjá varnarlið-
inu, þar sem notuð hafa ver-
ið merkjablys. Þótt viðkom-
andi æfingar hafi verið til-
kynntar áður, hafa þær í
sumum tilfellum valdið því
að hjálparsveitir hafa verið
kallaðar út, þar sem ekki lá
ljóst fyrir áður að um æfingu
var að ræða. T.d. var boðum
komið alla leið til Slysa-
varnafélagsins í byrjun síð-
ustu viku, en engu að síður
var slysavarnasveitin Þor-
björn í Grindavík kölluð út.
Hitt er þó alvarlegra, að þeg-
ar tilkynnt er um að notuð
verði neyðarblys á ákveðnu
3ja-4ra klukkustunda tíma-
bili, gæti orðið sjóslys á sama
tíma, þar sem ekki væri tekið
mark á neyðarblysi vegna
vitneskju um æfingu hersins.
Sjá menn því í hendi sér að
Varnarliðið verði að hætta
þessum æfingum sem þegar
eru komnar langt út í öfgar.
Höfum liðið marga
Patreksfirði...
Haldið var upp á tveggja
ára afmæli Fiskmarkaðs
Suðurnesja síðasta fimmtu-
dag, en eins og fram kom í
síðasta tölublaði eru ýmsar
blikur þar á lofti. Var m.a.
rætt um kvótamál í afmælis-
ræðu stjórnarformanns
Fiskmarkaðarins, Loga Þor-
móðssonar. Sagði hann m.a.
í því sambandi: „Okkar
svæði hefur liðið marga Pat-
reksfirði." Er nokkuð til í
því.
... sveitarstjórna-
mennirnir endurspegl-
uðu ástandið...
Þó öllum sveitarstjórnum
á svæðinu hafi verið boðið að
senda fulltrúa í afmælið voru
þær aðeins þrjár sem létu það
eftir sér, Keflavík, Grinda-
vík og Miðneshreppur.
Höfðu menn á orði að þetta
endurspeglaði það hvaða
sveitarstjórnir gera sér grein
fyrir því að við lifum á sjáv-
arútvegi.
lofti í útgerðarmálum svæð-
isins og þá alveg eins varð-
andi þetta fyrirtæki sem önn-
ur.
Hvar verður
Islandsbanki?
Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um það hvar Is-
landsbanki verður staðsettur
í Keflavík, þegar sameining
Verslunar- og Utvegsbanka
mun eiga sér stað. Báðir
bankarnir eru með stór útibú
í Keflavík. Ekki eru mörgár
síðan Útvegsbankinn stækk-
aði við sig og bætti við efri
hæðinni að Hafnargötu 60.
Verslunarbankinn stækkaði
einnig fyrir nokkru síðan og
endurhannaði húsnæðið
nánast og er nú í hinum
,,opna“ stíl, mjög glæsilegt.
En hvort húsnæðið verður nú
fyrir valinu hjá Islands-
banka? Útvegsbankahúsið er
með hvelfingu undir og er
stærra. A báðum stöðum eru
ekki næg bílastæði fyrir stórt
útibú, þó Verslunarbankinn
hafi frekar vinninginn þar
miðað við eigin stærð í dag.
En samkvæmt síðustu frétt-
um þá tippa fleiri á Útvegs-
bankahúsið...
... Jóhanna
eða Eiríkur?
Meira um Islandsbanka.
Þeir sem hafa spáð í spilin
lenda í „strandi" þegarkom-
ið er að umræðu um útibús-
stjóra. Verður það Jóhanna
í Kringlunni í Reykjavík. Þar
eru á boðstólum sömu vöru-
merki og í Póseidon og ber
nýja búðin nafn hins kunna
danska tískufatnaðar,
Jackpot.
Næturlíf á Langbest
Veitingaþjónusta hefur
þróast ört á Suðurnesjum og
stöðum hefur fjölgað. Nú
ætlar einn þeirra að bæta við
þjónustuna og hafa opið á
laugardagskvöldum, bjóða
fría heimkeyrslu á pizzum
ásamt meðlæti á laugardags-
kvöldum til kl. 5 um morg-
uninn. Þetta er veitingastað-
urinn Langbest í Keflavík.
Duglegur ritstjóri
Það fer vart milli mála að
úti í Höfnum býr afkasta-
mikill ristjóri ýmissa sér-
tímarita sem gefin eru út á
vegum Frjáls framtaks. Sá
maður heitir Leó M. Jóns-
son og er ritstjóri tímarita
eins og Bíllinn, Bóndinn og
tölvublaðs, svo eitthvað sé
nefnt. Eru umrædd tímarit
mjög vel úr garði gerð og að-
ilum til sóma.
Færri sjá eldspýtu-
stokksblaðið
Gárungarnir hafa lengi
haft gaman afþví að minnsta
dagblað þessa lands, Al-
þýðublaðið, er svo lítið að
hæglega má brjóta það sam-
an og geyma í eldspýtu-
stokki. En vandamálið sem
Bætt umferðarmenning
Mikið er nú rætt um bætta umferðarmenningu til að draga úr slysa-
hættu. Við hér á Suðurnesjum búum við lélega hraðbraut sem
þegar er búin að kosta milli 40 og 50 mannslíf. En hvað skyldi
hið opinbera gera til að draga úr slysahættunni? Eitt af því litla
sem gert er, er uppsetning á þessu merki við Reykjanesbraut,
sem að vísu fáir hér syðra trúa á að hafi einhvern tilgang. En það
er víst annað mál. Ljósm.: hbb.
... eða þingmennirnir?
Þá var mæting þingmanna
ekki betri. Aðeins Geir
Gunnarsson og Hreggviður
Jónsson máttu veraaðþvíað
eyða smá tíma meðal útgerð-
ar- og sjávarútvegsmanna á
þessum tímamótum. Þá
sendi Karl Steinar Guðna-
son kveðju og gat þess að han
son kveðju og gat þess að
hann kæmist ekki sþkum
anna. Sama gerði Olafur
Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra. Frá hinum heyrð-
ist ekkert.
Aðalfundur Eldeyjar
Ákveðið hefur verið að
boða til aðalfundar útgerðar-
félagsins Eldeyjar h.f. 8.
október nk. Margir hafa
beðið með óþreyju eftir fund-
inum, enda ýmsar blikur á
Reynisdóttir, Verslunar-
bankastjóri, eða Eiríkur Al-
exandersson úr Útvegsbank-
anum? Jóhanna hefur gegnt
útibússtjórastöðu lengur en
Eiríkur en hvort það dugar
henni er allsendis óvíst að
segja til um...
Magnús opnar
í Kringlunni
Magnús Ketilsson, sem
rekið hefur tískuverslunina
Póseidon í Keflavík í mörg
ár, hefur opnað tískuverslun
hrjáir það er að mjög fáir lesa
það. Ekki einu sinni kratar
kaupa þetta flokksmálgagn
sitt í áskrift. Hefur aðal lest-
urinn verið hjá stofnunum
og öðrum er fá blaðið frítt.
Svo hefur það a.m.k. verið
hér á Suðurnesjum. En nú
hefur lesendum fækkað enn
til muna, þar sem þeir sem
stjórna blaðinu hafa hætt að
dreifa því ókeypis, a.m.k.
hér á Suðurnesjum. Er jafn-
vel talið að útbreiðslan nú
nemi aðeins einum, tveimur
eða þremur tugum blaða á
öllum skaganum.
\ikurfréttir
21. sept. 1989
Hluti gesta Hitaveitunnar, er ORMAT-virkjunin var formlega
tekin í gagnið. Ljósm.: hbb.
Viðkvæmir sveit-
arstjórnamenn...
nesjamanna mikill, með eina
af hættulegustu akbrautum
landsins við bæjardyrnar.
Nokkuð er farið að gæta
taugatitrings meðal sveitar-
stjórnamanna varðandi alla
gagnrýni. Enda ekki nema
tæpt ár í kosningar. Vegna
þessa hafa sumir þeirra, sem
mættu í Svartsengi er Ormat-
virkjunin var vígð, haft sam-
band við blaðið og kvartað
yfir að ekki skuli hafa komið
fram í umíjöllun Mola að
þeir hafi mætt. Þar var hins
vegar verið að skrifa um þá
sem mættu ekki og þvi voru
ekki birt nöfn hinna. Þá hafa
aðrir kvartað yfir þvi að
sveitarstjórar þeirra hafi
ekki boðað þá.
... með undantekn-
ingum þó
Eitt hafa sumir sveitar-
stjórnamenn þó rétt fyrir sér
samkvæmt nánari athugun
Mola, þ.e. að komið hefur í
ljós að tveir sveitarstjórna-
menn til viðbótar munu hafa
verið á staðnum, en höfund-
ur sá þá ekki. Um er að ræða
einn frá Vogum og annan úr
Garðinum.
Boðið eftir
að hófið hófst
Nú hefur komið í ljós að
boðunarkerfi Fiskmarkaðar
Suðurnesja hefur alls ekki
verið gallalaust þrátt fyrir að
svo hafi átt að vera. Fulltrú-
ar tveggja sveitarfélaga
fengu boð í hófið eftir að það
hófst. Er hér um að ræða
Garðmenn og Vatnsleysu-
strandarmenn. Sé eins með
önnur sveitarfélög er engin
furða þó skógur sveitar-
stjórnamanna hafi verið gis-
inn í afmæli markaðarins.
Myndarlegt framlag
Suðurnesjamanna
Þeir voru margir sem sátu
hrærðir fyrir framan sjón-
varpstækið og horfðu á fjár-
öflunarþátt SEM-hópsins og
Stöðvar 2. Þar tókst á einni
kvöldstund að safna fyrir
markmiðinu, húsi upp á 20
milljónir króna. Hlutur Suð-
urnesjamanna í þessu átaki
var myndarlegur. Þeir komu
fram sem skemmtikraftar,
fórnarlömb og síðast en ekki
síst sem gefendur. Gáfu þeir
peninga, vinnuframlag, efni
og eitt fyrirtæki á Suðurnesj-
um gaf fiskmeti í tvær mál-
tíðir á viku fyrir íbúa húss-
ins um ókomna framtíð.
Enda er skilningur Suður-
Forsetinn fór
á kostum
Fyrir bæjarstjórnarfund í
Keflavík á þriðjudag áttu
margir von á löngum og leið-
inlegum fundi, enda tæplega
100 fundargerðir á dagskrá.
Að vísu höfðu flestar þeirra
hlotið afgreiðslu bæjarráðs
meðan bæjarstjórnin var í
sumarfríi. Skeleggum for-
seta tókst þó að breyta þess-
um ótta í málefnalegan, létt-
an og góðan fund, sem lauk á
tveimur tímum rúmum. Sá
sem sat í forsetastól og átti
heiðurinn af þessu er Vil-
hjálmur Ketilsson, sem sann-
arlega var í essinu sínu.
Atvinnumálanefnd
tekin á beinið
Fundargerðir atvinnu-
málanefndar Keflavíkur eru
fremur fáséðar á fundum
bæjarstjórnar Keflavíkur,
enda fundir ekki mjög al-
gengir. Á síðasta fundi bæj-
arstjórnar kom þó ein slík
fundargerð til afgreiðslu. Má
segja að nánast allt sem þar
kom fram hafi verið tekið til
mikillar gagnrýni í bæjar-
stjóminni. Verndaður vinnu-
staður, mjög slæmt atvinnu-
ástand og að útgerð og fisk-
vinnsla ætti erfitt með að fá
fyrirgreiðslu. Ekkert þess-
ara mála fékk náð fyrir aug-
um bæjarfulltrúa. Annars
staðar í blaðinu er sérstak-
lega rætt um verndaðan
vinnustað. En varðandi hin
atriðin þá spurðu bæjarfull-
trúar sumir hverjir hvaða lýs-
ingarorð yrði notuð um at-
vinnuástandið t.d. í nóvem-
ber og desember, fyrst það er
mjögslæmt nú. Um lánamál-
in kom fram að það skorti
ekki fyrirgreiðslu, heldurætti
þessi rekstur í vandkvæðum
með að standa undir lánum
vegna kvótaskorts.
Bæjarfélögin þrjú
með í Landsleiknum
Nú hafa bæjarfélögin þrjú
á Suðurnesjum öll ákveðið
að vera með í Landsleik
Stöðvar 2, sem er að hefjast.
Verður gaman að fylgjast
með spurningaleik þessum
og sjá hvaða byggðarlag
stendur sig best af þeim
þremur á Suðurnesjum. Þó
ekki hafi enn heyrst hverjir
muni skipa lið bæjarfélag-
anna, skulum við vona að
valið verði gott.