Víkurfréttir - 21.09.1989, Qupperneq 13
Unga fólkið
Bréf frá Hondúras:
Fátæka fólkið
biður um mat
24.08. 1989
Kæru vinir, vandamenn og
Garðbúar.
Nú er ég búin að vera hér í
Hondúras í sex mánuði og
þetta eru búnir að vera frábær-
ir sex mánuðir. Fjölskyldan
mín er millistéttarfjölskylda
og hreint og beint frábær. Ég
bý í höfuðborginni sem heitir
Tegucigalpa. Eg er búin að
ferðast nokkuð og hér er svo
mikið að sjá, það sem ekki er
hægt að sjá heima. Hér er fá-
tækt og fátæka fólkið er á göt-
unni að selja hluti eða biðja um
mat og pening.
Skólinn sem ég er í er ágæt-
ur. Þetta er stelpnaskóli og ég
þarf að vera í sérstökum skóla-
búningi svo ég sakna þess að
geta ekki verið í gallabuxum
og íþróttagalla í skólanum.
Skólinn er búinn í október,
mánuði fyrr en venjulega
vegna forsetakosninga. Hond-
úrasbúar byrja kosningabar-
áttuna ári áður en kosið er.
Jæja, ég ætla ekki að hafa
þetta bréf lengra. Ég vil bara fá
að þakka AFS og foreldrum
mínum fyrir að gera þetta ár að
raunveruleika. Ég er búin að
læra mikið og sjá það að ís-
lendingar lifa mjög góðu lífi,
þó þeir vilji ekki viðurkenna
það. Þetta er lífsreynsla sem ég
mun aldrei gleyma og ég
myndi segja að allir unglingar
hefðu gott af þessu.
Ég læt svo fylgja með heim-
ilisfangið mitt í von um að ein-
hver leggi sér penna í hönd og
skrifi mér. Það er alltaf gaman
að fá bréf að heiman.
Astar- og saknaðarkveðjur,
Anna Gunnlaugsdóttir,
Hondúras.
Anna Gunnlaugsdótlir Ráquél
Col. Ruben Dario
4 calle 1 y 2 aue
Casa no. 2235
Tegucigalpa D. C.
HONDURAS C.A.
Víkurfréttir
21. sept. 1989
Beitningaaðstaða
Sandgerðishöfn auglýsir beitningaaðstöðu
til leigu á hafnarsvæðinu í Sandgerði.
Upplýsingar gefur Sigurður Bjarnason,
hafnarstjóri.
Hausttískan
í Glaum-
bergi
Af og til er gestum
skemmtistaðarins Glaum-
bergs boðið upp á óvæntar
uppákomur. Nú nýverið var
það sýningarflokkur frá
Dansstudiói Sóleyjar (Jó-
hannsdóttur) er sýndi það
nýjasta úr tískuheiminum.
Var allur fatnaðurinn frá
tískuvöruversluninni Tangó
við Tjarnargötu í Keflavík.
Ljósmyndari okkar,
Hilmar Bragi, tók meðfylgj-
andi mynd af sýningarfólk-
inu og látum við hana tala
sínu máli. Það var Sigríður
„Gloría“ Gunnarsdóttir er
sá um snyrtingu á sýningar-
fólkinu, en fatnaðinn getur
fólk skoðað nánar í Tangó.
KEFLAVÍKURKIRKJ A:
Fermingarbörn
gefa hökul
Fermingarböm Keflavík-
urkirkju árið 1959 hafa
ákveðið að færa kirkjunni
hökul að gjöf til minningar
um þrjú fermingarsystkini
sem eru látin, þau Helgu Sig-
urðardóttur, Éirík Jóhanns-
son og Grétar Skaptason.
Hökla má rekja allt aftur
til Grikkja og Rómverja.
Þeir urðu síðan sérstakur
klæðnaður presta á 4.-9. öld,
þegar almenningur lagði af
slíkan klæðnað. Síðar varð
hökullinn nær einvörðungu
notaður í messunni, við sam- '
félagið um Guðs borð.
Ræktarsemi við kirkju og
kristni yljar manni alltaf um
hjartaTæturnar og ég vil fyrir
hönd sóknar og safnaðar
þakka 30 ára fermingar-
börnum Keflavíkurkirkju
þessa veglegu gjöf um leið og
við blessum með þeim minn-
ingu látinna fermingarsyst-
kina.
Sóknarprestur
STAPAFELL
KEFLAVÍK
AEG, GRAM og IGNIS frystikistur
frá kr. 31.900.-
KÆLISKÁPAR 16 gerðir frá kr. 29.900
ÞVOTTAVÉLAR með og án þurrkara
ÞVOTTAÞURRKARAR frá kr. 24.900
ÖRBYLGJUOFNAR - HRÆRIVÉLAR -
RYKSUGUR - ELDAVÉLAR -
ELDAVÉLASETT - ELDHÚSVIFTUR
STAPAFELL
Símar 12300 og 11730