Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.09.1989, Side 16

Víkurfréttir - 21.09.1989, Side 16
16 Frettir Yikurfréttir 21.sept. 1989 Ökuleikni: Guðný stóð sig vel Við sögðum frá frammi- stöðu Suðurnesjafólks í Ökuleikni 1989 í síðasta blaði. í þá frásögn vantaði að segja frá frammistöðu ann- ars kvenþátttakandans úr Keflavík, Guðnýjar Guð- mundsdóttur. Hún lenti í 7. sæti en Guðný hefur verið dugleg í Ökuleikninni und- anfarin ár, því í fyrra varð hún í 3. sæti í úrslitunum. Ein matvöruverslun í Grindavík: Kaupfélagið leigir Staðarkjöri Víkurbraut 60 í gönguferð með lögreglunni Eitt af þvi skemmtilegasta sem krakkarnir á dagheimil- unum og leikskólunum gera Fundir - Félagsmál Aðalfundur Útgerðarfélagsins Eldeyjar hf. verður haldinn í Glaumbergi, Keflavík, þann 8. október 1989 kl. 14.00. - Húsið opnað kl. 13.00. Aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Stjórnin Bjarmi Félag um sorg og sorgarviðbrögð Við hefjum vetrarstarfið miðvikudaginn 27. september kl. 20.30 í Kirkjulundi. Erindi: Álfheiður Steinþórsdóttir, sálfræð- ingur, ræðir um hjónaskilnaði og sorg. Stjórnin « Allsherjarat- 'i) kvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat- kvæðagreiðslu um kjör fulltrúa á 17. þing Landssambands íslenskra verslunar- manna, sem haldið verður 13.-15. okt. nk. Kosið er um 4 fulltrúa og 4 til vara. Framboðslistum sé skilað til formanns kjörstjórnar, Þórarins Péturssonar, Fífumóa lb, Njarðvík, eigi síðar en kl. 18 miðvikudaginn 27. sept. nk. Öðrum listum en lista stjórnar skulu fylgja meðmæli. Kjörstjórn er að fara í gönguferðir með lögreglunni og fræðast um umferðarlögin. Ljósmyndari blaðsins ók fram á eina slíka göngu, sem hafði nýlokið við að fara yfir gangbraut á Vesturgötunni í Keflavík um. daginn. Það var Guð- mundur Sæmundsson, lög- regluþjónn, einn sá vinsæl- asti meðal ungu kynslóðar- innar, sem þarna var á ferð með krakkana á Garðaseli, ásamt fóstrum. Guðmundur hefur undanfarið verið í heimsóknum á dagheimil- unum og leikskólunum og frætt börnin um nauðsynleg- ustu umferðarreglurnar. Um alllangt skeið hafa við- ræður átt sér stað milli Kaup- félags Suðurnesja og kaup- mannanna í Staðarkjöri um þann vanda sem blasti við matvöruverslun í Grindavík. Nýbygging Kaupfélagsins og hugsanleg stækkun/nýbygg- ing Staðarkjörs hefði haft í för með sér meiri fjármagns- og rekstrarkostnað en eðlilegt mætti teljast. Offjárfesting í verslunarhúsnæði og tvöfald- ur rekstrarkostnaður kæmi í framtíðinni til með að leiða af sér hærra vöruverð, minni þjónustu og augljósan tap- rekstur beggja verslananna. Slíkt yrði seint hægt að telja Grindvíkingum til hagsbóta. Menn gerðu sér fljótlega ljóst að við þær aðstæður, sem smásöluverslunin býr við í dag, væri ekki raunhæft að gera ráð fyrir nema einni stórri verslun í Grindavík, sem með Ymislegt Fiskhjallar til sölu á mjög góðu landi. Upplýsingar í síma 27120 á vinnutíma. HUSNÆÐI? Til leigu 180 ferm. efri hæð. Sér inngangur. Hentar vel fyrir félagsstarfsemi eða léttan smáiðnað. Uppl. í símum 15353 eða 12576. ÚTBOÐ Stjórn Dvalarheimila aldraðra, Suðurnesj- um, óskar eftir tilboðum í gerð grunns, kjallara og gólfplötu jarðhæðar dvalar- heimilis fyrir aldraða að Faxabraut 13-15 í Keflavík. Stærð kjallara er um 171 fermetri og stærð gólfplötu 619 fermetrar. Útboðsgögn eru afhent á Verkfrasðistofu Njarðvíkur gegn 5000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð mánudaginn 2. okt- óber kl. 13.30 á skrifstofu Sambands sveit- arfélaga á Suðurnesjum, Vesturbraut 10a, Keflavík. stærð sinni gæti uppfyllt þær kröfur sem neytendur gera nú til þjónustu, vöruúrvals og verðs. Einnig hafabættarsam- göngur og aukin bifreiðaeign leitt til þess að samkeppnin er ekki aðeins innan byggðarlaga heldur er verð og þjónusta í Grindavík í harðri samkeppni við önnur svæði s.s. Keflavík/ Njarðvík og höfuðborgar- svæðið. Þörf á samkeppni á staðnum gerir ekki lengur sömu kröfur og áður til þess að á stað eins og Grindavík séu reknar tvær verslanir. Því yrðu þeir aðilar sem að matvöru- verslun standa í Grindavík að leita leiða til að geta boðið upp á vörur á sem hagkvæmustu verði, en það verður einungis gert með stórri verslun. Þessar viðræður hafa nú leitt til þess að samkomulag hefur náðst milli Kaupfélags Suður- nesja og Staðarkjörskaup- manna um að Staðarkjör opni matvöruverslun í nýju hús- næði Kaupfélagsins að Víkur- braut 60 í Grindavík. Um leið verður hætt að versla með mat- vörur í núverandi Staðarkjöri og í verslunum Kaupfélagsins. Með þessu vonast aðilar til að hægt verði að veita Grind- víkingum góða þjónustu á samkeppnisfæru verði í fram- tíðinni. Sameiginleg fréttatilkynning frá Kaupfélagi Suðurnesja og kaupmönnum Staðarkjörs, Grindavík. Messur Hvalsneskirkja Guðsþjónusta verður kl. 11. Nýr organisti, Oddný Þorsteinsdóttir, er tekinn til starfa. Hjörtur Magni Jóhannsson Útskálakirkja Guðsþjónusta verður kl. 14. Þetta verður síðasta guðsþjónusta Jón- ínu Guðmundsdóttur sem organ- ista Utskálakirkju, áður en hún lætur af störfum til að takast á við önnur verkefni á öðrum vettvangi. Kirkjukaffi verður í Útskálahús- inu að lokinni guðsþjónustu. Hjörtur Magni Jóhannsson

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.