Víkurfréttir - 05.10.1989, Blaðsíða 1
STZERSTA FRETEA - OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURl
Landsbókasafr
Safnahúsinu
Hverfisgötu
101 Reykjav:
39. tölublað 10. árgangur
Fimmtudagur 5. október 1989
Tillaga frá bæjarstjórn Keflavíkur
Skoðanakönnun um sam-
einingu sveitarfélaga
ingi og kynningu málsins. son, Hermann Ragnarsson,
Jafnframt skorar bæjarstjórn Anna M. Guðmundsdóttir,
Mikið um
pröflausa
í umferð-
inni
Lögreglan í Keflavík hefur
undanfarið þurft að hafa tölu-
verð afskipti af próflausum
ökumönnum, ökumönnum
sem sviptir hafa verið ökurétt-
indum. Að sögn Þóris Mar-
onssonar, yfirlögregluþjóns,
er háar sektir við þessum brot-
um. Jafnframt sagði Þórir að
frá áramótum til 1. október
hefðu 143 ökumenn verið
teknir, grunaðir um ölvun við
akstur.
Hannes F.inarsson, bæjar-
fulltrúi, lagði fram eftirfarandi
tillögu á fundi bæjarstjórnar
Keflavíkur á þriðjudag og gaf
jafnframt öðrum bæjarfulltrú-
um kost á að skrifa upp á hana
sem þeir gerðu:
„Bæjarstjórn Keflavíkur
samþykkir að við næstu bæjar-
stjórnarkosningar fari fram
skoðanakönnun um hug bæj-
arbúa til sameiningar sveitar-
félaga á Suðurnesjum og sam-
þykkir að kjósa þriggja manna
nefnd á næsta bæjarstjórnar-
fundi til að vinna að undirbún-
Keflavíkur á aðrar sveitar-
stjórnir á Suðurnesjum að gera
slíkt hið sama.
Hannes Einarss., Vilhjálmur
Ketilsson, Jón Ólafur Jóns-
Ingolfur Falsson, Garðar
Oddgeirsson, Magnús Har-
aldsson, Drífa Sigfúsdóttir.“
Var umrædd tillaga sam-
þykkt með 9 atkvæðum gegn
engu.
Fjölmenni var á áheyrendapöllum bæjarstjórnar er málið var þar til
umljöllunar. Hér eru það nágrannar Píanóbarsins.
Fylgismenn Píanóbarsins létu sig ekki vanta, né heldur formaður
áfengisvarnanefndar Keflavíkur. Ljósm.: hbb.
ðlögleg
umfjöllun?
ÖvísUinnram-
tlð Planóbarsins
Eigendur telja sig eiga rétt á vínveitingaleyfi
til bráðabirgða meðan málið er til meðferðar,
en fógeti telur svo ekki vera
Hilmar Jónsson, stórtempl-
ari og formaður áfengisvarna-
nefndar Keflavíkur, segir að
ólöglega sé staðið að umfjöllun
bæjaryfírvalda um áfengismál
þessa dagana. Um er að ræða
umsókn um framlengingu vín-
veitingaleyfis fyrir Píanóbar-
inn, samþykkt um að leyfið fær-
ist yfir á annað húsnæði og
orðalagsbreytingar fyrir Píanó-
barinn og Rána varðandi lengri
opnunartíma.
Umrædd mál voru sam-
þykkt í bæjarráði án þess að
þeim hafi áður verið vísað til
umfjöllunar í áfengisvarna-
nefnd. Um þetta segir Hilmar
orðrétt:
„Það er eðlilegast að vísa
slíkum málum til áfengis-
varnanefndar til umfjöllunar,
annað er ólöglegt. Þar sem það
var ekki gert verður að taka
allt málið upp að nýju, um það
er engin spurning. Það er kom-
in ný og harðari reglugerð frá
ráðherra sem kveður skýrt á
um að svo skVtli með slík mál
fara“.
A fundi bæjarstjórnarinar á
þriðjudag var failist á túlkun
Hilmars eins og sést hér til
hliðar. En Hilmareróánægður
með fleira eins og sést á síðu 6 í
blaðinu í dag.
Þrátt fyrir að á fundi bæjar-
stjórnar Keflavíkur lægi fund-
argerð bæjarráðs er kvað á um
að synja framlengingarumsókn
Píanóbarsins nema samþykki
nágranna lægi fyrir, breytti
bæjarstjórn um skoðun á málinu
á fundinum á þriðjudag. Þá lágu
fyrir mótmæli nágranna svo og
Hilmars Jónssonar, formanns
áfengisvarnanefndar, sem
krafðist þess að málinu yrði
vísað til nefndarinnar, annars
myndi hann kæra bæjarstjórn.
Var því samþykkt að vísa
málinu til umfjöllunar í áfeng-
isvarnanefnd með 7 atkvæð-
um, gegn atkvæði Ingólfs Fals-
sonar, en Drífa Sigfúsdóttir
sat hjá. Taldi Ingólfur að sam-
þykki fundargerðar bæjarráðs
væri það eina rétta.
Samkvæmt upplýsingum
frá eigendum Píanóbarsins
telja þeir að samkvæmt 7.
grein laga um veitingar og sölu
á áfengi eigi að veita þeim
bráðabirgðaleyfi meðan málið
er til meðferðar hjá yfirvöld-
um. Að þeirra sögn telur fógeti
að umrædd grein gildi ekki
fyrir Píanóbarinn, nema ná-
grannar veiti samþykki fyrir
því.
En í bréfi fógeta frá því í
ágúst er hann veitti leyfið í
september var tekið fram að
það yrði ekki endurnýjað, og
við það virðist hann ætla að
standa.
Vínveitingar
samþykktar
í Stapa
Bæjarstjórn Njarðvíkur
samþykkti á fundi sínum, sem
haldinn var austur á Flúðum
um síðustu helgi, að heimila
Gísla Haukssyni að fá vínveit-
ingaleyfi í Félagsheimilinu
Stapa í Njarðvík. Var beiðni
þessi samþykkt einróma á
fundinum og vísað þar með til
bæjarfógeta.
-------------------1—
Viðbygging Hlévangs:
Lægsta til-
boð 77.8%
af kostnað-
aráætlun
Tilboð í gerð grunns, kjall-
ara og gólfplötu jarðhæðar við-
byggingarinnar við Hléváng í
Keflavík voru opnuð á mánu-
dag. Alls bárust sjö tilboð i
verkið en kostnaðaráætlun nam
11 milljónum og áttatíu þúsund-
um króna.
Lægsta tilboðið var frá
Hjalta Guðmundssyni og nam
það 77,8% af kostnaðaráætlun.
Næst lægsta tilboðið, sem var
frá Húsagerðinni, nam 80,9%,
en hin öll voru rúmlega 90% af
kostnaðaráætlun. Mun stjórn
Dvalarheimila aldraðra fjalla
um ntálið á fundi sinum í dag.
Tilboðin sem bárust voru
þessi, samkvæmt heimild Verk-
fræðistofu Njarðvíkur:
Húsanes s.f. ..... 10.622.500
Steinsmíði s.f. .. 10.262.178
Viðar Jónsson .... 10.657.963
Þórður Guðmundsson 10.208.825
Jón og Gunnar sf. ... 10.373.050
Húsagerðin h.f. ... 8.967.190
Hjalti Guðmunds'on 8.622.425