Víkurfréttir - 05.10.1989, Síða 6
6
Viðtalið
„Þát tur íþrötta-
forystunnar er
sárg irætilegur"
- segir Hilmar Jónsson, stórtemplar og formaður
áfengisvarnanefndar Keflavíkur, um þróunina
í vínsölumálum í Keflavík
Mikið hefur verið rætt um
fjölgun á bjórkrám að undan-
förnu svo og framlengingu á
vínveitingaleyfi Píanóbarsins
og þá ekki síst meintar kvartan-
ir nágranna staðarins yfir há-
vaða, ólátum og slæmri um-
gengni í nágrenni Píanóbarsins.
I umræðunni hefur hlið áfengis-
varnauefndar lítið verið haldið
á lofti.
Við ætlum því að breyta þar
út af og gefum Hilmari Jóns-
syni, stórtemplar og formanni
áfengisvarnanefndar Keflavík-
ur, hér með tækifæri á að segja
skoðun sína í málinu, bæði er
varðar tiltekinn stað og fleira er
því viðkemur. Þar kemur fram
að ýmislegt hefði trúlega mátt
fara öðruvísi eða svo er skoðun
hans á málinu.
Bæjaryfírvöld
Hilmar er ekki sáttur við
framgang mála í bæjarráði
Keflavíkur að undanförnu,
þar sem hvert málið á fætur
öðru hefur komið upp er teng-
ist áfengi. Umræddum málum
er ekki vísað til áfengisvarna-
nefndar heldur hljóta þau af-
greiðslu í bæjarráði í trássi við
gildandi reglugerð.
„Leyfi Randvers Ragnars-
sonar fyrir vínveitingar að
Tjarnargötu 31 rann út um síð-
ustu helgi og nú hefurKristján
Ingi Helgason sótt um fram-
lengingu á umræddu leyfi. Þá
sé ég í fundargerð bæjarráðs
frá 6. júlí að Kristján Ingi sæk-
ir um vínveitingaleyfi að Hafn-
argötu 30.
Hvorugt þessara mála hefur
komið til umfjöllunar í áfeng-
isvarnanefnd, en engu aðsíður
hlotið fullnaðarafgreiðslu í
bæjarráði. Slíkt er með öllu
ólöglegt og því verður að taka
málið upp að nýju og vísa til
umfjöllunar hjá okkur.“
Nágrannarnir
og lögreglan
,,í framhaldi af kvörtunum
vegna Píanóbarsins var eftir-
farandi bókað í áfengisvarna-
nefnd 29. maí sl.:
„Nefndinni hafa borist
kvartanir vegna hávaða, óláta
og slæmrar umgengni í ná-
grenni við vínveitingastaðinn
að Tjarnargötu 31.
Þetta dæmi sýnir að fara
verður með fyllstu gát í að
veita vínveitingaleyfi.“
Eftir að hafa hlustað á og
rætt við nágranna sem búa við
Píanóbarinn, þá verð ég að
segja, að ég er svolítið hissa á
framkvæmdaraðilanum, sem á
að fara með lög og reglur. Að
hann skuli ekki hafa svipt við-
komandi stað vínveitingaleyfi.
Ég held að það sé alveg föst
regla erlendis, að ef rökstudd-
ar kvartanir berist, eins og hér
eru mýmörg dæmi um, þá sé
staðurinn umsvifalaust svipt-
ur leyfi. Ég get því ekki skilið
hvers vegna það er ekki gert í
þessu tilfelli.
Sumir nágrannanna hafa
verið kallaðir fyrir lögreglu.
Ég veit af samtölum við þá að
þar komu fram mjög alvarleg-
ar upplýsingar um ástand
mála. Því vil ég undirstrika að
ég tel að lögregluyfirvöld
hefðu átt, án frekari umhugs-
unar, að taka vínveitingaleyfið
af staðnum.“
Er þetta eitthvert
þjóðþrifafyrirtæki?
„í beinu framhaldi af þessu
segja menn að hér sé um mikla
fjármuni að ræða sem ákveðn-
ir einstaklingar hafi sett í
þetta. Er það eitthvað öðruvísi
með þessa menn en t.d. útgerð-
armenn, sem verið er að gera
upp?
Er þetta svo mikið þjóð-
þrifafyrirtæki að ekki megi
æskja þess að þessir aðilar fari
eftir lögum og reglum? Ef ekki
þá hljóta þeir að verða að hlíta
því að hætta rekstri, fyrst þeir
geta ekki löglega að honum
staðið.“
Geysilega mikið slys
„Píanóbarinn er staðsettur
inni í miðri íbúðarbyggð og
hefur þó vínveitingaleyfi. Það
hlýtur öllum að vera ljóst að
þarna hefur orðið geysilega
mikið slys og það er alveg úti-
lokað annað en að friðhelgi
heimilanna verði það sem sem
tillit sé tekið til. En ekki að ein-
hverjir ímyndaðir hagsmunir
ráði ferðinni, þegar ekki er um
merkilegri starfsemi að ræða.
Það er ábyrgðarhluti að
halda svona áfram endalaust,
með tilliti til kvartana og það
ítrekaðra kvartana, sem berast
frá stóru svæði í nágrenninu.
Við í minni nefnd hlustum á
kvartanir fólksins og það er
ákaflega þungt hljóð í mönn-
um um það hvernig til hafi tek-
ist þarna.
Við erum mjög gagnrýnin á
hve lögreglan hefur verið
slöpp í þessu og að bæjarfull-
trúarnir skuli ekki hafa tekið
tillit til aðstæðna íbúanna
þarna í nágrenninu.“
Sorgarsaga íþrótta-
frömuðanna
„Það sem mér hefur þó
sárnað langmest í þessu máli er
að aðstandendur þessa staðar
skuli vera frammámenn í
íþróttahreyfingunni. Ég hef
sjálfur starfað í íþróttahreyf-
ingunni og æskulýðsfélags-
skap og mér finnst þetta svo
sárgrætilegt aðjafnvel talkerfi
íþróttavallarins skuli notað til
að hvetja fólk til að hita sig
upp fyrir leiki á bjórkrá, eins
og gert hefur verið.
Mjög margir eru sammála
um þetta atriði og það er óháð
skoðunum þeirra á vínveit-
ingastöðum. Sem betur fer er
yfirgnæfandi meirihluti
íþróttafrömuða hér mjög
ábyrgir menn og til þeirra hef-
ur verið hægt að bera mikið
traust. En ég verð að segja að
sú sorgarsaga sem hefur verið
að gerast í keflvískri íþrótta-
hreyfingu, er ég hræddur um
að megi rekja töluvert til þess
að slakað hefur verið á sið-
ferðilegri reisn toppmanna.
Mér finnst það alveg útilok-
að að hvetja menn til að fara
inn á bjórkrá til að safna kjarki
fyrir leiki.“
Björn Vífill
„Ég sé í fundargerðum að á
sama fundi og rætt var um mál
Kristjáns Inga var tekin fyrir
umsókn frá Birni Vífli um að
Ráin fengi heitiðskemmtistað-
ur. Er það gert til þess að hægt
verði að hafa þann stað lengur
opinn, vegna þrengri reglu-
gerðar sem dómsmálaráð-
herra gaf nýlega út og var snið-
Vikurfréttir
5. okt.1989
„Er þetta svo mikið þjóðþrifafyrirtæki, að ekki megi æskja þess að
þessir aðilar fari eftir lögum og reglum?“
in að óskum Reykvíkinga
vegna ástandsins þar, sem þá
var orðið hörmulegt.
Mótmæli við þeirri reglu-
gerð minna mann á að hags-
munir einhverra útvaldra vega
þyngra en heildarinnar. Af
eðlilegum ástæðum hefði
beiðni Björns Vífils verið vísað
til umfjöllunar okkar.
Vil ég minna á að hann fékk
leyfið á sínum tíma með þátt-
töku minnihluta bæjarfull-
trúa. Þrír sátu hjá, tveir
greiddu atkvæði á móti en fjór-
ir með. Það sýnir okkur að
menn eru eitthvað að vakna
þó það hafi verið algjört slys að
mótatkvæðin samþykktu í
raun málið.
Að einu leyti stendur Björn
Vífill þó vel að vígi, hann er
veitingamaður og hefur starf-
að sem slíkur í grein sinni.“
Geigvænlegt vandamál
-En Hilmar, svo við snúum
nú blaðinu aðeins við, hvað
finnst þér almennt um þróun
mála hér syðra?
„Hér í Keflavík er sjö þús-
und manna byggð. Við erum
þó komnir með fimm vínveit-
ingastaði. Það hlýtur hver heil-
vita maður að sjá að þetta er
allt of mikið á ekki stærra
svæði.
Ég er með síðustu tölur um
það hvernig við stöndum í
áfengisneyslunni. Heildar-
neysla ársins hefur þegar
hækkað um 36%. Ef við skoð-
um sérstaklega það hálfa ár
síðan bjórinn kom, þá er þar
um 46% hækkun að ræða. Éru
menn svo samviskulausir að
þeir sjái ekki að það verður að
minnka þetta framboð? Það
hljóta allir að sjá hversu geig-
vænlegt vandamál hér er á
ferðinni og því verðum við að
hafa kjark til að bæta ástand-
ið.“
AA og SÁÁ
„Ég hef fylgst með þessum
málum lengi, haft á minni
könnu ýmislegt er snýr að
æskulýðsmálum. Ég fer nokk-
uð oft á opna fundi hjá AA
fólki og ég verð að segja að það
væri nokkuð hollt fyrir bæjar-
stjórnarmenn að fara á slíka
fundi. Þeir eru opnir og þar
gætu þeir heyrt þau geigvæn-
legu vandamál sem þetta fólk
á við að glíma. Ég held að það
sé alveg deginum ljósara að
eftir að bjórinn kom og eftir að
framboðið hér jókst svona ört,
þá er ástandið að versna. Það
hraðversnar hér á þessu svæði.
Þetta kemur alveg heim við
þær upplýsingar sem koma frá
SÁÁ, sem rekur eina kröftug-
ustu meðferðarstofnun lands-
ins. Þeir segja að það séu nú
komnir langir biðlistar eftir
plássi. Segja þeir þetta ein-
göngu stafa af þeirri breytingu
sem kom með bjórnum.
Ég spyr líka í sambandi við
það sem hér er að gerast í sam-
bandi við bjórkrár, hvernig
það geti talist heppilegt að
hafa tvær bjórkrár við aðal-
götu bæjarins. Eru menn að
kalla á ástand eins og í Reykja-
vík, þar sem enginn getur verið
óhultur í miðbænum eftir
ákveðinn tíma?