Víkurfréttir - 05.10.1989, Qupperneq 10
10
BÍIAR&þjónusta
Bílaverkstæði Ingólfs Þorsteinssonar:
Vetrarskoð-
anir njðta
vinsælda
„Vetrarskoðanir hafa notið
mikilla vinsælda á meðal bíleig-
enda og er fólk farið að sækja
mun meira í þetta en áður, enda
kostnaði haldið í algjöru lág-
marki,“ sagði Ingólfur Þor-
steinsson, bifvélavirki, í sam-
tali við blaðið.
Nú er kominn sá tími að bíl-
eigendur þurfa að fara að huga
að ökutækjum sínum fyrir vet-
urinn. En hvað þarf að gera og
hvað vill helst bila? Gefum
Ingólfi aftur orðið:
„Það er raunar allt sem get-
ur bilað. Það sem fólk þarf þó
Kerti þarf að skipta um reglulega. Hér heldur Ingólfur á einu slíku.
Ljósm.: hbb.
einna helst að láta athuga er
gangverkið í bílunum. Þegar
fer að kólna þarf að láta at-
huga með frostlög og þvíum-
líkt. Einnig geta komið fram
gallar á hleðslukerfi þegar fer
að kólna, gallar sem ekki hefur
borið á yfir sumartímann,“
sagði Ingólfur og bætti við:
„Þeir þættir sem ég athuga í
vetrarskoðuninni eru þeir
hlutir bílsins, er þurfa reglu-
bundið eftirlit og fólk ætti að
láta athuga a.m.k. árlega,“
sagði Ingólfur Þorsteinsson,
bifvélavirki, að endingu.
Yikurfréttir
5.0kt. 1989
Eskfirð-
ingar fá
slökkvi-
bílinn
Stjórn Brunavarna Suður-
nesja hefur samþykkt að taka
tilboði Slökkviliðs Eskitjarðar
upp á 1500 þúsund í þrjú-bíl-
inn svonefnda, sem er slökkvi-
bíll af árgerðinni 1974. Sá sami
og keyptur var hingað að
frumkvæði Félags slökkviliðs-
manna á sínum tíma.
Verður hann sendur með
skipi austur, eftir að nýjasta
viðbótin við tækjaflota
slökkviliðsins er komin til
landsins. Um er að ræða
slökkviliðs- og björgunarbíl af
fullkomnustu gerð, sem er
áætlað að fari í skip til heim-
ferðar til fslands nú á næst-
unni.
Vlgalegt Kringlumerki
Bílakringlan í Grófinni 8 í Keflavík stcndur svo sannarlega
undir nafni. Þar eru tvær bílasölur með samtals 12 bílaum-
boð, bílaverkstæði, bilabúð, bílaverkstæði og sprautun, og
ryðvarnar- og bryngljáaþjónusta. Fyrir framan „Kringl-
una“ sjálfa er stórt og vígalegt merki þessu til staðfestingar.
Ljósm.: hbb.
MUNIÐ
Keilubæ
Opið til kl. 23alladaga.
K,
iíi ii !<i
---------JC
Byggöasafn Suöurnesja
4
Bílasýningar um helgina
hjá þremur bílasölum
Það verður í nógu að snúast á
bílasölunum í Keflavík og
Njarðvík um helgina.
Bílasýningar verða hjá báð-
um bílasölunum í Bílakringl-
unni. A Bílasölu Suðurnesja
verða þrjár nýjar gerðir af
Mazda 323 kynntar og verða
sýningarbílar á bílasölunni um
helgina Hinum megin við
þilið, á BG-bílasölunni, verð-
ur „fjórhjóladrifs bílasýning",
þ.e. allir stærri bílar og jeppar
frá Ingvari Helgasyni, og má
þá nefna Patrol og Paihfinder
jeppana og fleiri gerðir.
Bílanes í Njarðvík verður
einnig með „aldrifs bílasýn-
ingu“ frá Mitsubishi, sem
kynnti í fyrsta skipti fyrir
skömmu Mitsubishi Lancer og
Galant með aldrifi, og nýrri al-
drifstækni. Þá verður einnig
sýning á jeppanum vinsæla,
Pajero. Boðið verður upp á
reynsluakstur á öllum bílun-
um á Bílanesi um helgina.
íslandsmeistararnir í rallakstri 1989, Ólafur og Halldór Sigurjónssynir. Ljósm.:Gunnlaugur Rögnvaldsson
Rallakstur:
BÍLBÓTARBRÆÐUR
ÍSLANDSMEISTARAR
Lokað vegna sumarleyfa
út októbermánuð.
Bílbótarbræðurnir úr
Njarðvík, þeir Ólafur og Hall-
dór Sigurjónssynir, hafa
tryggt sér íslandsmeistaratitil-
inn í rallakstri 1989. Þeir sigr-
uðu í Borgarfjarðarrallinu um
síðustu helgi, sem var næst síð-
asta keppnin í sumar. Engu að
síður eru þeir öruggir sigur-
vegarar á Islandsmótinu. Þeir
hafa þegar sigrað í fjórum rall-
keppnum af fimm og í þeirri
fimmtu voru þeir í 2. sæti.