Víkurfréttir - 05.10.1989, Blaðsíða 12
12_____________
BÍLAR&þjónusta
Heilsugæslustöð
fyrir blla
Nú eru flestir dýrari bílar
með sérstakan tölvubúnað sem
stjórnar eldsneytis- og kveikju-
kerfinu. Þessi nýja tækni hefur
gert kleift að stórauka spar-
ncytni bíla og draga úr mengun
andrúmsloftsins af völdum um-
ferðar. Tækniþróunin gerir
stöðugt auknar kröfur á hcndur
verkstæðum. Nýrri tækni fylgir
ný tcgund bilana og vandamál
sem leita verður uppi og leysa
með nýjum aðferðum og nýjum
tækjum. Af því leiðir að ekki er
lengur hægt að fara með nýjan
bíl á hvaða bílaverkstæði sem
er.
Skipting s.f. í Keflavík bætti
fyrir skömmu við tækjakostinn
bandarískum tölvubúnaði af
gerðinni SunMCA 3000. Um er
að ræða fullkomnasta búnað á
markaðnum um þessar mundir
til ástandsgreiningar, bilana-
leitar og stillingar á bílvélum.
Nýja tölvukerfið hjá Skiptingu
er eins konar heilsugæslustöð
fyrir bíla og henni veitir for-
stöðu Oskar J. Hreinsson, bif-
vélavirkjameistari, sem er sér-
hæfður í meðferð tölvubúnaðar-
ins.
Betri þjónusta
Þeir sem eiga nýlega bíla
með eða án rafeindabúnaðar
geta nú fengið fljótlegri og
betri þjónustu hjá Skiptingu
og þannig tryggt hámarks-
sparneytni og hagkvæmari
rekstur bíla sinna. Þau „sjúk-
dómseinkenni" sem bileigend-
ur ættu að gefa gaum og sem
gefa tilefni til að panta tíma
hjá „heilsugæslustöðinni" eru
m.a. erfið gangsetning, gang-
truflanir öðru hverju, t.d. í
rigningu, aukin eyðsla, ójafn
lausagangur, aílleysi, áber-
andi dökkur útblástur og að-
vörunarljós í mælaborði sem
blikkar öðru hverju eða lýsir
stöðugt t.d. með skilaboðun-
um „Check engine“.
Með nýja tölvubúnaðinum
fer í fyrsta lagi fram hraðvirk
prófun á stjórnbúnaði
kveikju- og eldsneytiskerfis
sem gefur til kynna ástand og
hugsanlegar bilanir. I öðru
lagi kemur tölvukerfið í veg
fyrir að eytt sé tíma í bilanaleit
og ónauðsynlega vinnu auk
þess að koma í veg fyrir að
skipt sé um hluti sem ekki
valda gangtrufluninni. I þriðja
lagi kemur reglulegt eftirlit hjá
„heilsugæslustöðinni" í veg
fyrir óþarfa bensíneyðslu og
ótímabært slit á vél vegna van-
stillingar. í fjórða lagi fæst
tölvuútskrift með upplýsing-
um um ástand vélar og rafbún-
aðar fyrir og eftir stillingu eða
viðgerð og getur eigandinn
fengið skýringar fagmanns á
þeim upplýsingum sem eru á
skýrslunni auk leiðbeininga
um rétta notkun og meðferð
bílsins.
Þeir sem kaupa eða selja bíla
geta einnig notfært sér þessa
nýju þjónustu til þess að fá ná-
kvæma skýrslu yfir ástand og
stillingu vélar og rafbúnaðar.
Skoðunin framkvæmd
Þegar komið er með bílinn
er spurt um hugsanleg „sjúk-
dómseinkenni" og hvaða áhrif
kvillinn hefur á notkun bílsins.
Síðan er vélin og annar búnað-
ur bílsins skoðaður til að
ganga úr skugga um að ekki
séu sjáanlegar lausar tenging-
ar eða leki. Tölvan er síðan
tengd vélinni og hún látin
rannsaka ástand hennar og
viðbrögð og bera saman við
staðalgildi sem hún geymir í
minni. Innifalið í þessum þætti
er mæling á þjöppun, raf-
hleðslu og ástandi rafgeymis,
greining mengunarefna í út-
blæstri o.fl. Allar þessar mæl-
Ingimundur Kjartansson (t.v.),
Oskar J. Hreinsson og Eyjólfur
Herbertsson kanna ástand bíl-
vélar _með nýja tölvubúnaðin-
um. A neðri myndinni skráir
IOskar upplýsingar inn í tölv-
una- ________________________
ingar koma fram á tölvuskján-
um auk þess sem þær má
prenta út.
Einn hluti þessarar tækja-
samstæðu er IBM AT-sam-
hæfð tölva með tveimur diskl-
ingadrifum en á disklingunum
eru geymd stilliforrit og
gagnagrunnur fyrir hverja ein-
staka gerð bíls og fær Skipting
s.f. reglulega send ný forrit á
disklingum frá Sun í Banda-
ríkjunum. Er þar bæði um að
ræða endurbætur á stillingu
eldri bíla og stilligögn fyrir
nýjar gerðir evrópskra, banda-
rískra og japanskra bíla.
L.M.J.
Tónlist
13
Víkurfréttir
5. okt. 1989
Tónlistarskólinn í Garði:
Haustmarkaður á morgun
Tíunda starfsár Tónlistar- Nemendur við skólann eru í vetur er fyrirhugað að I vor verður haldið Bjöllu-
skólans í Garði er nú hafið und-
ir stjórn nýráðins skólastjóra,
Mínervu M. Haraldsdóttur en
hún tekur við starfi Jónínu Guð-
mundsdóttur, sem verið hefur
yfirkennari og síðan skólastjóri
skólans sl. 7 ár.
A nemendatónleikum skólans
sl. vor var Jónína kvödd með
þakklæti og eftirsjá og leyst út
með blónium og gjöf frá Tón-
listarfélagi Gerðahrepps.
nú 55. Kennslugreinar eru:
Píanó, fiðla, gítar, þverflauta,
blokkflauta, trompet, horn,
og forskóli I, II og III. Einnig
eru starfræktir barnakór og
bjöllukór með u.þ.b. 20 nem-
endum í hvorum.
Kennarar skólans eru auk
Mínervu, Alma Hansen, Jón-
as Björnsson, Karen Stur-
laugsson, Ólrikka Sveinsdótt-
ir og Uwe Eschner.
minnast tímamótanna með
ýmsum hætti. Til að byrja með
verður haldinn haustmarkað-
ur á lóð Sparisjóðsins í Garði
föstud. 6. okt. frá kl. 10 f.h.,
þar sem boðið verður til sölu
grænmeti og kökur í miklu úr-
vali Allur ágóði rennur til
hljóðfærakaupa. Vonast er til
að sem flestir komi og geri góð
kaup um leið og þeir styrkja
gott málefni.
kóramót í Garðinum. Þá
koma í heimsókn bjöllukórar
frá Hellissandi og Stykkis-
hólmi. Munu þessir 3 kórar
æfa saman eina helgi og endað
verður með sameiginlegum
tónleikum.
Tónlistaráhugi er mikill í
Garðinum og hefur skólinn
alltaf notið mikillar velvildar
Garðbúa frá fyrstu tíð.
Tónlistarskólinn í Njarðvík:
Gítarnámskeið
- Vinnukonugrip
Á vegum Tónlistarskóla
Njarðvíkur er að hefjast nám-
skeið í gítarleik, sem miðast að
því að nemendur geti slegið ein-
faldan hljómagang undir söng
eða með öðrum hljóðfærum,
svokölluð „vinnukonugrip“.
Námskeiðið hefst mánudag-
inn 9. október og stendur yfir í
8 vikur, eða til 30. nóvember.
Kennt verður í tveimur litlum
hópum og verður því nem-
endaíjöldi mjög takmarkaður.
Kennslustundir verða tvisvar
sinnum í viku, á mánudögum
og fimmtudögum, snemma
kvölds, u.þ.b. I/2 klst. í senn.
Leiðbeinandi verður Anna
María Guðmundsdóttir.
Skráning fer fram föstudag-
inn 6. október (allan daginn)
og fram til kl. 12.00 mánudag-
inn 9. október. Nemendur
verða að útvega sér hljóðfæri
sjálfir.
Verði þátttaka góð og áhugi
fyrir hendi mun skólinn stefna
að því að halda framhalds-
námskeið eftir áramót.
Bjöllukór Tónlistarskólans í Garði
við skólaslit I. vor. Jónína Guðmundsdóttir, fyrrverandi
skóiastjóri, stjórnaði kórnum.
Ljósm.: Asgcir Kjartansson
323 3dyra
frá kr. 698.000
Vökvastýri, 16 ventla vél
5 gira.
„ VINNINGSLIÐIÐ
FRA
ER KOMIÐ TIL SUÐURNESJA . .
iff
ve
eí>
323 4dyra
frá kr. 785.000
Vökvastýri, 16 ventla vél
5 gíra, samlæsing
á huröum.
og verður á bílasýningu
hjá Bílasölu Suðurnesja,
laugardag kl. 10-17
og sunnudag
kl. 13-17.
Komiö og skoðið
VINNINGSLIÐIÐ
3x323 frá
MAZDA
BIIAKRINGLAN
GRÓFIN 7og8
--- KEFLAVÍK --
„Allt er þegar þrennter", segir máltækiðog má
það til sanns vegarfæra, því viðkynnum 3mis-
munandi gerðiraf MAZDA323, Coupe, Saloon
og Fastback, nýjar frá grunni!
Það óvenjulega er, að gerðirnar eru nú mis-
stórar og hafa gjörólíkt yfirbragð, útlit og eig-
inleika og er nánast ekki eitt einasta stykki í
yfirbyggingum þeirra eins.
BILABORG HF
FOSSHÁLSI 1.S.68 12 99
Ragnar bakari
kynnir
kanil-formkökur.
Kynning
frá Rjúkandi kaffi
Vífilfelli. á könnunni.
323 5dyra
frá kr.862.000
Vökvastýri, 16ventlavél
5 gira, samlæsing á
hurðum og rafmagn i
rúðum.
'SOtl Simi 14611