Morgunblaðið - 19.01.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016
Útsöluaðilar: Útilíf Kringlunni – Smáralind – Glæsibæ I Debenhams I Englabörn
Intersport - Bíldshöfða - Akureyri - Selfossi I barnaheimar.is I Leiksport I Músik & Sport
K Sport Keflavík I Nína Akranesi I Sportver Akureyri I Toppmenn og Sport Akureyri
Borgarsport Borgarnesi I Hafnarbúðin Ísafirði I Siglósport Siglufirði I Sentrum Egilsstaðir
Sportbær Selfossi I Pex Reyðarfirði I Axel Ó Vestmannaeyjum I Efnalaug Vopnafirði
Verið getur að auglýstar vörur séu ekki til hjá útsöluaðila. Umboðsaðili: DanSport ehf.
fatnaður
Fótboltabuxur
Gjöf sem hittir í mark
Hummel
við Ísland. Nú fá Bretar að kynnast
raunverulegu skyri.“
Tollfrjálsi kvótinn inni í ESB var
áður notaður til að framleiða skyr
hérlendis og flytja til Finnlands, en
þar í landi hefur sala á skyri verið
ævintýralega mikil eða alls um 5.200
tonn í fyrra fyrir um 2,8 milljarða
króna. Allt skyrið til Finnlands
verður í ár framleitt í mjólkurbúi í
Danmörku.
Nýir tollasamningar frá 2017
Jón Axel segir að tollasamningar
sem gerðir voru við Evrópusam-
bandið á síðasta ári komist ekki í
gagnið fyrr en 2017. Tollfrjáls út-
flutningur á skyri geti síðan aukist
til 2020 er gert sé ráð fyrir að hann
geti numið 4.000 tonnum á ári og
hefur MS væntingar um að unnt
verði að selja það allt saman í Bret-
landi á komandi árum.
Í Sviss hefur líka gengið mjög vel
að selja skyr framleitt á Íslandi, en
Sviss er ekki í ESB. Þar er íslenska
skyrið komið í yfir 600 verslanir og
salan í ár gæti orðið 5-600 tonn.
upp á mikið og gott úrval af mat-
vöru. Fyrst í stað verði áherslan í
markaðssetningu á skyri á London
og nágrannaborgum og miðað sé við
sölu á fyrrnefndum 390 tonnum í ár.
Kynnast raunverulegu skyri
„Bretland er á margan hátt mjög
áhugaverður markaður,“ segir Jón
Axel. „Í Finnlandi seldum við um
5.200 tonn í fyrra á um fimm milljón
manna markaði, en í Bretlandi búa
um 50 milljónir. Ef við náum því að
selja fjögur þúsund tonn af skyri í
Bretlandi á næstu árum er það að-
eins um 0,25% markaðshlutdeild í
svokölluðum jógúrt-vörum. Sendi-
ráðið í London verður okkur innan
handar við kynningu sem haldin
verður þar 4. febrúar nk. og kunn-
um við hjá MS sendiráðinu bestu
þakkir fyrir þá aðstoð sem við fáum
hjá því.
Arla er fyrir á markaðnum í Bret-
landi með sína vöru, sem þeir kalla
skyr og hafa reynt að telja Bretum
trú um að þeirra vara sé frá Íslandi
með myndefni og öðrum tengingum
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Íslenskt skyr frá Mjólkursamsöl-
unni verður á boðstólum í yfir 200
Waitrose-verslunum í Bretlandi frá
8. febrúar. Skyrið
verður framleitt
hér á landi úr ís-
lenskri mjólk og
verður 390 tonna
tollfrjáls inn-
flutningskvóti til
Evrópusam-
bandsins nýttur í
verkefnið. Sam-
kvæmt samn-
ingum sem gerðir
hafa verið í Bret-
landi fæst fullt verð fyrir íslensku
afurðirnar eins og verið væri að
selja innanlands.
Jón Axel Pétursson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
MS, segir að Waitrose-verslana-
keðjan sé með um 380 verslanir í
Bretlandi. Einkum sé höfðað til bet-
ur borgandi viðskiptavina og boðið
Skyr fyrir Englendinga Umbúðir um þrjár tegundir af skyri eins og þær líta út í verslunum Waitrose-keðjunnar.
Íslenskt skyr í hillur
200 enskra verslana
Framleitt hér fyrir Waitrose Áhugaverður markaður
Jón Axel
Pétursson
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
(SHS) hefur frá því á síðasta ári get-
að gert mun markvissari kröfur en
áður um úrbætur eldvarna í ólögleg-
um íbúðum, sem er að finna í at-
vinnuhúsnæði víða á höfuðborgar-
svæðinu, að sögn Bjarna
Kjartanssonar, sviðsstjóra hjá SHS.
Hann á von á að ástand eldvarna í
þessum húsum muni batna á næst-
unni í kjölfar verklagsbreytinga og
aukinna heimilda sem slökkvilið hef-
ur fengið til að krefjast þess að full-
nægjandi eldvarnir og aðrar úrbæt-
ur séu gerðar í þessum byggingum.
Svokölluðum óleyfisíbúðum í at-
vinnuhúsnæði hefur fjölgað mikið og
fann slökkviliðið t.a.m. 207 slík hús á
árinu 2014. Í seinustu viku var
slökkvilið kallað út vegna eldsvoða á
tveimur stöðum með stuttu millibili
og var eldur í iðnaðarhúsnæði í öðru
tilvikinu þar sem óttast var að fólk
byggi þar. Sú var þó ekki raunin
heldur var þar aðstaða sem listamað-
ur hafði afnot af.
Geta beitt dagsektum
Bjarni segir að átaksverkefni til
að kortleggja þessar óleyfisíbúðir og
gefa svo út skýrslur í kjölfarið hafi
lagst af og í staðinn hafi SHS fengið
verkfæri í hendur til að skoða
ástandið í þessum byggingum eftir
því sem þær detta í net eftirlitsins og
geti nú gert ákveðnar kröfur, að við-
lögðum dagsektum, um úrbætur án
þess að í því felist nein viðurkenning
á búsetu í viðkomandi húsnæði.
„Vandamálið við svona óleyfisíbúðir
hefur verið að ef gerðar eru kröfur
um lagfæringar þá felist í því ákveð-
in viðurkenning á tilvist þeirra,“ seg-
ir hann. Nú hafi öll aðildarsveitar-
félögin samþykkt að SHS geti sent
eigendum viðkomandi húsnæðis bréf
sem samið var af lögfræðingi og gert
kröfur um úrbætur með allskonar
fyrirvörum án þess að það feli í sér
viðurkenningu til eigandans gagn-
vart skipulagsskilmálum sveitarfé-
lagsins um íbúðir í húsinu.
Að sögn hans er það algert ör-
þrifaráð ef þarf að loka viðkomandi
húsnæði því það kemur verst við
íbúana sjálfa sem lenda á götunni.
Lokanir leysi ekki þetta sé félagslegt
og efnahagslegt vandamál. „Af þess-
ari ástæðu er það ákaflega kærkom-
ið að hafa fengið þessa heimild og er
það gert í góðu samstarfi við sveit-
arfélögin og þau upplýst um það sem
við finnum. þetta þýðir líka að við
getum eldvarnarlega séð híft við-
komandi húsnæði upp á það plan
sem reglur segja fyrir um.“
Markvissari kröfur
um úrbætur eldvarna
Nýtt verklag SHS vegna ólöglegra íbúða í atvinnuhúsnæði
Morgunblaðið/Eggert
Slökkvistörf Slökkviliðið að störfum við atvinnuhúsnæði í Reykjavík í sein-
ustu viku. Óttast var um tíma að íbúar væru inni en sú var þó ekki raunin.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Samtals sóttu 26.985 Íslendingar
um miða á Evrópumótið í knatt-
spyrnu í Frakklandi í sumar, en það
nemur 8,15% af íslensku þjóðinni.
Alls stóðu um 34 þúsund miðar Ís-
lendingum til boða fyrir keppnina
og því ljóst að landinn mun ekki
nýta um sjö þúsund miða sem Ís-
land fékk úthlutaða. Verða þeir
boðnir andstæðingum Íslands
hverju sinni.
9.500 sóttu um á þremur tímum
Um klukkan átta í gærmorgun
höfðu Íslendingar sótt um u.þ.b.
17.500 miða en fyrir helgi höfðu
þeir sótt um u.þ.b. 10 þúsund miða.
Því er ljóst að gríðarlegt magn um-
sókna hefur bor-
ist á síðustu dög-
um og klukku-
stundum áður en
fresturinn rann
út.
Samkvæmt
upplýsingum frá
KSÍ höfðu klukk-
an átta í gær-
morgun borist
6.000 umsóknir
um miða á leikinn gegn Portúgal
hinn 14. júní, um 6.000 umsóknir á
leikinn gegn Ungverjum 18. júní og
um 5.500 á leikinn gegn Austurríki
22. júní.
Eftir það bárust um 9.500 um-
sóknir á þeim þremur tímum sem
liðu þar til umsóknarfresturinn
rann út klukkan 11 í gærmorgun.
Umsóknasprenging
á síðustu stundu
Miðar Tæplega 27
þúsund sóttu um.
Hin árlega læknaráðstefna,
Læknadagar, var sett í Hörpu í
gær með pomp og prakt. Grínist-
inn Frímann Gunnarsson, leikinn
af Gunnari Hanssyni, mætti sem
leynigestur og rýndi í helstu per-
sónueinkenni læknastéttarinnar og
þá sérstaklega það sem kallað hef-
ur verið „besservisserinn“.
Ráðstefnan stendur yfir til
föstudags og er hver dagur með
þétta dagskrá. Ráðstefnugestir eru
um þúsund talsins eins og síðustu
ár og eru þeir flestir læknar. Ráð-
stefnan er með nokkuð hefð-
bundnu sniði í ár, en að venju var
fyrsti dagurinn helgaður ákveðnu
þema og í ár voru það heimilis-
lækningar og hagnýtar héraðs-
lækningar. Þar var í fyrirlestrum
lögð áhersla á hlutverk hins al-
menna læknis sem starfar í dreif-
býli og smærri þéttbýlisstöðum
þar sem sérhæfður stuðningur er
minni en á stærri stöðum.
Meðal fyrirlestraefna næstu
daga er „Mæðradauði á Íslandi
1760-1859“, „Skynsamleg ávísun
sýklalyfja á Íslandi“, „Almennar
bólusetningar: Staðan í dag og
tækifæri til framtíðar?“, „Endur-
lífgun á nýburum og eldri börnum
(vinnubúðir)“ og „Fæddur í röng-
um líkama – um transfólk“.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Læknadagar Gestir skemmtu sér vel í Hörpu í gær. Frímann Gunnarsson
klappaði duglega fyrir ræðumönnum og átti óvænta innkomu í salinn.
Læknadagar 2016
settir í Hörpu
Frímann Gunnarsson leynigestur