Morgunblaðið - 19.01.2016, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.01.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016 Alltaf feti framar gómsætur feti í salatið ogmeðmatnum Heildarskatttekjur hins op-inbera voru 35% af lands- framleiðslu hér á landi árið 2014. Með þessu háa hlutfalli sláum við út nánast allar þær þjóðir sem við vilj- um bera okkur sam- an við.    Í Svíþjóð, semseint verður tal- in skattaparadís, er hlutfallið til dæmis „aðeins“ 33% og í Finnlandi 31%. Þetta er meðal þess sem fram kom í athyglisverðu erindi Ásdísar Krist- jánsdóttur hagfræðings á skatta- degi Deloitte, Viðskiptaráðs og SA.    Þar kom einnig fram að í staðþess að nota tækifærið og lækka skatta þegar skatttekjur fóru að aukast með betri tíð, hafi tekjuaukanum verið varið í aukin útgjöld.    Nú sé svo komið að skatttekjurhins opinbera nálgist það sem mest var fyrir fall bankanna og þær séu ekki aðeins háar í sögulegum samanburði heldur einnig miðað við önnur lönd.    Skattar á fyrirtæki, án áhrifaþrotabúa og tryggingagjalds, eru 4,9% af landsframleiðslu hér á landi, sem er meira en þekkist ann- ars staðar. Í OECD-ríkjunum er meðaltalið 3%.    Þetta eru ískyggilegar tölur ognauðsynlegt að þegar í stað verði ráðist í umfangsmiklar skattalækkanir til að forða þeim af- leiðingum sem þetta mun ella hafa á fyrirtæki landsins og allan al- menning.    Samkvæmt fréttum þá er vinstristjórnin farin frá og sjálfsagt er að skattarnir hennar fari einnig. Ásdís Kristjánsdóttir Met sem engan langar að slá STAKSTEINAR Veður víða um heim 18.1., kl. 18.00 Reykjavík 0 skýjað Bolungarvík -1 alskýjað Akureyri -10 skýjað Nuuk 2 skýjað Þórshöfn 0 skýjað Ósló -16 skýjað Kaupmannahöfn 0 skýjað Stokkhólmur -7 léttskýjað Helsinki -12 snjókoma Lúxemborg -3 skýjað Brussel -2 heiðskírt Dublin 7 alskýjað Glasgow 1 súld London 2 léttskýjað París -1 heiðskírt Amsterdam -2 heiðskírt Hamborg -2 skýjað Berlín -5 léttskýjað Vín -1 léttskýjað Moskva -11 heiðskírt Algarve 17 léttskýjað Madríd 11 skýjað Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 15 heiðskírt Róm 5 heiðskírt Aþena 5 skýjað Winnipeg -22 snjókoma Montreal -7 snjókoma New York -4 heiðskírt Chicago -16 léttskýjað Orlando 12 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 19. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:47 16:31 ÍSAFJÖRÐUR 11:16 16:12 SIGLUFJÖRÐUR 10:59 15:54 DJÚPIVOGUR 10:22 15:55 Matthías Páll Ims- land hefur verið ráðinn aðstoðar- maður Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar for- sætisráðherra. Undanfarið ár hef- ur Matthías starf- að sem aðstoðar- maður Eyglóar Harðardóttur fé- lagsmálaráðherra. Verkefni Matthías- ar í forsætisráðuneytinu verða meðal annars á sviði stefnumörkunar og samræmingar til að styðja við for- gangsverkefni ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra hefur haft einn aðstoðarmann, Jóhannes Þór Skúla- son, frá því að Ásmundur Einar Daða- son lét af starfi aðstoðarmanns á síð- asta ári. Með ráðningu Matthíasar verða að- stoðarmennirnir aftur tveir. Áður vann Matthías sem ráðgjafi fyrir er- lend fyrirtæki á sviði framtaksfjárfest- inga. Þar áður var hann framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs flugfélagsins WOW-air og fyrir stofnun þess var hann forstjóri Iceland Express. Fer yfir í forsætis- ráðuneytið  Aðstoðaði áður félagsmálaráðherra Matthías Páll Imsland Íslendingar veiddu á síðasta ári 42.626 tonn af norsk-íslenskri síld. Þetta er minnsti afli íslenskra skipa úr stofninum síðan 1994 eða í rúm 20 ár. Mest af aflanum var veitt í íslenskri lögsögu eða 39.119 tonn (91,8% aflans). Í færeyskri lögsögu veiddust 3.088 t. og á alþjóðlegu hafsvæði 419 t. Aflamark íslenskra skipa í norsk-íslenskri síld 2015 var rúmlega 45 þúsund tonn en verður litlu meira á þessu ári eða rétt tæplega 48 þúsund tonn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfir- liti Fiskistofu yfir afla í deilistofnum 2015. Makrílafli íslenskra skipa var á síðasta ári 169.336 tonn en var árið áður 173.560 tonn. Af þessum afla voru 148.280 tonn fengin úr íslenskri lögsögu eða 87,6 % aflans. Makrílafli íslenskra skipa á alþjóðlegu hafsvæði var 19.507 tonn og afli í færeyskri lögsögu nam 1.549 tonnum. 34 þúsund tonn úr íslenskri lögsögu Á síðasta ári veiddu íslensk skip 214.890 tonn af kolmunna. Þetta er mesti ársafli íslenskra skipa af tegundinni síðan 2007. Aflamark íslenskra skipa í kolmunna á þessu ári er 139.021 þúsund tonn sam- anborið við 212.913 tonn í fyrra. Í fyrra veiddust tæplega 180 þúsund tonn af kolmunna í færeyskri lögsögu og 34 þúsund tonn í íslenskri. Afli í úthafskarfa hefur aldrei verið minni síðan íslensk skip hófu beina sókn í úthafskarfa á Reykjaneshrygg. Á síðustu vertíð veiddu þau 2.128 tonn samanborið við 2.436 tonn árið áður. Aflamark íslenskra skipa á nýliðnu ári var 3.244 tonn. Aflamarkið í ár er 2.614 tonn. Á síðasta ára- tug síðustu aldar fór karfaafli íslensku skipanna á Reykjaneshrygg oft yfir 40 þúsund tonn. Aflinn síðustu ár hefur því aðeins verið svipur hjá sjón frá því sem var þegar mest veiddist. aij@mbl.is Minna af norsk-íslenskri síld en í 21 ár  Mikill makríl- og kolmunnaafli íslenskra skipa í fyrra  Úthafskarfinn í lægð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.