Morgunblaðið - 19.01.2016, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sautján lögreglumenn af báðum
kynjum hafa kvartað til Lands-
sambands lögreglumanna (LL)
undanfarnar vik-
ur vegna vanda-
mála innan emb-
ættis Lögreglu
höfuðborgar-
svæðisins (LRH).
„Við bíðum
eftir fundi með
lögreglustjór-
anum,“ sagði
Snorri Magn-
ússon, formaður
LL. „Fundurinn
verður fyrst og fremst farvegur
fyrir kvartanirnar, að svo miklu
leyti sem lögreglustjóra er ekki nú
þegar kunnugt um þær. Vonandi
leiðir hann til þess að leitað verði
lausna á vandanum sem við blasir.
Það er ljóst að það þarf að vinna úr
honum.“
Fundartími hafði ekki verið
ákveðinn í gær og sagði Snorri að
LL þrýsti á um fund. Hins vegar
hefði reynst erfitt að finna fund-
artíma sem öllum hentaði, enda
væri fólk önnum kafið. Hann
kvaðst vona að hægt yrði að halda
fundinn í þessari viku.
Lögreglumennirnir sem hafa
kvartað eru allir í fullri vinnu og
gegna sínum störfum. Snorri sagði
að talsverður samhljómur væri í
kvörtununum. „Þetta myndi vænt-
anlega flokkast undir einhvers kon-
ar samskiptavanda, án þess að ég
vilji fara nánar út í það,“ sagði
Snorri.
Fram kom í frétt Ríkisútvarpsins
í síðustu viku að formaður Lög-
reglufélags Reykjavíkur kannaðist
ekki við óánægju með starfshætti
lögreglustjórans eða deilur innan
embættisins. Hvers vegna leita lög-
reglumenn ekki til þess félags en
kvarta við landssambandið?
„Landssambandið er stéttarfélag
allra lögreglumanna í landinu. Að
því er einstaklingsaðild. Lögreglu-
félögin eru ekki stéttarfélög og fara
þar af leiðandi ekki með þau mál-
efni lögreglumanna eins og lands-
sambandinu er ætlað lögum sam-
kvæmt. Það kann að vera hluti
skýringarinnar. Ég veit ekki hvort
aðrar ástæður liggja þar að baki,“
sagði Snorri.
Ekki að gerast í fyrsta sinn
En hve alvarleg er óánægjan að
hans mati?
„Við höfum séð svona áður. Það
eru kannski 4-5 ár síðan fjölmennir
fundir lögreglumanna á höfuðborg-
arsvæðinu lýstu yfir vantrausti á
þáverandi lögreglustjóra í tvígang,
að mig minnir,“ sagði Snorri. „Sam-
skiptavandi hefur verið viðloðandi
embætti LRH og forvera þess
lengi. Landssambandið hefur
margítrekað bent á þetta. Það hafa
verið stöðugar skipulagsbreytingar
hjá embætti LRH frá því að lög-
regluembættin í Reykjavík, Kópa-
vogi og Hafnarfirði voru samein-
uð.“
Snorri sagði lögreglumenn vera
undir miklu álagi, sama hvar á
landinu og í starfsstiganum þeir
væru. Linnulaust hefði verið skorið
niður til lögreglumála.
„Við höfum margítrekað varað
við þessu, meðal annars í umsögn-
um okkar til allsherjarnefndar Al-
þingis um skipulagsbreytingar inn-
an lögreglunnar. Óánægjan nú er
að hluta ný og að hluta uppsöfnuð
breytingaþreyta, leiði og reiði,“
sagði Snorri. Hann sagði að
óánægjan tengdist ef til vill per-
sónu núverandi lögreglustjóra LRH
að einhverju leyti, en að stórum
hluta hefði óánægjan safnast upp á
löngum tíma. Snorri sagði að innan-
ríkisráðuneytinu, sem er ráðuneyti
löggæslumála, hefði lengi verið
kunnugt um vandann innan LRH
og það löngu fyrir komu núverandi
lögreglustjóra í embættið.
Snorri kvaðst hafa heyrt af lög-
reglumönnum á höfuðborgarsvæð-
inu sem hugleiddu að láta nú af
störfum vegna óánægju með
ástandið. Hann kvaðst hafa heyrt
slíkar hugleiðingar óánægðra lög-
reglumanna áður en núverandi lög-
reglustjóri tók við embætti. Auknar
fjárveitingar til lögreglunnar gætu
leyst vandann að einhverju leyti og
létt álagið með fjölgun starfandi
lögreglumanna.
Snorri minnti á að komið hefði
fram að það vantaði að minnsta
kosti 200 lögreglumenn til starfa á
landinu öllu til að mæta raunveru-
legri þörf fyrir lögreglumenn.
Langvarandi óánægja
Formaður Landssambands lögreglumanna vonast eftir
fundi með lögreglustjóra LRH í þessari viku Vill ræða
kvartanir lögreglumanna og leita lausna á vandanum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lögreglumenn Sautján lögreglumenn hafa kvartað til Landssambands lög-
reglumanna vegna ástandsins innan LRH. Myndin er úr myndasafni.
Snorri
Magnússon
„VAR HJARÐHEGÐUN
REGLAN HJÁ
LÍFEYRISSJÓÐUNUM?“
„ERU HAGSMUNIR LÍFEYRIS-
SJÓÐANNA ÞEIR SÖMU
OG EINSTAKLINGANNA
SEM SITJA ÞAR
Í STJÓRNUM?“
Morgunverðarfundur á Hótel Sögu
Radisson Blu (Katla),
fimmtud. 21. janúar, kl. 8-10.30
„KEYPTU
LÍFEYRISSJÓÐIRNIR
ALLTAF Í SÖMU
HLUTAFÉLÖGUNUM?“
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Halldór Valur Pálsson hefur verið
skipaður forstöðumaður fangelsisins
á Litla-Hrauni og fangelsisins á
Sogni. Halldór starfaði fyrst á Litla-
Hrauni árið 2004 og hefur í heild
starfað í um tvö ár í fangelsinu sem
fangavörður.
Halldór segir í
samtali við Morg-
unblaðið að ein-
hverjar áherslu-
breytingar fylgi
ávallt nýju fólki
en hann vildi þó
ekki tjá sig um
þær þegar eftir
því var leitað.
„Eflaust mun
maður leggja áherslu á einhverja til-
tekna hluti til að byrja með, en það
þarf bara að skoða það áður en ég
byrja. Nú fæ ég smátíma til að velta
þessu fyrir mér,“ segir Halldór, sem
mun hefja störf 10. febrúar nk. Tek-
ur hann við starfinu af Margréti Frí-
mannsdóttur. „Ég mun einbeita mér
að því að framfylgja markmiðum
stofnunarinnar. Við höfum öll sama
markmið, sama á hvaða starfsstöð
við erum í fangelsismálakerfinu,“
segir Halldór.
Halldór er 35 ára og menntaður
stjórnmálafræðingur. „Þetta leggst
mjög vel í mig. Ég þekki starfið og
starfsumhverfið mjög vel enda búinn
að vera viðloðandi þessi mál í langan
tíma. Ég þekki bæði starfsfólkið og
staðinn vel. Það eru næg verkefni
framundan sem ég hakka til að tak-
ast á við,“ segir Halldór og bætir því
við að hann hafi margar hugmyndir
sem hann hlakki til að framkvæma.
Fram kemur á vef Fangelsismála-
stofnunar, fangelsi.is, að Halldór
hafi starfað hjá stofnuninni frá árinu
2004, síðast sem öryggisstjóri. Hann
hefur tekið þátt í mörgum verkefn-
um hjá stofnuninni á þessum tíma og
er sagður hafa yfirgripsmikla þekk-
ingu á fangelsismálum og verkefnum
stofnunarinnar.
Halldór Valur hefur borið ábyrgð
á rekstri samfélagsþjónustu, umsjón
og innleiðingu rafræns eftirlits, fjöl-
mörgum verkefnum á sviði öryggis-
mála innan fangelsanna, umsjón með
dags- og skammtímaleyfum fanga og
viðbragðsáætlanagerð. Þá hefur
hann sinnt kennslu í Fangavarða-
skólanum og tekið þátt í norrænu
samstarfi á sviði fangelsismála.
Halldór Valur hefur setið í vinnu-
hópum vegna þarfagreiningar og
hönnunar nýs fangelsis á Hólms-
heiði, verið ráðgjafi dómnefnda í
samkeppni um hönnun þess, verið
fulltrúi stofnunarinnar í verkefninu
á byggingartíma og komið að fleiri
uppbyggingarverkefnum í fangelsis-
kerfinu á undanförnum árum.
Að auki hefur Halldór starfað inn-
an stéttarfélaga og verið formaður
íslenskra félagsvísindamanna. Á
Litla-Hrauni starfa um 50 manns og
þar af eru um 40 fangaverðir. Pláss
er fyrir 88 fanga í fangelsinu.
Halldór Valur forstöðu-
maður á Litla-Hrauni
Hóf störf í fangelsinu árið 2004 „Leggst mjög vel í mig“
Morgunblaðið/Ómar
Litla-Hraun Halldór hefur störf
hinn 10. febrúar næstkomandi.
Halldór Valur
Pálsson
Landsnet hefur samið við Íslenska
aðalverktaka um undirbúnings-
vinnu vegna byggingar Suðurnesja-
línu 2, 220 kílóvolta (kV) háspennu-
línu frá Hraunhellu í Hafnarfirði að
Rauðamel norðan Svartsengis.
Þetta kemur fram í frétt á vef
Landsnets.
Verkið felst í stórum dráttum í
slóðagerð, jarðvinnu og byggingu
undirstaðna en línuleiðin er rúmir
32 kílómetrar og verða möstrin alls
100 talsins. Undirbúningsvinnan
hefst um leið og aðstæður leyfa og
skal verkinu að fullu lokið fyrir
septemberlok 2016. Áformað er að
reisa línuna sumarið 2017 og teng-
ingu ljúki á því ári. Undirbúnings-
vinna vegna Suðurnesjalínu 2 var
boðin út í september 2015. Sjö buðu
í verkið og átti ÍAV lægsta tilboðið
að upphæð tæplega 320 milljónir
kr. en kostnaðaráætlun Landsnets
var upp á tæplega 390 milljónir.
Landsnet semur við ÍAV um undirbúnings-
vinnu vegna byggingar Suðurnesjalínu 2
Morgunblaðið/ÞÖK
Raflínur Suðurnesjalína 2 er umdeild.