Morgunblaðið - 19.01.2016, Blaðsíða 21
sokknir í gömlu lögin, tíminn
hefur færst aftur um ríflega
hálfa öld.
Fyrir hönd okkar systkinanna
votta ég Auði, börnunum og fjöl-
skyldum þeirra einlæga samúð.
Jóna Dóra Óskarsdóttir.
Það var haustið 1986 að fund-
um okkar Þórs bar fyrst saman á
Íslandi. Hann tók á móti mér í
Hátúni, jarpur á hár og bros-
mildur, nefið nokkuð hátt.
Grannur, íþróttamannslega vax-
inn og kvikur í hreyfingum. Ljúf-
mennskan uppmáluð, en ég man
hvað mér fannst hann vera gam-
all. Eftir það yngdist Þór bara
með árunum í mínum huga og ég
lærði af og kynntist þessum
mannkostamanni, sem var fædd-
ur og uppalinn í Hjaltastaða-
þinghá, fannst eitt mesta fram-
faraskrefið í uppvextinum vera
stígvélin sem héldu barnsfótum
þurrum og þótti fjöllin sem um-
lykja Reykjavík aldrei vera í
réttri átt.
Sjálflærður á orgel og drag-
spil og músíkalskur fram í fing-
urgóma, nokkuð sem hann hefur
gefið börnum sínum í arf og við
samstarfsmenn hans nutum af á
jólum og tyllidögum þegar harm-
onikkan var dregin fram og Þór
spilaði undir og söng.
Þór var frumkvöðull og forvíg-
ismaður öldrunarlækninga á Ís-
landi og annt um velferð aldr-
aðra.
Hann var félagslyndur og tók
þátt í uppbyggingu öldrunar-
lækninga sem yfirlæknir við
öldrunarlækningadeild Land-
spítalans í Hátúni í Reykjavík.
Hann var kallaður til stjórnar-
setu í fjölmörgum félögum, m.a.
Reykjavíkurdeild Rauða kross-
ins. Þór var maður samvinnu og
hvatamaður um teymisvinnu og
var þar nokkuð á undan sinni
samtíð.
Ég man hans góða skap og
stuðning við okkur ungu sér-
fræðingana, sem einn og einn
tíndust til landsins, ætíð
reiðubúinn til að aðstoða, en
kunni þá list að gefa ungu fólki
rými til athafna.
Ég veit að elliárin urðu honum
og glæsilegri eiginkonu hans,
Auði, gjöful, en þau nýttu tímann
vel, meðal annars til ferðalaga og
gerðu víðreist.
Við Hjördís þökkum góða
samfylgd og biðjum Auði og fjöl-
skyldunni blessunar.
Jón Eyjólfur Jónsson.
Látinn er í Reykjavík Þór
Halldórsson læknir á 87. aldurs-
ári.
Það er margs að minnast í
samskiptum við Þór Halldórsson
eftir meira en hálfrar aldar
kynni. Hann var einstaklega hlý
og viðfelldin persóna með góða
nærvist, vinsæll og virtur meðal
vina og vandamanna sem og á
sínu fræðasviði, en hann var sér-
fræðingur á sviði nýrnalækninga
sem og öldrunarlækninga. Því
síðarnefnda sinnti hann einkum
hin síðari ár starfsævinnar.
Hann var hugsjónamaður í víð-
um skilningi, ekki sízt í fræði-
grein sinni, og hafði þar eitt og
annað til mála að leggja þótt ekki
hafi alltaf verið almennur sam-
hljómur um áherzlur hans. Hug-
sjón hans var þó jafnan fyrst og
fremst sú að búa hinum öldruðu
skaplegt ævikvöld. Hann var
einnig hugsjónamaður á sviði
náttúruverndar og einlægur
náttúruvinur, vinur láðs, lagar
og óspilltra víðerna, fugla lofts-
ins og smávina foldar. Hann var
talsmaður samhjálpar og sam-
vinnu en framabrölt efnis-
hyggjumannsins var honum síð-
ur að skapi.
Þór var fjölgáfaður maður og
mörgum hæfileikum búinn.
Hann hafði einstaka kímnigáfu,
sem vinir hans nutu ríkulega á
góðum stundum. Minni hans var
óvenjulegt og hafði hann á tak-
teinum heilu kvæðabálkana án
þess að framsögnin skjöplaðist.
Sögumaður var hann frábær og
frásagnarlistin honum í blóð bor-
in. Hann var laghentur maður og
ýmiss konar handverk fórst hon-
um vel úr hendi. Hann hafði list-
rænt auga og var góður mynda-
smiður. Tónlistarhæfileikum
hans var við brugðið og lék hann
af fingrum fram á píanó og drag-
spil nánast hvaða tónlist sem
var. Hann var víðlesinn í heims-
bókmenntum og einlægur aðdá-
andi hinna mestu skáldjöfra. Það
hlýtur að teljast óvenjulegt að
svo margir góðir hæfileikar skuli
hafa búið í einum manni.
Ævikvöldið var Þór og hans
nánustu erfitt en aðdáunarvert
hvernig fjölskylda hans brást við
stigvaxandi minnisglöpum, sem
hrjáðu öldrunarlækninn á ofan-
verðri ævi. Ætla má að fráfall
hans hafi því verið lausn og léttir
fyrir hann og þá sem honum
stóðu næst.
Við lok vegferðar er ljúft að
minnast samverustundanna fjöl-
mörgu, hinna ljúfu kynna og hins
milda fass, glaðværðar hans og
umhyggju um áratuga skeið. Á
þessum tímamótum eru okkur
efst í huga þakkir til ljúflingsins
Þórs Halldórssonar og fjöl-
skyldu hans fyrir áratuga ómet-
anlega vináttu. Blessuð sé minn-
ing hans.
Björg Gunnlaugsdóttir,
Sverrir Ólafsson.
Ungur félagsráðgjafi nýkom-
inn heim frá námi í Svíþjóð mæt-
ir til starfa á öldrunarlækninga-
deild Landspítalans í Hátúni.
Yfirlæknir deildarinnar tekur á
móti henni og félagsráðgjafinn
hrífst af áhuga hans og staðfestu
varðandi betri öldrunarþjónustu.
Þannig hófst samstarf okkar
Þórs árið 1979, en við unnum
saman á vettvangi öldrunar- og
félagsmála í rúma tvo áratugi.
Þór var frumherji á sviði sam-
hæfðrar þjónustu við aldraða á
Íslandi. Hann beitti sér fyrir
stofnun öldrunarlækningadeild-
ar Landspítalans og var yfir-
læknir hennar frá stofnun 1975
og þar til deildin var sameinuð
Landakoti 1998. Á þessum árum
vann hann ötullega að betra
skipulagi öldrunarþjónustu og
var m.a. frumkvöðull að vistun-
armati aldraðra sem tryggja átti
að þeir sem væru í mestri þörf
fengju aðstoð. Hann lagði ríka
áherslu á meira samstarf allra
þeirra sem koma að þjónustu við
eldra fólk og kom á fót sam-
starfshópi öldrunarlækninga-
deildarinnar, heimahjúkrunar og
heimilishjálpar til að tryggja
sem besta þjónustu. Hann lagði
áherslu á teymisvinnu fagfólks
sem á þeim tíma var ekki eins
sjálfsagt og þykir í dag. Þór var
einn af stofnendum Öldrunar-
fræðafélags Íslands og var í
fjölda ára fulltrúi Íslands í sam-
tökum norrænna öldrunarfræða-
félaga.
Ég naut þeirra forréttinda að
vinna með Þór að fjölmörgum
verkefnum á vegum Rauða kross
Íslands. Hann starfaði sem sjálf-
boðaliði Rauða krossins í tugi
ára, sat í stjórn Reykjavíkur-
deildar RKÍ frá 1984 og var for-
maður hennar frá 1993 til 2001.
Hann sat einnig í stjórn Rauða
kross Íslands. Á þessum tíma
unnum við m.a. að því að að setja
á stofn Múlabæ, Hlíðabæ, Fol-
dabæ og Skógarbæ, sem eru da-
gathvörf og heimili fyrir aldraða
sem Reykjavíkurdeild Rauða
kross Íslands ásamt öðrum kom
á fót.
Þór var einstakur maður,
fróður og fylginn sér ef hann
trúði á málstaðinn. Hann spilaði
á mörg hljóðfæri og var hrókur
alls fagnaðar hvar sem hann
kom. Ég minnist skemmtilegra
samverustunda bæði hérlendis
og erlendis þar sem hann flutti
ræður fyrir hönd okkar Íslend-
inganna og spilaði og söng fyrir
gesti.
Hann var réttsýnn og styðj-
andi yfirmaður, góður samherji
og lærifaðir. Hann hafði mikil
áhrif á mig sem fagmann og síð-
ar fræðimann á sviði öldrunar-
mála. Ég þakka kærum vini og
mentor fyrir samfylgdina. Ég
votta Auði og fjölskyldunni inni-
lega samúð mína.
Blessuð sé minning Þórs Hall-
dórssonar.
Sigurveig H. Sigurðardóttir.
Fleiri minningargreinar
um Þór Halldórsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir
mín, tengdamóðir okkar og systir,
ÞÓRHALLA DRÖFN
SIGBJÖRNSDÓTTIR,
til heimilis í Noregi,
lést á sjúkrahúsi í Bergen í Noregi
12. janúar síðastliðinn.
.
Hallgrímur Már Jónasson
og fjölskylda.
Elskuleg móðir okkar, amma og langamma,
INGIBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR
handavinnukennari,
áður til heimilis að Efstasundi 93,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
föstudaginn 15. janúar síðastliðinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
.
Þórður H. Ólafsson,
Helga María Ólafsdóttir,
Ingibjörg Þórðardóttir,
Ólafur Ágúst Axelsson,
Ragnhildur Þórðardóttir,
Anna María Axelsdóttir
og barnabarnabörn.
Elsku systir okkar, mágkona og frænka,
TÓMASÍNA EINARSDÓTTIR,
er látin. Útförin fór fram í kyrrþey
14. janúar síðastliðinn.
.
Óskar Einarsson,
Vilhelmína Þ. Einarsdóttir, Björn J. Björnsson
og systkinabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ÞORGERÐAR ÞORGEIRSDÓTTUR
hússtjórnarkennara.
.
Magnús Gíslason, Guðrún Halldórsdóttir,
Rósa Gísladóttir, Þórhallur Eyþórsson,
Gísli Magnússon,
Vilborg Magnúsdóttir,
Þorgerður Þórhallsdóttir,
Helga Gunndís Þórhallsdóttir,
Guðrún Sigríður Þórhallsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SNJÓLAUGUR ÞORKELSSON
húsasmíðameistari og
framhaldsskólakennari,
Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili,
Akranesi,
sem lést 11. janúar síðastliðinn, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju föstudaginn 22. janúar klukkan 14.
.
Jónína Björg Halldórsdóttir,
Halldór U. Snjólaugsson, Jónína G. Óskarsdóttir,
Ástþór A. Snjólaugsson,
Katrín E. Snjólaugsdóttir, Jón Guðmundsson,
Ásberg, Auðunn,
Snjólaugur Ingi, Jónína Björg,
Sonja Ósk, Ívar Hrafn,
Ásta Sóley og Íris Petra.
Hugheilar þakkir fyrir veitta samúð og hlýju
við andlát og útför dóttur, eiginkonu, móður
og ömmu okkar,
DR. SÖLVÍNU KONRÁÐS,
Hrísholti 7, Garðabæ,
sem lést á heimili sínu þann 24. desember
síðastliðinn.
.
Ásta Karlsdóttir,
Garðar Garðarsson,
Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir,
Ragna Benedikta Garðarsdóttir
og dætrasynir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
BERGUR SIGURÐSSON
vélstjóri,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði síðastliðinn
sunnudag.
.
Tilda Preble,
Elías Bergsson,
Rakel Bergsdóttir,
Fannar Þór Bergsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GARÐAR SVEINSSON,
Herjólfsgötu 38, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi þann 8. janúar síðastliðinn.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
.
Lára Ágústsdóttir,
Unnur Garðarsdóttir, Kristinn Daníelsson
Gústav Garðarsson, Anna Kristín Jóhannesdóttir
Sigurlaug Garðarsdóttir, Bjarnfreður Ármannsson
Sveinn Garðar Garðarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför
VALGEIRS SIGURÐSSONAR
rithöfundar.
Guð blessi ykkur öll.
.
Sigríður Einars Sveinsdóttir,
Þórný Perrot,
Sveinn Valgeirsson, Ásdís Elín Auðunsdóttir,
Ragnar Sveinsson, Ingibjörg Gylfadóttir,
Sigurgeir Sveinsson.
Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns,
föður og tengdaföður,
ÞORSTEINS ÞORSTEINSSONAR,
Sléttuvegi 13, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sólteigs á
Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða
umönnun og hlýju.
.
Helga Hansdóttir,
Guðrún Þorsteinsdóttir, Friðrik G. Olgeirsson,
Sigrún Þorsteinsdóttir, Brynjólfur Markússon,
Hans Ragnar Þorsteinsson, Helga Laufdal,
Sveinn Þorsteinsson, Heiða Lára Eggertsdóttir.