Morgunblaðið - 19.01.2016, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 2016
Árvakur leitar að duglegum
einstaklingum í 50% hlutastarf.
Um er að ræða dreifingu á höfuðborgarsvæðinu. Vinnutíminn er
3-4 tímar í senn, sex daga vikunnar og að mestu í næturvinnu.
Góðir tekjumöguleikar og fín hreyfing fyrir duglegt fólk.
Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára og hafa bíl til umráða.
Umsóknir er hægt að fylla út á mbl.is, neðst á forsíðu.
Á umsóknareyðublaðinu skal tiltaka dreifingu þegar spurt
er um ástæðu umsóknar. Einnig er hægt að skila inn umsókn
merktri starfsmannahaldi í afgreiðslu Morgunblaðsins
í Hádegismóum 2.
Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við
dreifingarstjóra Árvakurs, Örn Þórisson
í síma 569-1356 eða á ornthor@mbl.is
Aukavinna
fyrir orkubolta
Þegar tilkynnt var í gær um styrki
menningar- og ferðamálaráðs
Reykjavíkurborgar kom í ljós að
hæsta styrkinn hlýtur Heimili kvik-
myndanna – Bíó Paradís, 12,5 millj-
ónir króna í ár og 2017. Nýlistasafn-
ið fær 9,5 milljónir og þá eru RIFF
og Hinsegin dagar styrkt um fimm
milljónir króna hvort úr Borgar-
hátíðasjóði næstu þrjú árin. Kling og
Bang galleríið hlýtur 4,5 milljónir,
Reykjavík Dance Festival og leik-
listarhátíðin Lókal þrjár milljónir
króna árlega hvor úr Borgarhátíða-
sjóði næstu þrjú árin og Samtök um
danshús tvær milljónir til tveggja
ára.
Vilyrði fyrir 102 styrkjum
Þá var Sinfóníuhljómsveit unga
fólksins útnefnd Tónlistarhópur
Reykjavíkur 2016. Hljómsveitin var
stofnuð árið 2004 og gengst árlega
fyrir þremur verkefnum og heldur
ferna til fimm tónleika. Með hljóm-
sveitinni leika um 50 tónlistarnemar
úr LHÍ, tónlistarskólum á höf-
uðborgarsvæðinu og erlendis. Mark-
mið sveitarinnar er að veita ungum
hljóðfæraleikurum tækifæri til þess
að leika saman og takast á við helstu
stórvirki tónbókmenntanna. Einnig
hefur hún frumflutt ný verk ungra
tónskálda. Stjórnandi hljómsveitar-
innar er Gunnsteinn Ólafsson.
Við úthlutun styrkjanna á Kjar-
valsstöðum í gær gerði Elsa Yeom-
an, formaður menningar- og ferða-
málaráðs, grein fyrir úthlutununum
og öðru framlagi til menningarmála.
Um er að ræða verkefnastyrki,
styrki til almennrar liststarfsemi og
langtímasamninga sem skiptast í
samstarfssamninga og Borgar-
hátíðasjóð. Fyrir voru á langtíma-
samningum 10 hátíðir og 4 listhópar
með samtals 41,8 milljónir kr. Nú
barst alls 201 umsókn þar sem sótt
var um 450 milljónir. Veitt var vil-
yrði fyrir 102 styrkjum sem námu
samtals þeim 86 milljónum sem laus-
ar voru nú til úthlutunar.
Fjölbreytileg verkefni
Menningarstefna Reykjavíkur-
borgar er sá grundvöllur sem styrk-
veitingar ráðsins byggjast á og felur
það ráðgefandi faghópi að fara yfir
umsóknirnar og gera tillögur til
ráðsins. Hann er skipaður fulltrúum
Bandalags íslenskra listamanna og
Hönnunarmiðstöðvar auk Samtaka
ferðaþjónustunnar og Höfuðborg-
arstofu vegna Borgarhátíðarsjóðs.
Meðal annarra hæstu styrkja eru
eftirfarandi:
Reykjavík Fashion Festival 2016
tvær milljónir kr.
Secret Solstice 1,5 milljón kr.
Barnabókmenntahátíðin Mýrin 1,
tvær milljónir kr.
Ein milljón kr.: Nýsköp-
unarsjóður tónlistar – Musica Nova.
Ein milljón kr.: Myndlistarhátíðin
Sequences.
Ein milljón kr.: Kvikmynda-
hátíðin Stockfish.
Ein milljón kr.: Tónleikaröð Jazz-
klúbbsins Múlans.
Ein milljón kr.: Norrænir mús-
íkdagar í Reykjavík.
Ein milljón kr.: Sinfóníuhljóm-
sveit unga fólksins.
850.000 kr.: Iceland Writers Ret-
reat.
800.000 kr.: Mengi menningarhús.
750.000 kr.: Hönnunarmiðstöð Ís-
lands v. Design Talks.
750.000 kr.: Möguleikhúsið.
700.000 kr.: hljóta ASSITEJ;
IBBY á Íslandi; Íslensk tón-
verkamiðstöð vegna Yrkju; og
Kammerhópurinn Nordic Affect.
600.00 kr.: Harbinger-sýn-
ingarými.
600.000 kr.: Leirlistafélagið.
500.000 kr.: hljóta Alþjóðlega tón-
listarakademían í Hörpu; Hverf-
isgallerí; Íslensk grafík; Karlakór-
inn Fóstbræður; Listvinafélag
Hallgrímskirkju; Ljósmyndahátíð
Íslands; Nótan – uppskeruhátíð tón-
listarskóla á Íslandi; Rósa Ómars-
dóttir vegna Traces; Samskipta-
miðstöð heyrnarlausra og
heyrnarskertra vegna Barnamenn-
ingarhátíðar á degi íslensks tákn-
máls; og SJS Big Band.
Þá hljóta 400.000 kr.: Anna Kol-
finna Kuran vegna Maestro; Fata-
hönnunarfélag Íslands; Handverk
og hönnun; Heimilislausa leikhúsið
ETHOS; Heimstónlist í Reykjavík;
Kammermúsíkklúbburinn; Leikhóp-
urinn Háaloftið vegna Biðstofunnar;
Leikhúsið 10 fingur; og Listasafn
ASÍ. Aðrir fá lægri upphæð.
Bíó Paradís og NÝLÓ
fá hæstu styrkina
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins var að þessu sinni
útnefnd Tónlistarhópur Reykjavíkur fyrir árið í ár
Styrmir Kári
Fjölbreytileiki Tilkynnt var á Kjarvalsstöðum í gær um styrki menningar-
og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar til fjölbreytilegra verkefna.
Nemendur úr Landakotsskóla
tóku á föstudaginn var þátt í
gjörningi listamannsins Michael
Joaquin Grey á Þingvöllum.
Gjörningurinn nefndist „Þúsund
sítrustré á Þingvöllum“ og fólst í
því að listamaðurinn, sem er einn
sýnenda á sýningunni Aftur í
sandkassann sem opnaði þá um
kvöldið í Listasafni Reykjavíkur,
afhenti börnunum mandarínutré
sem þau báru til skiptis þar til
komið var á ákveðinn stað við Al-
mannagjá. Þar fengu þau að
ákveða hvort þau vildu gróður-
setja tréð eða taka það með sér
heim. Eftir nokkra umhugsun
ákváðu nemendurnir að taka tréð
með sér heim.
Gjörningurinn hefur ýmsar til-
vísanir, meðal annars í það hvern-
ig hlutirnir geta gjörbreyst og
þannig gæti mandarínutré mögu-
lega vaxið á Þingvöllum í framtíð-
inni. Þar vísar listamaðurinn til
að mynda í örar breytingar á veð-
urfari, fólksflutningum og nátt-
úrulífi í heiminum í dag.
Mandarínutré Frá gjörningi listamannsins Michael Joquin Grey á Þingvöll-
um sem fólst í því að börn báru mandarínutré til skiptis að Almannagjá.
Þúsund sítrustré
á Þingvöllum
Agnieszka Sosnowska varð hlut-
skörpust þátttakenda í ljósmynda-
rýni sem Borgarsögusafn Reykja-
víkur stóð fyrir 15.-16. janúar og
hlýtur hún í verðlaun styrk úr Minn-
ingarsjóði Magnúsar Ólafssonar
ljósmyndara að upphæð 400.000 kr.
Ljósmyndarýnin var hluti af dag-
skrá Ljósmyndahátíðar Íslands sem
lauk um helgina og var þetta í þriðja
sinn sem úthlutað var úr minning-
arsjóði Magnúsar sem er sá eini sem
styrkir ljósmyndun á Íslandi sem
listgrein. Sosnowska er fædd í
Varsjá í Póllandi og býr og starfar á
Kleppjárnsstöðum í Hróarstungu á
Héraði. Hún er með BFA í ljós-
myndun frá Massachusetts College
of Art og MFA frá Boston Univers-
ity.
Sosnowska hlutskörpust
Ljósmynd/Agnieszka Sosnowska
Sjálfsmynd Agnieszka Sosnowska.