Morgunblaðið - 29.02.2016, Side 23
hann fluttist til Vestmannaeyja. „Við
hjónin hófum okkar búskap þar 1980
og vorum bæði að spila og þjálfa
handbolta með ÍBV. Þá var ég búinn
að vera hjá Val fram að því.“ Karl á
um 100 leiki að baki hjá Val og annað
eins með ÍBV. Hann varð Íslands-
meistari með Val 1977-1979 og var
hornamaður og lék einnig á línunni.
„Ég var í hópnum sem kom á eftir
Mulningsvélinni hjá Val.
Í Eyjum vann ég stóran hluta í fjöl-
skyldufyrirtæki Karls Kristmanns en
flyt þaðan 1986. Þá er ég áfram í kjöt-
harkinu þangað til við mágur minn
fyrrverandi og faðir kaupum fyrir-
tæki sem hét Gísli Jónsson árið 1988.
Það var stofnað 1946 af Gísla Jóns-
syni alþingismanni. Við seldum síðan
frá okkur hluta fyrirtækisins árið
2006 og það varð að Mótormax, en við
héldum eftir öllu sem tengdist bílum
og nefndum fyrirtækið Málningar-
vörur. Stærsti hluti viðskiptavina
okkar er bíla-, málninga- og rétt-
ingaverkstæði. Ég er framkvæmda-
stjóri og eini eigandi þess núna og í
dag vinna hjá fyrirtækinu átta til níu
manns.“
Áhuga- og félagsmál
Karl hefur sinnt ýmsum stjórnar-
störfum fyrir íþróttahreyfinguna,
m.a. í stjórn Vals og HSÍ, og situr
núna í stjórn Valsmanna ehf. sem á
byggingarréttinn á Hlíðarenda. „Það
hefur verið líf og fjör þar eins og þeir
þekkja sem hafa fylgst með flug-
vallarmálinu.“
Karl fylgist með íþróttum og spilar
golf og fer einnig í stangveiði. „Ég hef
á hverju ári farið í urriðaveiði í Mý-
vatnssveitinni síðastliðin 20 ár og fyr-
ir næsta sumar eru þegar orðnir klár-
ir tveir aðrir veiðitúrar, Laxá í
Aðaldal og Selá í Vopnafirði.“ Karl
verður að heiman á afmælinu. „Við
verðum á Tenerife í smá tilbreytingu
og góðu veðri.“
Fjölskylda
Eiginkona Karls er Guðrún H.
Aðalsteinsdóttir, 24.3. 1958, kennari.
Foreldrar hennar: Aðalsteinn Finn-
bogason stýrmaður, f. 3.7. 1930, d.
12.1. 2015, og k.h. Hulda G. Sigurðar-
dóttir, f. 24.10. 1933, aðstoðarskóla-
stjóri, bús. í Hafnarfirði.
Börn Karls og Guðrúnar: 1) Krist-
ján Þór Karlsson, f. 2.5. 1984, sölu-
maður í Kópavogi. 2) Ingibjörg
Karlsdóttir, f. 17.12. 1986, íþrótta-
fræðingur í Hafnarfirði. Maki henn-
ar: Lýður Vignisson, f. 21.5. 1980,
íþróttafræðingur. Börn þeirra: Guð-
rún María Lýðsdóttir, f. 7.4. 2009,
Heiðrún Rós Lýðsdóttir, f. 7.4. 2009,
og Heiðdís Lýðsdóttir, f. f. 9.10. 2013.
3) Kristmann Ingi Karlsson, f. 20.7.
1992, viðskiptafræðingur í Hafnar-
firði. Unnusta hans: Þórunn Gísla-
dóttir Roth, f. 7.8. 1991, nemi í sjúkra-
þjálfun.
Systkini Karls: Þóra Kristín Jóns-
dóttir, f. 16.7. 1957, launafulltrúi, bús.
í Reykjavík, og Kristján Jónsson, f.
20.6. 1960, listmálari og ferðaskipu-
leggjandi, bús. í Kópavogi.
Foreldrar Karls: Jón Kristjánsson,
f. 26.2. 1929, d. 18.6. 1999, bóksali í
Reykjavík, og k.h. Ingibjörg S. Karls-
dóttir, f. 7.11. 1934, bóksali í Reykja-
vík.
Úr frændgarði Karls Jónssonar
Karl Jónsson
Sigríður Sólborg Sigurðardóttir
húsfr. í Hergilsey
Snæbjörn Sigurvin
K. Bjarnason
hreppstj. í Hergilsey
Fjóla Breiðfjörð Snæbjörnsdóttir
húsfr. í Keflavík
Karl Kristmannsson
heildsali í Eyjum
Ingibjörg S. Karlsdóttir
húsfr. í Rvík
Jónína Jónsdóttir
húsfr. í Eyjum
Guðni Kristófersson
húsasmiður í Eyjum
Valtýr Snæbjörnsson
húsasmíðameistari og byggingafulltr. í Eyjum
Kristmann Karlsson
heildsali í Eyjum
Vignir Guðnasson
fyrrv. forstöðum. íþrótta-
miðstöðvarinnar í Eyjum
Aðalsteinn Jónsson
(Alli ríki) útgerðar-
maður á Eskifirði
Gísli Valtýsson
fyrrv. ritstj.
Eyjafrétta
Elliði Vignisson
bæjarstjóri í
Vestmanneyjum
Þórdís Björg Hallgrímsdóttir
húsfr. í Litla-Árskógi
Guðlaugur Valdimar Guðmundsson
skipstj. og bátasmiður í Litla-Árskógi
á Árskógsströnd
Þóra Valdimarsdóttir
húsfr. í Eyjum
Kristján Kristófersson
húsgagnabólstrari á
Kirkjubóli í Eyjum
Jón Kristjánsson
prentsmiðjustj. og
síðar bóksali í Rvík
Auðbjörg Ingvarsdóttir
húsfr. í Stóradal
Kristófer Þorleifsson
b. í Stóradal undir Eyjafjöllum
Kristmann Agnar Þorkelsson
skrifstofum. hjá Ísfélaginu í Eyjum
Guðrún Þorkelsdóttir
húsfr. í Eskifjarðarseli
og á Eskifirði
Ipswich-maður Karl fyrir utan
Portman Road í Austur-Anglíu.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2016
Doktor
80 ára
Hilmar Gíslason
Kristín Erla Jónsdóttir
Skjöldur Magnússon
Þorleifur Finnsson
60 ára
Einar Ólafsson
Elín Björg Sigurbjörnsdóttir
Guðlaug Kristmundsdóttir
Guðrún
Þorsteinsdóttir
Hildur Stefánsdóttir
Jónas Ingi Ketilsson
Jón Sævar Þórðarson
Karl Jónsson
Sigurður Jónsson
Skúli Einarsson
Svava Svavarsdóttir
Þóra Kjartansdóttir
40 ára
Birta Flókadóttir
Dominik Roman Kocon
Halldór Örn Sigurjónsson
Inda Björk
Alexandersdóttir
Ingi Rafnar Júlíusson
Jenný Rósa Baldursdóttir
Katrín Björk Guðjónsdóttir
Valdís Brá Þorsteinsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Birta býr í Hafnar-
firði og hefur lokið BS-
prófi í tölvunarfræði-
/viðskiptafræði og MBA-
gráðu. Hún er ráðgjafi og
eigandi hjá Furðuverki.
Maki: Guðjón Pálmarsson
leikari, f. 1974.
Sonur: Dagur Spói, f.
2008.
Foreldrar: Ásdís Sigur-
þórsdóttir myndlistar-
kona, f. 1954, og Flóki
Kristinsson prestur, f.
1951.
Birta
Flókadóttir
40 ára Jenný er Reykvík-
ingur og er sérfræðingur
hjá Arion banka.
Maki: Valdimar Haukur
Hilmarsson, f. 1976, fram-
kvæmdastjóri hjá Tækni.
Börn: Aron Páll, f. 2001,
Elvar Máni, f. 2005, og
Viktor Atli, f. 2012.
Foreldrar: Baldur Elías
Hannesson, f. 1952, raf-
virki, og Særós Guðna-
dóttir, f. 1956, viður-
kenndur bókari, bús. í
Reykjavík.
Jenný Rósa
Baldursdóttir
40 ára Valdís er Akureyr-
ingur og viðmóts-
hönnuður, og er nýbúin
að ljúka verkefni um
frumkvöðlasetur á
Akureyri.
Maki: Ingvar Páll Ingvars-
son, f. 1972, verkefna-
stjóri hjá Skagafirði.
Foreldrar: Þorsteinn Þor-
steinsson, f. 1946, skipa-
smíðameistari, og Þór-
hildur Steinunn
Valdemarsdóttir, f. 1947,
fv. bókari, bús. á Akureyri.
Valdís Brá
Þorsteinsdóttir
Nzar Rauf Abdullah hefur varið dokt-
orsritgerð sína í eðlisfræði við Raun-
vísindadeild Háskóla Íslands. Rit-
gerðin ber heitið: Holljóseindastýrð
rafeindaleiðni um kerfi skammta-
punkta og bylgjuleiðara (Cavity-
photon controlled electron transport
through quantum dots and wave-
guide systems).
Andmælendur voru dr. Michael
Thorwart, prófessor við Háskólann í
Hamborg, Þýskalandi, og dr. Einar
Örn Sveinbjörnsson, prófessor við
Raunvísindadeild Háskóla Íslands.
Leiðbeinandi var dr. Viðar Guð-
mundsson, prófessor við Raunvís-
indadeild Háskóla Íslands.
Auk hans sátu í doktorsnefnd dr.
Andrei Manolescu, prófessor við Há-
skólann í Reykjavík, og dr. Chi-Shung
Tang, prófessor við National United
University í Miaoli á Taívan.
Dr. Hörður Filippusson, prófessor
emeritus og staðgengill forseta
Raunvís-
indadeildar,
stjórnaði at-
höfninni.
Í ritgerð
Nzar Rauf Ab-
dullah er lýst
tímaháðum
flutningi víxl-
verkandi raf-
einda um tví-
vítt rafeindakerfi af takmarkaðri
stærð. Um er að ræða staka
skammtapunkta eða pör þeirra sem
komið er fyrir í stuttum skammtavír.
Einnig fjallar hann um kerfi
skammtabylgjuleiðara. Raf-
eindakerfið er veiktengt ytri
leiðslum, en sterklega tengt einum
ljóseindahætti í rafsegulholi. Rann-
sóknirnar sýna að rafeindastraumur
um kerfið er mjög háður upphaf-
legum fjölda ljóseinda í holinu og
skautun þeirra.
Nzar Rauf Abdullah
Nzar Rauf Abdullah er fæddur 1983. Hann útskrifaðist með BS-gráðu í eðlis-
fræði frá Háskólanum í Sulaimani í Kúrdistan í Írak 2006, og lauk MS-gráðu í
sömu grein frá Háskóla Íslands 2011. Hann vinnur hjá Raunvísindastofnun Há-
skóla Íslands og kennir einnig við Háskólann í Sulaimani í Kúrdistan í Írak.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Þjónustuauglýsingar
Fáðu tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is
Viltu vinna
Farðu á fleygiferð
niður brekkurnar
á Gifflar bretti
Fylltu út
þátttökuseðil
í næstu verslun
Pågen Gifflar
sleðabretti?