Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016
AFP
Sýrland Fjöldi fólks hefur þurft að
flýja heimili sitt vegna stríðsins.
Yfir 200 þúsund börn búa á svæðum
sem haldið er í herkví stríðandi
fylkinga í Sýrlandi og 2,4 milljónir
barna hafa lagt á flótta til ná-
grannalanda Sýrlands. Þetta kem-
ur fram í skýrslu UNICEF sem gef-
in er út af því tilefni að á morgun
eru fimm ár liðin frá því að stríðið í
Sýrlandi hófst.
Í skýrslunni kemur fram að tvær
milljónir barna hafa engan aðgang
að neyðaraðstoð og þriðjungur sýr-
lenskra barna hefur fæðst eftir að
stríðið braust út, svo um 3,7 millj-
ónir barna þekkja ekkert nema
stríð.
Milljónum barna hjálpað
Þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður
í Sýrlandi hafa UNICEF og sam-
starfsaðilar náð miklum árangri og
veitt milljónum barna neyðarhjálp.
Í fréttatilkynningu frá UNICEF á
Íslandi segir að á síðasta ári hafi
nærri þrjár milljónir barna yngri
en fimm ára aldri verið bólusett
gegn mænuveiki í Sýrlandi til að
koma í veg fyrir faraldur. Um 800
þúsund börn fengu hlý föt og teppi,
rúmlega 700 þúsund börn voru
skimuð fyrir bráðri vannæringu og
hálfri milljón barna var veitt sál-
ræn aðstoð. „Í nágrannaríkjunum
fengu milljónir barna á flótta sömu-
leiðis neyðarhjálp,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Á síðasta ári skráði UNICEF um
1.500 alvarleg brot gegn börnum í
Sýrlandi en í yfir 60 prósentum til-
fella var um að ræða brot þar sem
börn létust eða særðust vegna
sprengjuárása í þéttbýli. Yfir þriðj-
ungur barnanna lét lífið í skóla eða
á ferðum sínum til eða frá skóla.
„Eftir fimm ár af stríðsátökum
hafa milljónir barna neyðst til að
fullorðnast allt of hratt. Á meðan
átökin halda áfram eru börnin látin
berjast í stríði fullorðinna, þau eru
látin hætta í skóla, neydd til að
vinna og stúlkur látnar ganga í
hjónaband á barnsaldri,“ er haft
eftir Peter Salama, sem fer fyrir
starfi UNICEF í Mið-Austurlöndum
og Norður-Afríku í tilkynningunni
frá UNICEF á Íslandi. ash@mbl.is
Fimm ár liðin frá upphafi stríðs
UNICEF skráði 1.500 alvarleg brot gegn börnum í Sýrlandi á síðasta ári
Fuglavernd skorar á grænlensk
stjórnvöld að hlífa stuttnefjunni.
„Það hefur vakið athygli umheims-
ins að grænlenska landsstjórnin
hefur heykst á að friða stuttnefj-
una, þrátt fyrir að fjöldi aðvör-
unarbjallna hafi hringt undanfarin
ár um að hún stæði á barmi útrým-
ingar,“ segir í fréttatilkynningu.
Fuglavernd ásamt fuglaverndar-
samtökum í Danmörku, Noregi,
Bandaríkjunum og Alþjóðasam-
tökunum BirdLife hafa skorað á
grænlensku landsstjórnina að
stöðva alla veiði á stuttnefju. Mikið
veiðiálag er á fugla við vestur-
strönd Grænlands. Stuttnefjum sem
verpa hér við land hefur fækkað
mikið á síðustu árum og er talsvert
af þeim drepið á vetrarstöðvum
vestur af Suður-Grænlandi. Þar eru
bæði mikilvægar varpstöðvar
grænlenskra stuttnefja og vetrar-
stöðvar íslenskra.
Grænlendingar
hlífi stuttnefjunni
Frá Grænlandi Fuglaverndarsamtök hafa
áhyggjur af stuttnefjunni.
Á 100. þingi Bandalags kvenna í
Reykjavík, sem haldið var á laug-
ardag, afhenti BKR í þriðja sinn
viðurkenningar bandalagsins til að-
ila sem starfa á áherslusviðum fé-
lagsins.
Kona ársins 2016 var valin Inga
Dóra Sigfúsdóttir fyrir brautryðj-
andi starf á sviði rannsókna á líðan
barna og unglinga í nútímasam-
félagi. Hún er prófessor við Háskól-
ann í Reykjavík og stofnandi rann-
sóknarsetursins Rannsóknir og
greining. Hún hlaut nýverið 300
milljóna króna styrk frá Evrópu-
sambandinu til að rannsaka líðan,
hegðun og heilsu íslenskra barna.
Samstarfsverkefni Reykjavík-
urborgar og Lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu „Saman gegn of-
beldi“ hlaut hvatningarviður-
kenningu BKR 2016. Dagur B.
Eggertsson, borgarstjóri í Reykja-
vík, og Sigríður Björk Guðjóns-
dóttir, lögreglustjóri á höfuðborg-
arsvæðinu, veittu
viðurkenningunni móttöku á fund-
inum.
Viðurkenningar
Bandalags kvenna
Viðurkenning Ingibjörg Rafnar Péturs-
dóttir fráfarandi formaður BKR veitir Ingu
Dóru Sigfúsdóttur viðurkenningu.