Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 11
veldar, en á einhverjum tíma- punkti verður maður að gera sér grein fyrir staðreyndum lífsins og hætta að þráast við,“ segir Oddný. Hún segist hafa meiri áhyggjur af unga fólkinu sem ætli að hætta búskap. Það sé mikið áfall fyrir samfélagið í Árneshreppi. Búskapurinn erfiður og stendur tæpast undir sér Þorsteinn Guðmundsson býr á Finnbogastöðum ásamt Guðmundi föður sínum, sem er á áttræðis- aldri. Guðmundur á Finnboga- stöðum er bróðir Guðbjargar í Bæ. Þorsteinn segist reikna með að jörðin verði seld, enda sé hún lífeyrir föður hans, en vonandi verði búið áfram á Finnboga- stöðum. Nýlegt kanadískt einingahús er á Finnbogastöðum, en það var reist eftir að gamla íbúðarhúsið brann til kaldra kola árið 2008. Margir komu að söfnun til bygg- ingar nýja hússins. Þorsteinn segist hafa búið í Reykjavík árið 2009 þegar hann varð atvinnulaus og hafi þá flutt aftur heim til pabba á Finnboga- stöðum. „Í framhaldinu fæddist sú hugmynd að ég tæki við búinu og það varð úr árið 2010. Mig hafði svo sem alltaf langað til að taka einhvern tímann við bú- skapnum, en það var engan veg- inn á planinu að taka við hér þeg- ar ég var aðeins 24 ára gamall, á fullu að lifa lífinu og eltast við stelpur,“ segir Þorsteinn. Hann er áttundi ættliðurinn í beinan karllegg sem búið hefur á Finn- bogastöðum. Hann var mest með tæplega 300 fjár, en síðasta haust lógaði hann því sem þurfti að lóga og setti ekkert á þannig að nú er hann með 230 fjár. Hann segir fjárbúskap ekki standa undir sér nema menn séu með yfir 600 fjár. „Ég óttast að það sem er að gerast hér í þessu litla, afskekkta samfélagi sé nákvæmlega sama sagan og í svo mörgum öðrum sveitum landsins áður,“ segir Þor- steinn. „Að lokum verða svo fáir eftir að þeir einfaldlega neyðast til að fara þó svo að þeir vilji alls ekki fara í burtu. Ég er að bregða búi vegna þess að svona lítill búskapur er erfiður og stendur tæpast undir sér. Svo langar mig til að skoða heiminn aðeins, jafnvel að vinna erlendis í einhverja mánuði. Ekki er heldur útilokað að ég fari aftur að hlaupa á eftir stelpum enda í fínu formi eftir allar smalamennskurnar,“ segir Þorsteinn á Finnbogastöð- um og hlær. Árneshreppur á Ströndum NORÐURFJÖRÐUR REYKJARFJÖRÐUR IN GÓ LF SF JÖ RÐ UR 1 2 5 4 6 7 8 9 3 Djúpavík Gjögur Flugvöllur 1. Krossnes 2. Verslun/kaffihús/ Bergistangi 3. Steinstún 4. Melar 1 og 2 5. Árnes 1 og 2 6. Bær 8. Litla Ávík 9. Kjörvogur 7. Finnbogastaðir BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Forsetakosningar á Íslandi fara fram laugardaginn 25. júní næstkomandi, samkvæmt auglýsingu forsætisráðu- neytisins frá því á föstudag. Atkvæða- greiðsla utan kjörfundar getur hafist átta vikum fyrir kjördag, sem væri þá 30. apríl nk. Um atkvæðagreiðslu utan kjörfund- ar segir m.a. á heimasíðu innanríkis- ráðuneytisins: „Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst á sama tíma um allt land að undangenginni auglýsingu innanríkisráðuneytisins eftir að kjör- seðlar hafa verið fullgerðir. Atkvæða- greiðsluna má þó ekki hefja fyrr en í fyrsta lagi átta vikum fyrir kjördag. Kjósanda sem ekki getur kosið á kjör- dag, er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar.“ Hefst áður en frestur rennur út Í þessu samhengi er forvitnilegt að velta því fyrir sér að frestur til þess að bjóða sig fram til forseta Íslands renn- ur út hinn 21. maí nk., fimm vikum fyr- ir kjördag, þannig að utankjörfund- aratkvæðagreiðsla hefst í raun þremur vikum áður en framboðsfrest- ur rennur út, þannig að þeir sem kjósa utan kjörfundar geta verið að renna blint í sjóinn með atkvæði sitt þar sem listi frambjóðenda gæti tekið miklum breytingum frá því að utankjörfund- arkosning hefst þar til framboðsfrest- ur rennur út. Einhverjir frambjóðend- ur gætu hafa horfið af framboðslista- num eins og hann leit út þegar atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst og aðrir gætu hafa bæst við á listann fram til 21. maí. Forsetakosningin fer fram um há- sumar og því má búast við því að margir landsmenn verði á ferð og flugi á kjördag. Þess vegna er almennt reiknað með því að þátttaka í at- kvæðagreiðslu utan kjörfundar verði mikil. Í forsetakosningunum í júní 2012 var kjörsókn 69,32% og var Ólafur Ragnar Grímsson endurkjör- inn með 35,68% atkvæða. Þá greiddu 38.140 kjósendur atkvæði utan kjör- fundar, sem var 23,4% af greiddum atkvæðum. Fyrirgerir ekki rétti Fram kemur á vef innanríkisráðu- neytisins að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fyrirgerir ekki rétti manns til að greiða atkvæði á kjör- dag. Hafi kjósandi kosið utan kjör- fundar, en vilji á kjördag kjósa á nýj- an leik, kemur utankjörfundar- atkvæðaseðill hans ekki til greina við kosninguna. Jóhannes Tómasson, upplýsinga- fulltrúi í innanríkisráðuneytinu, bendir á að þeir sem kjósi utan kjör- fundar á fyrstu þremur vikunum, eft- ir að opnað er fyrir utankjörfundar- atkvæði, þ.e. frá 30. apríl til 21. maí, þegar framboðsfundur rennur út, geti alltaf kosið aftur á kjördag. Það sé alltaf nýjasta atkvæðið sem gildi. „Það má kannski segja að í þeim möguleika sé ákveðin björgun, ef menn kjósa áður en endanlegur listi frambjóðenda liggur fyrir, en þó ekki alveg, því ef kjósandi er klárlega í burtu á kjördag og kemst ekki til þess að kjósa á nýjan leik, þá getur hann ekkert gert í málinu,“ sagði Jó- hannes. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Atkvæðagreiðsla utan kjör- fundar á vegum embættis sýslu- mannsins í Reykjavík verður í Skóg- arhlíð 6 til 13. júní en færist yfir í Laugardalshöll frá og með fimmtu- deginum 14. júní. Opið verður alla daga frá kl. 10.00-22.00. Kjósa má átta vikum fyrir kjördag  Framboðsfresti til forseta lýkur 21. maí, 5 vikum fyrir forsetakjör  23,4% greiddu atkvæði utan kjörfundar 2012 Morgunblaðið/Ómar Bessastaðir Það eru þrír og hálfur mánuður í forsetakosningar og þá mun það liggja fyrir hver ræður ríkjum á Bessastöðum næstu fjögur árin. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016 Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Vertu upplýstur! blattafram.is Á HVERJUM DEGI STUÐLUM VIÐ MÖRG AÐ KYNFERÐISOFBELDI MEÐ ÞVÍ AÐ LÍTA Í HINA ÁTTINA. Í HVAÐA ÁTT HORFIRU? 9 Síðum úli Gengið inn úr porti Ormsson og Samsungsetursins • Síðumúla 9 Lagersala Gerið góð kaup á góðri vöru ÞVOTTAVÉLAR - MYNDAVÉLAR - HLJÓMTÆKI - SJÓNVARPSVEGGFESTINGAR - POTTAR OG PÖNNUR - SPORTMYNDAVÉLAR - SPJALDTÖLVUR - HEYRNARTÓL - SJÓNAUKAR - SMÁTÆKI - BÚSÁHÖLD - ÚTVÖRP - TÖLVUTÖSKUR - FLAKKARAR - BRENNSLUDISKAR - LJÓSMYNDAPAPPÍR - FARSÍMAHULSTUR - BLU-RAY HEIMABÍÓ - BLANDARAR - 3DS LEIKIR - STÝRIPINNAR - REIKNIVÉLAR - TÖLVUMÝS - LYKLABORÐ - BLUETOOTH HÁTALARAR - BASSABÍLKEILUR - SJÓNVÖRP - ÍSSKÁPAR - VEFMYNDAVÉLAR - SOUNDBAR - DJ STJÓRNBORÐ - MÍKRAFÓNAR - LEIKJASTÝRI - NETBÚNAÐUR OG SVOMIKLUMEIRA. Opið kl. 13-18 virka daga og laugardaga kl. 12-16 Nú er búið með sauðfé á tíu bæjum í Árneshreppi; Kjörvogi, Litlu-Ávík, Finnbogastöðum, Bæ, Árnesi, Melum, Steinstúni og Krossnesi. Á Melum og Árnesi er tvíbýli. Einnig á fólk heimili allt árið í skólahúsinu á Finnbogastöðum, húsi Kaupfélagsins í Norðurfirði og að ógleymdum Bergistanga. Þar búa Gunnsteinn Gíslason og Margrét Jónsdóttir, en Gunnsteinn var í forystu í sveitarfélaginu í áratugi og sat í sveitarstjórn í 48 ár. Myndarlegt hótel er í Djúpavík og ferðaþjónustu hefur vaxið fiskur um hrygg í Árneshreppi á síðustu árum. Yfir sumartímann fjölgar mjög í hreppnum. Ágæt hafnaraðstaða er í Norðurfirði og talsverð sjósókn það- an yfir sumartímann. Nú er unnið að dýpkun hafnarinnar og fjölgun við- leguplássa í höfninni. Fjölgar mjög yfir sumartímann BÚIÐ MEÐ SAUÐFÉ Á TÍU BÆJUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.