Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 14. MARS 74. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Spáð ofsaveðri í kvöld 2. Byssumaður handtekinn á … 3. Almenn lögregla vopnaðist 4. Frosti Logason trúlofaður ástinni »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Fléttuleikurinn Dóttirin, bóndinn og slaghörpuleikarinn eftir Ingi- björgu Hjartardóttur sem fluttur var 28. og 29. febrúar sl. verður end- urfluttur í Iðnó í kvöld kl 20. Leikur- inn er fléttaður saman úr þremur ein- leikjum sem sýndir voru í Þjóðleik- húskjallaranum árið 1995. Einleikirnir eru byggðir á frásögn þriggja ís- lenskra samtímakvenna. Þetta eru þrjár ólíkar frásagnir, en það sem er sameiginlegt með þeim er að kon- urnar eru allar á svipuðum aldri og aldar upp við lík skilyrði, í harð- neskjulegum, íslenskum veruleika. Fléttuleikurinn endurfluttur í Iðnó  Stórsveit Reykjavíkur heldur tón- leika í Silfurbergi Hörpu í kvöld kl. 20. Flutt verður latin-tónlist af ýms- um gerðum, frá ólíkum stöðum og tímum, m.a. tengd hljómsveitum Tit- os Puentes, Peréz Prados, Xaviers Cugats og Dizzys Gillespies. Einnig kemur íslensk latin-tónlist eftir Tóm- as R. Einarsson, Sigurð Flosason og Samúel J. Samúelsson við sögu en stjórnandi er Samúel. Þess má geta að Stórsveit Reykjavík- ur hlaut nú nýverið, annað árið í röð, ís- lensku tónlistar- verðlaunin fyrir plötu ársins í flokki djass- og blústónlistar og var auk þess tilnefnd til Menning- arverðlauna DV. Stórsveit Reykjavík- ur flytur latin-tónlist Á þriðjudag og miðvikudag Sunnan 8-13 m/s og súld eða dálítil rigning en léttskýjað á Norðausturlandi. Hiti 2 til 8 stig. Á fimmtudag og föstudag Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 m/s rigning eða slydda með köflum, él á Norðvesturlandi en bjart fyrir norðaustan. Hiti 1 til 10 stig, svalast á Vestfjörðum. VEÐUR Íslenska landsliðið í hand- knattleik kvenna heldur enn í vonina um að komast í lokakeppni EM í handknatt- leik eftir nauman sigur á Sviss, 20:19, í Schenker- höllinni á Ásvöllum í gær. Hvort af því verður eða ekki skýrist í júní þegar loka- leikir undankeppninnar fara fram. Florentina Stanciu átti stórleik í marki íslenska landsliðsins sem átti öðru fremur þátt í sigrinum. »2 Vorleikirnir skera úr um framhaldið Guðrún G. Björnsdóttir úr KR og Daði Freyr Guðmundsson úr Víkingi urðu í gær Íslandsmeistarar í einliðaleik í borð- tennis. Þetta var fyrsti Íslands- meistaratitill Daða í einliðaleik en Guðrún fagnaði titlinum í sjöunda sinn, eftir að hafa meðal annars lent í miklum spennuleik í und- anúrslitum. »4 Daði Freyr braut ísinn og Guðrún með sjö „Það er gott að fá hrós frá Ole Gunnar Solskjær en það gerir voðalega lítið fyrir mig. Ég er ekki að velta mér upp úr því sem aðrir segja,“ sagði Aron Sigurðarson, sem heillaði Solskjær í frumraun sinni í norsku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu í gær. Aron skoraði laglegt mark sem dugði til að tryggja Tromsö 1:1-jafntefli gegn lærisveinum Solskjærs í Molde. »1 Aron dvelur ekki lengi við hrós Solskjærs ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Ljósmyndarinn Berglind Ósk Svav- arsdóttir, sem vinnur fyrir sam- komu- og tónlistarhúsið Vega í Kaupmannahöfn, myndaði Mary, krónprinsessu Dana, á alþjóð- legum baráttu- degi kvenna hinn áttunda mars. „Hún var frá- bær. Hún hélt þarna ræðu og þetta var lang- stærsta verkefni sem ég hef tekið að mér,“ segir Berglind en hún gengur undir nafninu Begga á danskri grundu. Á sama degi ári áð- ur var hún ráðin til að mynda þáver- andi forsætisráðherra Dana, Helle Thorning-Schmidt, og heppnaðist það einnig vel og verður nafn Beggu æ stærra með hverju verkefninu. „Ég ætlaði fyrst að stoppa stutt hér í Kaupmannahöfn en mér þykir orðið svo ótrúlega vænt um borgina að ég er ekkert að fara. Allavega ekki eins og staðan er núna. Ég er að ná að skapa mér nafn og fæ mik- ið af góðum verkefnum og sífellt meiri tækifæri. Á meðan það er þannig er engin ástæða til að fara heim,“ segir Berglind. Hringdi oft í mömmu Hún segir þó að lífið hafi ekki alltaf verið dans á rósum í Kaup- mannahöfn og hún hafi oft hringt heim til Íslands í upphafi. „Það er ekkert grín að koma hingað alein og reyna að skapa sér nafn. Ég hringdi oft í mömmu og vildi bara fá að koma heim. Sem betur fer hefur hún alltaf sagt nei,“ segir hún og hlær. Begga lærði í Ljósmyndaskóla Ís- lands, hjá Sissu, og útskrifaðist í febrúar fyrir tveimur árum. Hún flutti til Danmerkur í júlí, nánast um leið og hún útskrifaðist, og hefur ekki séð eftir því. Fjölbreytt og skemmtilegt „Þetta eru svo fjölbreytt verkefni sem ég hef verið í og svo skemmti- leg. Núna er ég að mynda fyrir lyfjafyrirtæki, ég myndaði drag- sýningu fyrir stuttu og krónprins- essu í síðustu viku.“ Vega er stærsti tónleikastaður Kaupmannahafnar og hefur Begga verið fyrir aftan myndavélina og smellt af mynd af mörgum þekktum hljómsveitum. „Ég myndaði Cage The Elephant sem var mjög skemmtilegt. Royal blood voru einnig frábærir. Hljóm- sveitin er ein af mínum uppáhalds- hljómsveitum og er alveg mögnuð á sviði.“ Myndaði Mary krónprinsessu  Ljósmyndarinn Berglind Svavars- dóttir í Danmörku Krónprinsessa Mary krónprinsessa gengur í salinn í Vega skömmu áður en hún hélt ræðu á alþjóðlegum baráttu- degi kvenna. Berglind fylgdi henni eftir hvert fótmál um húsið en Vega er vinsælt samkomu- og tónlistarhús. In Flames Berglind myndar hljómsveitir sem stíga á svið í Vega. Berglind Ósk Svavarsdóttir Ljósmynd/Begga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.