Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 21
fersku minni skipa- og flugvéla-
módelin sem hann setti saman
af kostgæfni þar sem hver hlut-
ur var á sínum stað.
Trausti Gestsson, blóðfaðir
Jörundar, var þekktur aflaskip-
stjóri og að loknu landsprófi ár-
ið 1966 fór Jörundur í síldveiði-
túra með honum á Súlunni frá
Akureyri. Heim kom hann vel
loðinn um lófana og hafði efni á
að kaupa fínan plötuspilara og
nýjustu plöturnar með Bítlun-
um og öðrum þeim hljómsveit-
um sem þá voru vinsælar. Á
haustmánuðum sátum við á efri
hæðinni heima hjá ömmu,
hlustuðum lotningarfullir á lög-
in og ræddum þau fram og til
baka.
Eftir skólagöngu í Ólafsfirði
varð ekki hjá því komist að
leiðir skildi, að minnsta kosti
hluta úr hverju ári.
Ég fór til náms á Akureyri
en Jörundur var ekki tilbúinn í
þann leik að sinni og hélt til
Þýskalands þar sem hann vann
í skipasmíðastöð í hartnær tvö
ár.
Þá leið ömmu ekki alltaf vel
því skiljanlega óttaðist hún um
strákinn sinn úti í hinum stóra
heimi enda sjöundi áratugurinn
mikill umbrotatími. Við Jörund-
ur héldum sambandi með stop-
ulum bréfaskriftum sem þó
nægðu til þess að ég vissi nokk-
urn veginn hvað hann var að
fást við. Eftir heimkomuna um
1970 kynntist hann Ingveldi Jó-
hannesdóttur og stuttu seinna
byrjuðu þau að búa. Á níunda
áratugnum hóf hann nám, lauk
stúdentsprófi og síðan iðn-
rekstrarfræði frá Háskólanum
á Akureyri.
Á sínum yngri árum var Jör-
undur ekki mikið gefinn fyrir
íþróttir en það breyttist heldur
betur þegar hann var kominn
hátt á fimmtugsaldurinn. Þá
fékk hann mikinn áhuga á úti-
vist; gekk um fjöll á sumrin og
á gönguskíðum á vetrum. Hann
komst í svo gott form að hann
tók þátt í Vasa-göngunni
nokkrum sinnum. Auðheyrt var
á honum að þessi lífsstíll var
honum að skapi. Það er því erf-
itt að sætta sig við fráfall hans.
Við Guðrún sendum Ingveldi,
börnunum og fjölskyldum
þeirra samúðarkveðjur. Bless-
uð sé minning Jörundar
Traustasonar.
Friðrik G. Olgeirsson.
Nú fallinn er frá góður fé-
lagi. Jörundur var hluti af
stórum hóp sem hefur haft
þann undarlega ávana að
flykkjast til Svíþjóðar einu
sinni á ári og ganga þar hina
löngu og erfiðu Vasa-göngu.
Jörundur gekk sína fyrstu
göngu árið 2002 og síðan sam-
tals þrettán ár í röð. Í þessum
hópferðum myndast ólýsanleg
tengsl og vinskapur manna á
milli þar sem búið er þröngt,
gist er í litlum kofum, í kojum,
setið er með skíðapoka á öxl-
unum og eru menn hver ofan í
öðrum allan sólarhringinn. Jör-
undur var frábær og traustur
ferðafélagi.
Hann hafði gaman af því að
segja frá og hlusta á aðra.
Ljóst var að Jörundur hafði
sjálfur gengið sína síðustu
Vasa-göngu þegar við félagarn-
ir héldum til Svíþjóðar nú í
byrjun marsmánaðar. Við
ákváðum að Jörundur skyldi
ganga með okkur öllum í hinsta
sinn og gengum því með mynd
af honum á okkur. Við erum
þess fullvissir að hann hafi
notið ferðarinnar þó svo að
hans marklína hafi verið önnur
en okkar.
Hvíl í friði, kæri vinur.
Við viljum senda fjölskyldu
Jörundar okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Fyrir hönd Vasagöngufélaga,
Kári Jóhannesson, Jóhann-
es Kárason, Einar Eyland,
Guðmundur Bjarnar
Guðmundsson.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Viðvörun
Fyrrverandi hæstaréttardómari hefur bent á
að í Hæstarétti Ísl. sitji maður í dómarasæti
sem er ber að brotum á lögum og
stjórnarskrá.
Þá hefur Björn Bjarnason, fyrrverandi
dómsmálaráðherra, bent á að sú innræktun
sem birtist í vali dómara í Hæstarétt að
undanförnu, sé ávallt hættuleg og almennt
talin leiða til úrkynjunar.
Stjórnarskráin 59. gr.: ,,Skipun dómsvaldsins
verður eigi ákveðin nema með lögum”.
Mun Alþingi girða sig í brók - leggja niður
Hæstarétt og forða frekari úrkynjun, stofna
nýjan Landsrétt og nýjanYfirrétt?
Magnús heitinnThoroddsen mátti víkja úr
Hæstarétti 1989 og braut hann þó engin lög.
Siðferðisbrot og virðing réttarins þá, laga og
stjórnarskrárbrot nú. Úrkynjun eða hvað?
Ráðherra dómstóla þegir, Alþingi þegir,
dómarar þegja, lögmenn þegja, þögn, þögn
og meiri þögn.
Hollvinir réttarríksins.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, leikfimi kl. 10, útskurður 1 og
frjáls tími í myndlist kl. 13.
Árskógar 4 Opið í smiðar og útskurð kl. 8-16. Handavinna með leið-
beinanda kl. 12.30-16. Botsía með Þóreyju kl. 9.30-10.10. Stafaganga,
ganga um nágrennið kl. 11-11.40. Félagsvist með vinningum kl. 13.
Myndlist með Elsu. kl. 16.
Dalbraut 18-20 Myndlist og postulín kl. 9, brids kl. 13.
Furugerði Morgunmatur kl. 8.10-9. Handavinnustofa opin án leið-
beinanda. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffi kl. 14.30-15.30. Kvöld-
matur kl. 18-19.
Garðabær Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 8 og 15. Stólaleikfimi fyrir
konur og karla í Sjálandi kl. 9.10, kvennaleikfimi í Sjálandi kl. 10 og í
Ásgarði kl. 11. Karlaleikfimi kl. 11.40. Botsía kl.12.20 í Ásgarði. Heilsu-
efling 60+ kl. 16.15 í Jónshúsi.
Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Útskurður með leiðbeinanda
kl. 9-16. Línudans kl. 13. Kóræfing Gerðubergskórs kl. 14.30-16.30.
Gjábakki Handavinna kl. 9, botsía kl. 9.10, gler- og postulínsmálun kl.
9.30, lomber kl. 13, handavinna kl. 13, kanasta kl. 13.15, kóræfing kl.
16.30, skapandi skrif kl. 20.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna kl. 13, brids
kl. 13, félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9. Opin
handavinna, leiðbeinandi kl. 9-14. Bænastund kl. 9.30-10. Jóga kl.
10.10-11.10. Hádegismatur kl. 11.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, blöðin og púsl liggja frammi, léttar erobic-æfingar
kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir hádegi.
Spilað brids kl. 13, kaffi kl. 14.30, fótaaðgerðir.
Íþróttafélagið Glóð Ringó kl. 13.30 í Smáranum. Zumba kl. 17.30 í
Digranesi. Uppl. í síma 564-1490 og á www.glod.is
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi Rásar 2 kl. 9.45,
lesið úr blöðum í Kaffisetrinu kl. 10.15, bókmenntahópur í Kaffisetrinu
kl.11, trésmiðja kl. 13-16, samverustund með djákna kl. 13.30, bíó á 2.
hæð kl. 15.30. Uppl. í síma 411 2760.
Seltjarnarnes Gler, Valhúsaskóla kl. 9 og 13. Leir, Skólabraut kl. 9.
Billjard, Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga, salnum,
Skólabraut kl. 11. Handavinna, Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sund-
lauginni kl. 18.30.
Sléttuvegur 11-13 Heitt á könnunni, dagblöð og spjall kl. 8.30-10.30,
hádegisverður kl. 11.30-12.30, félagsvist kl. 13, síðdegishressing
kl.14.30-15.30. Allir velkomnir.
Vesturgata 7 Fótaaðgerð kl. 9.Tréútskurður kl. 9.15-12, Lúðvík
Einarsson.
Vitatorg Leirmótun, postulín kl. 9. Upplestur framhaldssögu kl.12.30.
Frjáls spilamenska, stóladans og bókband kl. 13. Félagsstarfið
opið fyrir alla.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mb
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Sundbolir • Tankini
Bikini • Náttföt
Undirföt • Sloppar
Inniskór • Undirkjólar
Aðhaldsföt
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebook
Mjóddin s. 774-7377
10.9
00.
-
10.9
00.
-
10.9
00.
-
11.9
00.
-
Vandaðir þýskir JOMOS herra-
skór úr leðri, skinnfóðraðir og
með góðum sóla
TEG.315208 81 230 Stærðir: 41 - 47
Verð: 15.750.-
TEG. 204203 23 322 Stærðir: 40 - 48
Verð: 14.850.-
Teg:206202 23 000 Stærðir: 40 - 48
Verð: 14.850.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
Getum bætt við okkur verk-
efnum í viðhaldi, breytingum
og nýsmíði fasteigna.
Fagmenn á öllum sviðum.
Upplýsingar í síma 856 2600.
brhus@simnet.is
fasteignir