Morgunblaðið - 14.03.2016, Side 15

Morgunblaðið - 14.03.2016, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016 Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrirVOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Kæli og frystiklefar Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 í öllum stærðum Gífurlegur fjöldi fólks safnaðist saman á götum úti til að mótmæla Dilmu Rousseff, forseta landsins, en hneykslismál sem tengist ríkisolíufyrirtæki Brasilíu og efnahagslægð er það sem brennur helst á mótmælendunum. Mótmælt í Brasilíu AFP Flokkur Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, Kristilegir demókratar, CDU, tapaði töluverðu fylgi þegar kosið var á þremur sam- bandsþingum Þýskalands í gær ef marka má útgönguspár en kosið var í Ba- den Württemberg, Rheinland Pfalz og Sachsen Anhalt. Prófsteinn á stefnu Merkel Hægriflokkurinn Alternative für Deutschland, AfD, eykur verulega við fylgi sitt en flokkurinn er óánægður með evrusamstarfið og hefur gagnrýnt hlutverk Þýska- lands í björgunaraðgerðum evr- unnar. Þá hefur AfD verið andsnúinn stefnu Merkel í mál- efnum innflytjenda og flótta- manna. Kosningarnar hafa verið sagðar prófsteinn á stefnu Merkel, m.a. í málefnum flóttamanna, en þær eru fyrstu stóru kosningarnar í landinu frá því að flóttamenn fóru að streyma frá Sýrlandi og Írak til Evrópu. Tap fyrir stefnu Merkel  Kristilegir demó- kratar tapa miklu Angela Merkel Alls eru 27 látn- ir og 75 slasaðir eftir að sprengja sprakk í Ankara, höf- uðborg Tyrk- lands, í gær. Engin hryðju- verkasamtök hafa lýst ábyrgð á ódæðinu. Ekki er liðinn mán- uður síðan 29 létust í síðustu sprengjuárás í borginni en þá lýstu herská samtök Kúrda yfir ábyrgð. Talsmaður lögreglunnar segir að líklega hafi verið um sjálfs- morðsárás að ræða en talið er nokkuð öruggt að um bíla- sprengju hafi verið að ræða. Sprengingin varð nálægt Guven Park, sem er nærri stórum sam- gönguæðum í borginni. Hryðjuverkaárás í Tyrklandi Hryðjuverk í Tyrklandi í gær. TYRKLAND Slaka verður á trúnaði um heilsufar flug- manna, að sögn rannsóknar- nefndar í Frakklandi, sem rannsakaði til- drög og orsök Germanwings- slyssins í mars í fyrra. Andreas Lu- bitz, aðstoðarmaður flugvélar- innar, brotlenti vélinni viljandi í frönsku Ölpunum með 150 manns um borð og allir fórust. Læknir hans hafði hvatt hann til að leita sér aðstoðar geðlæknis nokkrum vikum fyrir slysið en yf- irmenn hans hjá flugfélaginu voru aldrei látnir vita og vissu því ekki um andleg veikindi flug- mannsins. Slakað verði á trúnaði um heilsufar Airbus flugvél. FRAKKLAND Vilhjálmur A. Kjaratansson vilhjalmur@mbl.is Kaupsýslumaðurinn Donald Trump þurfti að lúta í lægra haldi fyrir keppinautum sínum í forvali Repú- blikanaflokksins sem fram fór um helgina. Þingmaðurinn ungi Marco Rubio vann nokkuð öruggt í Washington DC með 37,3 prósent atkvæða en Trump fékk eingöngu 13,8 prósent og hafnaði í þriðja sæti. Ted Cruz, einn helsti keppinautur Trumps, vann stórsigur í Wyoming og hlaut 66,3 prósent atkvæða og Trump þurfti aftur að sætta sig við þriðja sætið með eingöngu 7,2 prósent at- kvæða. Helstu fréttaskýrendur vestan- hafs segja ósigur Trumps um helgina ekki þurfa að vera vísbend- ingu um vatnaskil í stuðningi repú- blikana við frambjóðendur. Hvorki Wyoming né Washington DC skila mörgum kjörmönnum og frambjóð- endur beini frekar kröftum sínum að stærri ríkjum í kosningabaráttu sinni. Línur gætu þó farið að skýr- ast á morgun þegar kosið verður um 358 kjörmenn í fimm ríkjum, Flórída, Ohio, Missouri, Illinois og Norður-Karólínu. Þá kemur betur í ljós hvort Trump sé að missa flugið eða hvort hann styrkir enn frekar stöðu sína. Samkvæmt Realclear- politics, sem heldur utan um með- altal fjölda skoðanakanna, leiðir Trump í öllum þessum ríkjum með þó nokkrum mun nema í heimaríki Johns Kasichs, Ohio, þar sem rík- isstjórinn og Trump mælast báðir með um 35 prósenta fylgi. Clinton nálgast endamarkið Þótt enn sé nokkuð í að Hillary Clinton tryggi sér útnefningu Demókrataflokksins fyrir komandi forsetakosningar tók hún enn eitt skrefið í átt að sigri um helgina en kosið var á yfirráðasvæðum Banda- ríkjanna á Norður-Maríanaeyjum í Kyrrahafi og Gvam. Clinton vann á Norður-Maríanaeyjum en þetta er í fyrsta sinn sem forval fer fram þar fyrir forsetakosningar. Obama biður um stillingu Á Gvam voru það repúblikanar sem héldu sitt forval og sigraði þingmaðurinn frá Texas, Ted Cruz. Kosið verður um 691 kjörmann hjá demókrötum á morgun; Clinton hefur þegar fengið 1.231 en keppi- nautur hennar Bernie Sanders hef- ur eingöngu 576. Til átaka kom milli stuðnings- manna Trumps og mótmælenda fyr- ir kosningafund Trumps sem hann ætlaði að halda á föstudag í Chi- cago. Þá var stuðningsmaður Trumps ákærður fyrir að slá mót- mælanda í andlitið á kosningafundi. Í viðtali við NBC sagði Trump að árásarmaðurinn hefði farið fram úr sér. Barack Obama, forseti Banda- ríkjanna, lét hafa það eftir sér að leiðtogar þyrftu að sameina fólk, ekki sundra, og vísaði þar til Do- nalds Trumps. Þá kallaði forsetinn eftir stillingu meðal frambjóðenda og stuðningsmanna þeirra. Trump tapaði um helgina AFP Kosningar Tekst Donald Trump að komast langleiðina með að tryggja sér sigurinn í forvali Repúblikanaflokksins á morgun þegar kosið verður í fimm stórum ríkjum, Flórída, Ohio, Missouri, Illinois og Norður-Karólínu?  Clinton enn á sig- urbrautinni  Von fyrir Ted Cruz og Marco Rubio

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.