Morgunblaðið - 14.03.2016, Side 23
Byggðastofnunar 2003-2011, vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi 2007-2013, rit-
stjóri Vesturlands, málgagns sjálf-
stæðismanna á Vestfjörðum, 2008-
2013, varaformaður Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga 2008-2010,
kjörræðismaður Noregs á Ísafirði
frá 2010, situr í stjórn Körfuknatt-
leiksfélags Ísafjarðar, frá 2011, í
stjórn Foreldrafélags Grunnskólans
á Ísafirði 2011-2015, er formaður
barna- og unglingaráðs Körfuknatt-
leiksfélags Ísfjarðar frá 2013, er for-
maður Samgönguráðs, skipuð af
innanríkisráðherra frá 2013, og er
kjörræðismaður Svíþjóðar á Ísafirði
frá 2015.
Birna segir að áhugamálin hafi
óneitanlega tengst félagsmálum um
langt árabil: „Ég byrjaði í félags-
málastússi í menntaskóla með þátt-
töku í nemendafélagsstörfum, var
síðan lengi í sveitarstjórnarmálum
og daðraði við landsmálin um tíma.
Að undanförnu hafa félagsstörfin þó
einkum tengst körfuboltaíþróttinni.
Ég hef fylgt öllum börnunum eftir í
þeirri íþróttagrein og hef verið í for-
ystu í barna- og unglingastarfinu
þar, ásamt góðu fólki.
Sumarbústaður stórfjölskyldu eig-
inmannsins er í Grunnavík í Jökul-
fjörðum og þar á fjölskyldan sínar
bestu stundir á sumrin í ótrúlegri
náttúru. Á þessum slóðum kemst
maður virkilega í samband við hina
óspjölluðu náttúru. Þarna erum við
rafmagnslaus og því blessunarlega
fjarri sjónvarpi, símum og netteng-
ingum. Betra frí er ekki hægt að
hugsa sér.
Þess utan hef ég lengi stundað
svigskíði þótt tíminn til þess sé aldrei
nægur en aðstaða til skíðaiðkunar á
Ísafirði er til mikillar fyrirmyndar.
Auk þess stundar fjölskyldan vél-
sleðamennsku sem er ótrúlega
skemmtilegur ferðamáti á hálendinu
í góðu veðri.“
Fjölskylda
Eiginmaður Birnu er Hallgrímur
Kjartansson, f. 6.3. 1959, heimilis-
læknir. Foreldrar hans voru Kjartan
Sigmundsson, f. 22.12. 1927, d. 11.6.
2009, frá Hælavík, sjómaður á Ísa-
firði, og María Hallgrímsdóttir, f. 2.7.
1938, d. 26.3. 2010, frá Dynjanda,
verkakona á Ísafirði.
Börn Birnu og Hallgríms eru
Hekla, f. 22.1. 1999; Hilmir, f. 2.2.
2002; Hugi, f. 2.2. 2002, og Heiður, f.
8.8. 2006.
Bróðir Birnu er Þórir Lárusson, f.
7.11. 1956, iðnverkfræðingur í Kópa-
vogi.
Foreldrar Birnu voru Lárus
Gunnarsson, f. 24.12. 1937, d. 4.4.
2004, flugvirki, og Dóra Ketilsdóttir,
f. 12.5. 1937, d. 8.6. 2012, skrifstofu-
maður.
Úr frændgarði Birnu Lárusdóttur
Birna
Lárusdóttir
Halldóra Halldórsdóttir
verkak. á Ísafirði
Jón Einarsson
sjóm. á Ísafirði
María Jónsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Ketill Guðmundsson
kaupfélagsstj. á Ísafirði
Dóra Ketilsdóttir
skrifstofum. á
Ísafirði og í Rvík
Guðmundur Guðmundsson
pr. og athafnam. á Ísafirði
Rebekka Jónsdóttir
dóttir Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum, húsfr.
á Ísafirði, af Gautlands- og Reykjahlíðarætt
Árni Skúli Gunnarsson
heimilislæknir í Rvík
Ólafur Kalstad
forstj. Sundhallar Rvíkur
Sigríður
Þorvarðardóttir
húsfr. í Rvík
Haraldur Guðmundsson
alþm., ráðherra og form.Alþýðuflokksins
Sigurður Guðmundsson
bakarameistari á Ísafirði
Kristján Jónsson
háyfirdómari, alþm. og ráðherra
Steingrímur Jónsson
alþm. og bæjarfógeti á Akureyri
Pétur Jónsson,
alþm. og ráðherra
Jón Gauti Jónsson
framkvæmdastj. KNÞ
Sigrún Jónsdóttir
húsfr. í Álftagerði við Mývatn
Þorlákur
Jónsson
sýslufulltr.
á Akureyri
Steingrímur Steinþórsson
forsætisráðherra
Jón Óli Þorláksson
b. í Borgarholti í
Biskupstungum
Hjálmar Jónsson
dómkirkjupr. og
fyrrv. alþm.
Sólveig
Einarsdóttir
rithöfundur
Haukur
Haraldsson
deildarstj. hjá
Trygginga-
stofnun ríkisins
Jón Sigurðsson
fyrrv. alþm.og ráðherra
og aðalbankastj.Norræna
fjárfestingarbankans
Ólafur Þór
Hauksson
sérstakur
saksóknari
Anna Kristín
Jónsdóttir
útvarpskona
Páll Eggert Ólason
prófessor
Kristín Óladóttir
húsfr. í Brekkuhúsi
í Vestmannaeyjum
Ragnhildur
Sigurjónsdóttir
húsfr. í Rvík
Óli Kr. Sigurðsson
forstj. og eigandi
OLÍS
Birna Björnsdóttir
húsfr. á Akureyri
Lárus Jakobsson Thorarensen
kaupm. ogmeðhjálpari á
Akureyri
Birna Lárusdóttir
Thorarensen
verkakona áAkureyri
Gunnar K. Þorvarðsson
rafeindavirkjam. í Rvík
Lárus G. Gunnarsson
flugvirki í Rvík
Gróa Bjarnadóttir
húsfr. í Rvík
Óli Þorvarðarson
steinsmiður í Rvík
Þorvarður Þorvarðarson
prentsmiðjustj. Gutenbergs,
bæjarfulltr. í Rvík, form. HÍP, stofnandi
Æskunnar og einn stofnenda LR
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016
Jón Eiríksson fæddist 14. mars1916 í Reykjavík. Foreldrarhans voru Eiríkur Valdimar
Albertsson, dr. theol., skólastjóri
Hvítárbakkaskóla og prestur á
Hesti í Andakíl, Borg., síðar í
Reykjavík, f. 1887, d. 1972, en for-
eldrar Eiríks voru Albert Ágúst
Jónsson, bóndi í Flugumýrarhreppi,
Skag., og k.h. Stefanía Pétursdóttir
húsfreyja, og frú Sigríður Björns-
dóttir, húsfreyja og kennari, f. 1891,
d. 1975, en foreldrar hennar voru
Björn Jónsson, prófastur á Miklabæ
í Blönduhlíð, Skag., og k.h. Guðfinna
Jensdóttir húsfreyja.
Jón varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1937 og cand.
juris. frá Háskóla Íslands 1943. Jón
var settur skattstjóri í Vestmanna-
eyjum frá 1945 til 1962 og skipaður
skattstjóri í Vesturlandsumdæmi frá
1962. Hann gegndi því starfi til 1.
júlí 1986 með aðsetur á Akranesi.
Jón var einn af stofnendum Tón-
listarfélags Vestmannaeyja og for-
maður stjórnar Skattstjórafélags Ís-
lands frá stofnun þess 1960 til 1968.
Hann ritaði m.a. tvo þætti í bókina
Ár og dagur í víngarði drottins og
hafði einnig umsjón með útgáfu
þeirrar bókar ásamt systkinum
sínum.
Jón var tvíkvæntur. Fyrri eigin-
kona hans var Anna Guðrún Jóns-
dóttir, húsfreyja, f. 29.7. 1909, d.
11.1. 1952. Foreldrar hennar voru
Jón Jakobsson, íshúsvörður í
Reykjavík, og k.h. Þorbjörg Nikul-
ásdóttir. Jón og Anna Guðrún áttu
eina dóttur, Þorbjörgu, hjúkrunar-
fræðing og kennara, f. 1942.
Seinni eiginkona Jóns var Berg-
þóra Guðjónsdóttir, f. 21.4. 1919, d.
30.6. 2004, húsfreyja. Foreldrar
hennar voru Guðjón Jónsson, járn-
smíðameistari í Reykjavík, og k.h.
Halldóra Hildibrandsdóttir hús-
freyja. Börn Jóns og Bergþóru eru
Sigríður viðskiptafræðingur, f. 1954,
Halldóra bókasafnsfræðingur, f.
1955, Guðjón rafmagnsverkfræð-
ingur, f. 1957, og Eiríkur viðskipta-
fræðingur, f. 1959.
Jón Eiríksson lést á Akranesi
21.10. 1997.
Merkir Íslendingar
Jón
Eiríksson
90 ára
Bergsteinn Ólason
Helga Jóna Jensdóttir
Margrét Tómasdóttir
85 ára
Guðmundur Theódórsson
Lilja Jónsdóttir
Ólöf Runólfsdóttir
80 ára
Elsa Pétursdóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Inga Cleaver
75 ára
Áslaug Freysteinsdóttir
Heiðar Árnason
Jónína G. Kjartansdóttir
Sigurlaug Bjarnadóttir
70 ára
Anna Jóhannsdóttir
Guðmundur Þorgeirsson
Guðrún Árný Þórbjarn-
ardóttir
Inga Jóna Sigfúsdóttir
Jón Sigurjónsson
Pétur Þór Jónsson
60 ára
Bergþóra Skarphéðinsd.
Birgir Pétursson
Björk Högnadóttir
Davíð Þór Lúðvíksson
Friðjón Ingi Jóhannsson
Gunnar Jósef Jóhannesson
Gunnar Þór Ármannsson
Hjördís H. Bjarnadóttir
Ingibjörg Axelsdóttir
Jóhannes Rúnar Sveinsson
Jón Sigurðsson
Józef Pogorzelski
Óskar Bjartmarz
Rebekka Alvarsdóttir
Svanhvít Aðalsteinsdóttir
Þorkell Ericsson
Þorkell Gunnar Þorkelsson
50 ára
Birna Lárusdóttir
Duangphon Plapsri
Eyþór Eiðsson Thoroddsen
Haraldur Halldórsson
Jónas Steindór Óskarsson
Leszek Antoni Ott
Sigurlaug Anna Adólfsd.
Sveinn Heiðar Bragason
Valdimar Guðmundsson
40 ára
Atli Ragnar Ólafsson
Árni Jónsson
Benedikt Hermannsson
Einar Ingi Einarsson
Hafdís Dögg Guðmundsd.
Helga Berglind Jónsdóttir
Helga María Albertsdóttir
Sindri Sigurgeirsson
Snjólaug María Guðjónsd.
30 ára
Andrea Sif Don
Angjelin Sterkaj
Anna Kristín Cartesegna
Birna Þórsdóttir
Daði Hjálmarsson
Dagur Hilmarsson
Daniel James Roche
Daphne Iris van Vliet
Freyja Ásgeirsdóttir
Hjálmar Óli Helgason
Kolbjörn Ivan Matthíasson
Lillian Denise Fisher
Mariia Vertikova
Monika Sirvyte
Sathian Sophab
Stefan Claudiu Codospan
Steinþór Júlíusson
Sune Birk Loft
Sveinn Gíslason
Til hamingju með daginn
40 ára Helga er Reykvík-
ingur en býr í Garðabæ
og er flugfreyja hjá Wow
air.
Maki: Grétar Már Sveins-
son, f. 1977, gjaldeyris-
miðlari hjá Arion banka.
Börn: Aron Dagur, f.
2009, og Margrét María,
f. 2014.
Foreldrar: Albert Ein-
arsson, f. 1949, og f.
María Sveinsdóttir, f.
1952. Fósturfaðir er Gils
Friðriksson, f. 1953.
Helga María
Albertsdóttir
30 ára Anna Kristín er
fædd og uppalin á Tórínó
á Ítalíu en býr í Reykjavík.
Hún er sálfræðingur og
vinnur hjá Sálfræðingum
Höfðabakka.
Maki: Guðjón Idir Guðnýj-
arson, f. 1979, fram-
kvæmdastjóri IMMI.
Foreldrar: Alberto Carte-
segna, f. 1950, sjálfstætt
starfandi, bús. í Tórínó, og
Brynja Tomer, f. 1963,
vinnur hjá VÍS, bús. á
Seltjarnarnesi.
Anna Kristín
Cartesegna
30 ára Dagur er Selfyss-
ingur en býr í Reykjavík.
Hann er framleiðslustjóri
hjá Marel og er raf-
iðnfræðingur að mennt.
Systkini: Dröfn Hilmars-
dóttir, f. 1989, og Ástrós
Hilmarsdóttir, f. 1997.
Foreldrar: Hilmar Björg-
vinsson, f. 1963, aðstoð-
arskólastjóri í Lindaskóla í
Kópavogi, og Sjöfn Mar-
vinsdóttir, f. 1966, starfs-
maður í Efnalaug Suður-
lands.
Dagur
Hilmarsson
Fákafeni 9 | 108 Reykjavík | Sími 553 7060 | Opið mánud.-föstud. 11-18 og laugard. 11-16
www.facebook.com/gaborserverslun
Dömuskór
í úrvali
Gæði & glæsileiki