Morgunblaðið - 14.03.2016, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016
Bandaríska
myndlistarkonan
Mille Guldbeck
heldur á morgun,
þriðjudag kl. 17,
fyrirlesturinn
„My Fingers are
My Eyes“ í Lista-
safninu á Akur-
eyri, Ketilhúsi.
Guldbeck hef-
ur undanfarið starfað í gesta-
vinnustofu Gilfélagsins og segir frá
því og verkum sem hún vinnur í mál-
verk og textíl. Hún vinnur annars
alla jafna bæði í Bandaríkjunum og
Danmörku og er prófessor í málara-
list við Bowling Green-ríkisháskól-
ann í Ohio í Bandaríkjunum.
Fingur sem augu
Mille Guldbeck
Fimmtán barnabækur, sem komu út
á árinu 2015, voru um helgina til-
nefndar til Barnabókaverðlauna
Reykjavíkur 2016 sem afhent verða í
Höfða síðasta vetrardag, þ.e. mið-
vikudaginn 20. apríl nk.
Tilnefnt var í þremur flokkum,
fimm bækur í hverjum, og fór at-
höfnin fram í Gerðubergi þar sem
börn og unglingar röppuðu fyrir
gesti og léku á hljóðfæri.
Besta frumsamda barnabókin
Í flokknum besta frumsamda
barnabókin á íslensku voru tilnefnd-
ar bækurnar Eitthvað illt á leiðinni
er – Hryllingssögur barna af frí-
stundaheimilum Kamps eftir 19
börn á aldrinum átta til tíu ára í rit-
stjórn Markúsar Más Efraim; Kop-
arborgin eftir Ragnhildi Hólmgeirs-
dóttur; Mamma klikk! eftir Gunnar
Helgason; Vetrarfrí eftir Hildi
Knútsdóttur og Ugla & Fóa og mað-
urinn sem fór í hundana eftir Ólaf
Hauk Símonarson.
Afbragðs þýðing ársins
Í flokknum afbragðs þýðing á er-
lendri barnabók voru tilnefndar
bækurnar Brúnar eftir Håkon Øvr-
eås sem Gerður Kristný þýddi; Hvít
sem mjöll eftir Salla Simukka sem
Erla E. Völudóttir þýddi; Skugga-
hliðin og Villta hliðin eftir Sally
Green sem Salka Guðmundsdóttir
þýddi; Sögur úr norrænni goðafræði
eftir Alex Frith og Louie Stowell
sem Bjarki Karlsson þýddi og Violet
og Finch eftir Jennifer Niven sem
Birgitta Elín Hassel og Marta Hlín
Magnadóttir þýddu.
Besta myndskreytta bókin
Í flokknum best myndskreytta ís-
lenska barnabókin voru tilnefndar
Af hverju eru jöklar og ís á jörðinni?
eftir Helga Björnsson með mynd-
skreytingum eftir Þórarin Má Bald-
ursson; Eitthvað illt á leiðinni er eft-
ir ýmsa höfunda með myndum eftir
Erlu Maríu Árnadóttur, Fanneyju
Sizemore, Ingu Maríu Brynjars-
dóttur, Lindu Ólafsdóttur, Sigmund
Breiðfjörð, Sigrúnu Eldjárn og Þór-
eyju Mjallhvíti, en myndritstjóri var
Inga María Brynjarsdóttir; Skín-
andi eftir Birtu Þrastardóttur sem
jafnframt myndskreytti; Ugla & Fóa
og maðurinn sem fór í hundana eftir
Ólaf Hauk með myndskreytingum
eftir Lindu Ólafsdóttur og Viltu vera
vinur minn? eftir Bergrúnu Írisi
Sævarsdóttur sem einnig mynd-
skreytti.
Barnabókaverðlaun Reykjavíkur
verða í vor veitt í fyrsta sinn eftir
sameiningu Barnabókaverðlauna
skóla- og frístundaráðs og Dimma-
limmar, íslensku myndskreytiverð-
launanna. Dómnefnd sem tilnefnir
og sker úr um verðlaunahafa er
skipuð Brynhildi Björnsdóttur, Dav-
íð Stefánssyni, Gunnari Birni Mel-
sted, Kristínu Arngrímsdóttur og
Jónu Björgu Sætran.
Þess má að lokum geta að sýn-
ingin Þetta vilja börnin sjá stendur
nú sem hæst í Gerðubergi, en þar
getur að líta úrval myndskreytinga
úr íslenskum barnabókum sem
komu út á liðnu ári þar sem m.a. má
skoða myndir úr tilnefndum bókum.
silja@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Tilnefningar Fimmtán barnabækur sem komu út á árinu 2015 voru um helgina tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur sem veitt verða 20. apríl nk.
15 bækur í
þremur flokkum
Rapp Þeir Grettir Valsson og Ágúst Beinteinn báðir úr Hagaskóla röppuðu.
Tónlist Þær Samar-E-Zahida Uz-Zaman sem lék á fiðlu og Þóra Fríða Sæ-
mundsdóttir spilaði á píanó fluttu tónlistaratriði frá Tónskóla Sigursveins.
Tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur 2016
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
REYKJAVÍK 5:50
BROTHERS GRIMSBY 8, 10
TRIPLE 9 8
ZOOTROPOLIS 2D 5:40 ÍSL.TAL
FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 5:50, 8, 10
DEADPOOL 10:25
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
-T.V., Bíóvefurinn