Víkurfréttir - 29.06.1995, Síða 3
VlKUPFRÉTTIR
29. JÚNÍ 1995
3
Frumvinna við flutning á Bláa lóninu hafin. Hundruð milljóna framkvæmdir á teikniborðinu:
Bláti lónið
verður gert að
alvöru baðstað
-með lónum, laugum, vatnsleikjagarði ogfull-
kominni búningsaðstöðu
Örn KE 13:
Burðargetan
aukin í
1100 tonn
Ákveðið hefur verið að
ráðasl í breytingar á
loðnuskipinu Erni KE 13
og auka burðargetu skips-
ins upp í 1100 tonn. Ut-
gerð skipsins er búin að fá
loforð um fyrirgreiðslu og
forvinna vegna breyting-
anna er hafin. Skipinu
verður breytt hjá skipa-
smíðastöðinni Nauta í
Póllandi og áformað er að
þeim ljúki um næstu ára-
mót.
Það er Skipatækni hf.
sem hefur hannað breyt-
ingarnar en meðal þess
sem gert verður er að setja
nýjan framenda á skipið
með 9 kælitönkum fyrir
aflann með það fyrir aug-
um að auka gæði aflans en
Örn Erlingsson, skipstjóri
segir í samtali við Fiski-
fréttir að það sé Ijóst að ís-
lenski nótaskipaflotinn sé
fyrir löngu orðinn úreltur
og þessi grein sé orðin
áratugum á eftir því sem
tíðkast í nágrannalöndun-
um.
„Við höfum beðið eftir
þessari samþykkt stjórnar
Hitaveitu Suðurnesja. I fram-
haldinu höfum við hafið
vinnu á útlitsgerð svæðisins.
Þetta verður fyrsti alvöru
baðstaðurinn á Islandi“,
sagði Grírnur Sæmundsen,
framkvæmdastjóri Heilsufé-
lagsins við Bláa lónið.
Stjórn Hitaveitunnar sam-
þykkti á síðasta fundi sínunt
að hefjast handa við endan-
legar rannsóknir og áætlana-
gerð varðandi möguleika á
dælingu Bláa lóns vökvans á
nýjan stað, en eins og áður
hefur komið fram verður
Bláa lónið flutt vestar í
hraunið, um 700 metra frá
núverandi stað. Að sögn Júlí-
usar Jónssonar, forstjóra HS,
er flutningur lónsins frá nú-
verandi stað nauðsynlegur
vegna þeirrar starfsemi sem
hitaveitan er með í orkuver-
inu. „Starfsemi þessara
tveggja aðila fer í raun ekki
vel saman svona nálægt hvor
öðrum“, sagði Júlíus. I rann-
sóknunum verður kannað
hver hugsanlegur kostnaður
verður við að flytja jarðsjó
(Bláa lóns vökvann) á nýja
staðinn.
Grímur Sæmundsen sagði
að ákveðnar hugmyndir væru
uppi um hvernig framtíðar
baðstaður við Bláa lónið
yrði. Hann yrði byggður upp
á alvöru „lóni“ og minni
laugum og auk þess yrði sett-
ur upp myndarlegur vatns-
leikjagarður, fullkomin bún-
ingsaðstaða og fleira. „Þetta
„konsept“, - baðstaður, hefur
aldrei verið þróað hér á landi
en það ætlum við okkur að
gera. Það verður hugsað til
framtíðar og hlutirnir gerðir
myndarlega svo hægt verða
að standa undir því að svæð-
ið sé einstakt í sinni röð“,
sagði Grímur. Á nýja staðn-
um verður sérstök aðstaða
fyrir meðferðarsjúklinga en
einnig fyrir þá sem ætla ein-
ungis að leita að vellíðan og
afþreyingu.
Grímur sagði að lögð yrði
áhersla á uppbyggingu þeirr-
ar þjónustu sem hægt verður
að bjóða upp á en ekki gisti-
aðstöðu, alla vega um sinn,
en hugmyndir voru uppi um
meiriháttar uppbyggingu á
gistiaðstöðu og kynntar í
fyrra. Þá voru einnig hug-
myndir um að færa lónið
vestur fyrir Þorbjarnarfjall en
fallið var frá því vegna fjar-
lægðar þar sent kostnaður
við dælingu jarðsjávarins
yrði mun meiri.
Að sögn Gríms hefur að-
sókn í lónið aukist jafnt og
þétt. Bláa lónið er sífellt að
verða þekktara og nú væri
svo komið að flestir teldu
það orðið þekktasta „ferða-
mannastað" á íslandi. Það
væri búið að slá Gullfoss og
Geysi úr fyrsta sætinu.
Garðyrkjuáhöld í miklu
úrvali á goðu verði!
Járn & Skip
v/Víkurbraut - sími 421-5415
28 x 95 = 125 kr. metrinn
22 x 95 = 106 kr. metrinn
nvarifi efni heflað á fjóra vegu