Víkurfréttir - 29.06.1995, Síða 11
VllfllPFRÉTTIR
29. JÚNÍ1995
11
Heilladísirnar ekki
með Grindavík
Ekki tókst Grindvíkingum að
stöðva sigurgöngu Islands-
meistara Skagamanna í Sjóvá-
Almennra deildinni í knatt-
spymu sl. sunnudag. Lokatölur
urðu 1:2.
Jafnt var í fyrri hálfleik, ekk-
ert mark skorað en meistaralið
ÍA var þó búið að vera mun
sterkari aðilinn. Þeir fengu þó
gefins vítaspyrnu á fyrst mín-
útu síðari hálfleiks. Eyjólfur
dómari Olafsson dæmdi þá víti
þegar boltinn hrökk í varnar-
mann UMFG sem stóð rétt utan
við vítateig. Það mátti greini-
lega sjá þegar sjónvarpið sýndi
atvikið sl. mánudagskvöld. Al-
exander Högnason skoraði úr
vítinu og nokkrum mínútum
síðar bætti jaxlinn Olafur Þórð-
arson marki við sem hann gerði
á snilldarlegan liátt, 0:2.
Heimamenn voru ekki á þeim
buxnum að gefast upp. Þeir
skoruðu gott mark þegar
nokkrar mínútur voru til
leiksloka. Var þar að verki
Olafur Ingólfsson eftir send-
ingu frá Grétari Einarssyni.
Heppnin hefur ekki verið
með nýliðum Grindavíkur í
deildinni í sumar þrátt fyrir að
liðið hafi oft sýnt ágætis leik.
Liðið missti til að mynda unnin
leik gegn Fram sl. fimmtudag í
jafntefli. Þá lék Grindavík sinn
besta leik á tímabilinu og yfir-
spilaði lið Fram oft á tíðum.
Síðustu fimmtán mínúturnar
skoraði Fram tvö mörk og
krækti sér í annan stigið.
I leiknum gegn ÍA vakti það
athygli að helsta stjama UMFG
á síðasta ári, markvörðurinn
Haukur Bragason var kominn á
varamannabekkinn. Varma-
markvörðurinn Albert Sævars-
son kom í hans stað og stóð sig
með prýði í sínum fyrsta 1.
deildarleik, og ljóst að erfitt
verður fyrir Hauk að endur-
heimta sæti sitt.
Einar og Ingi-
björg unnu
Ranglega var sagt í síðasta
tölublaði frá úrslitum í flokki
þar sem konan púttaði en karl-
inn sló í Þröskuldar-hjóna og
parakeppninni í golfi hjá GS.
Golfhjónin kunnu Einar Helgi
Aðalbjörnsson og Ingibjörg
Hilmarsdóttir sigruðu og voru
vel að þeim sigri komin. Þá var
Guðný eiginkona Einars Guð-
bergs ranglega feðruð. Hún er
Sigurðardóttir. Þau Einar og
Guðný hlutu Þröskuldinn ógur-
lega og samkvæmt okkar heim-
ildum hefur það þegar fært
þeim gæfu, en sagt er að
Þröskuldurinn færi öllum
hjónaböndum mikla gæfu og
gott gengi. Vísa kunnugir
menn í það þegar Einar fóru
holu í höggi á síðasta degi í
meistaramótinu. Það hafi ein-
skær „Þröskuldar-heppni“...
Shellmótið 1995:
Robert J. Speagle skoraði
þrenmi í úrslitaleik
Keflavíkurs og Fylkis.
Keflavtk vann 5.-0
Keflavík Shellmóts-
meistarar C-liða
Suðurnesjalið náðu ágætum
árangri á Shellmótinu I995
sem haldið var í Vestmanna-
eyjum um síðustu helgi. Kefla-
vík varð Shellmótsmeistari C-
liða eftir stórsigur gegn Fylki í
úrslitum 5-0. Róbert J. Speagle
gerði þrennu og Davíð Ö. Hall-
grímsson og Karl D. Magnús-
son gerðu sitt markið hvor.
Pétur I. Pétursson Keflvík-
ingur var í 6.-8. sæti yfir
markahæstu menn, hann skor-
aði 9 mörk. Þórarinn Máni
Borgþórsson Njarðvíkingur
skoraði 8 mörk og Símon G.
Þorsteinsson, UMFG setti inn 7
mörk. Róbert J. Speagle í C-
liði Keflvíkinga skoraði I I
mörk og félagi hans Karl D.
Magnússon skoraði 9.
Björgvin Sigmundsson Kefl-
víkingur lenti í 1. sæti og Ólaf-
ur Geir Jónsson í 2. í keppni í
skothittni. Ármann Ö. Vil-
bergsson frá UMFG var í 3.
sæti í knattreki eldri flokka og
Kristján Rúnar Sigurðsson í
Njarðvík var efstur í knattreki
yngri flokka. Þórarinn Máni
Borgþórsson var þriðji bestur í
að halda bolta á lofti og Torfi
Sigurbjörn Gíslason Njarðvík-
ingur var þriðji skotfastasti.
Grindavík var sterkasta liðið
og C-lið Njarðvíkinga fékk
viðurkenningu fyrir háttvísi.
Toto keppnin í knattspyrnu:
Góður fyrri hálfleikur dugði
ekki gegn Frökkunum
- Keflvíkingar töpuðu 1:2 fyrir Mets
„Við sofnuðum á verðinum
tvisvar í síðari hálfleik og það
kostaði sigurinn. Þeir fóru
tvisvar í gegnum vömina með
einföldu þríhyrningsspili,
nokkuð sem við vorum sérstak-
lega búnir að einbeita okkur að
því passa. Möguleikamir gegn
Skotum á laugardaginn hljóta
að vera einhverjir því þetta
franska lið er af mörgum talið
það sterkasta í þessari keppni",
sagði Þórir Sigfússon, þjálfari
Keflavíkurliðsins í knattspymu
sem lék gegn franska liðinu
Metz f Keflavík sl. sunnudag.
Lokatölur urðu 1:2 fyrir Frakk-
ana.
Keflvíkingar léku oft mjög
vel undan vindinum í fyrri hálf-
leik og uppskáru eitt mark sem
auðveldlega hefðu getað orðið
fleiri. Kjartan Einarsson skor-
aði mark Keflavíkur. Hann lyfti
boltanum yfir markvörð Metz.
Frakkarnir skoruðu bæði
mörk sín í síðari hálfleik. Kefl-
vikingar áttu varla færi í síðari
hálfleik og voru í erfiðleikum
með að byggja upp spil gegn
sterkum vindinum og varnar-
mönnum Metz.
Ökkli komst
ekki að hælum
Reynismanna
- Reynir vann 9-2
Reynir sigraði Ökkla 9-2 í 4. deild
Islandsmótsins í knattspymu í Sand-
gerði á laugardag. Jónas Gestur Jón-
asson skoraði fjögur af mörkum
Reynis.
Reynisliðið er á mikilli siglingu
þessa dagana. Yfirburðir Reynis vom
miklir í leiknum gegn Ökkla eins og
tölumar gefa til kynna og sigurinn
hefði getað orðið enn stærri og óhætt
að segja að Ökkli hafi ekki komist
með tæmar í leiknum þar sem Reyni-
samenn höfðu hælana. Það er
greinilaga styrkur fyrir Reynismenn
að Jónas Gestur Jónasson skuli vera
kominn aftur til liðsins eftir stutt
stopp hjá H.K.
Sigurinn hetði getað orðið stærri
en Ieikmenn sögðu eftir leikinn að
það væri erfitt að halda einbeitningu
þegar mótstaðan væri lítil. Mörk
Reynis gerðu Jónas Gestur sem vasr
með tjögur, Sigurður Gylfason með
2 og þeir Amar Óskarsson, Bergur
Eggertsson og Marteinn Guðjónsson
skomðu sitt markið hver.
Næsti leikur Reynis er gegn Bmna
1. júlí og fer leikurinn fram á Akra-
nesi.
Njarðvíkingar unnu góðan sigur
gegn Bmna 4-1 og var það Bjöigvin
Friðriksson og Kári Guðmundsson
sem skomðu 2 mörk hvor. Njaiðvík-
ingar spila næst útíleik gegn Gióttu á
laugardag.
Víkingasigur
hjá Víði
Mikill baráttuleikur var í Garðin-
um á fimmtudaginn þegar Víðis-
menn sigmðu Víking 1-0 í 2. deild
karla í knattspymu. Olaíur Ivar Jóas-
son nýtti sér mikinn stnekkingsvind
og skoraði beint úr homi.
Sigurður Valur var óheppinn með
færi í leiknum og brenndi af víti í
fyrri hálfleik en seinni hálfleikur ein-
kenndist af góðri vöm Víðismanna
sem héldu hreinu út leikinn. Næsti
leikur Víðis verður gegn Fylki í
Garðinum á mánudag.
Hsímanúmer við
Keflavíkurkirkju
Keflavíkurkirkja 421-4326
Fax Keflavíkurkirkju 421-4328
Séra Ólafur Oddur Jónsson, sóknarprestur, heima 421 -1080
Séra Sigfús B. Ingvason, aðstoðarprestur, heima 421 -4345
Einar Öm Einarsson, organisti, heima 421 -4563
Helga Bjamadóttir, meðhjálpari og kirkjuvörður, heima 421-2958
Safnaðarheimili 421-4327
Auður Brynjólfsdóttir, húsvörður, heima 421 -2387
Matthildur Óskarsdóttir, húsvörður, heima 421 -2594
Skrifstofa presta 421 -4337
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA