Víkurfréttir - 09.05.1996, Qupperneq 3
Unga fólkið undir eftirliti í miðbœ Keflavíkur:
Áberandi ölvun
14-15 ára unglingsstúlkna
- eins og grófustu sjóarar, segir lögreglan
Lögreglan í Keflavík hefur
síðustu helgar og þau kvöld
sem skemmtistaðir hafa verið
opnir frameftir haft sérstakt
eftirlit með unga fólkinu í
miðbæ Keflavíkur. Að sögn
Karls Hermannssonar, aðstoð-
aryfirlögregluþjóns, hafa ung-
lingsstúlkur, 14-15 ára gaml-
ar, vakið atygli lögreglu-
manna fyrir hátterni sitt.
„Ölvun stúlknanna hefur ver-
ið áberandi og þær hafa jafn-
vel hegðað sér eins og gróf-
ustu sjóarar hér áður fyrr,“
sagði Karl í samtali við blað-
ið. Lögrelan hefur haft af-
skipti af þessum stúlkum.
Lögreglan þurfti einnig að
hafa afskipti af 15 ára gamalli
stúlku við Fagragarð í Kefla-
vík aðfaranótt sunnudags.
Hún var ölvuð og hafði einnig
tekið inn töflur. Nágrannar
urðu varir við öskur frá
stúlkunni og voru bæði kölluð
til lögregla og sjúkrabíll. Dælt
var upp úr stúlkunni og hún
flutt á Sjúkrahús Reykjavíkur
til frekari rannsóknar.
GARDAUÐUN
Guðm. Ó. Emilssonar
Nú er tími vorverkanna. Klippi tré og runna, hreinsa
úr beðum, kantsker o.fl. Býð einnig upp á sumarúðun
Ivarist þó ótímabæra og jafnvel óþarfa úðun) svo og
úðun gegn hinum hvimleiða roðamaur.
UPPL. I SIMUM 893 0705 & 421 2639
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA augl5>una
♦ Hópurinn sem tók þátt í keppninni í FS um síðustu helgi.
Fyrsta suöukeppnin í fnamhaldsskóla
Fyrsta keppnin á framhaldsskólastigi í suðu fór fram f Fjölbrautaskóla Suðumesja um síðustu
helgi. Tugur nemenda tók þátt í keppninni enda til mikils að vinna. Landsbanki fslands gefur
sigurvegaranum 50.000 krónur en einnig em vegleg verðlaun fyrir annað og þriðja sætið.
Keppn var í þremur mismunandi suðum. Logsuðu með teini, rafsuðu og hlífðargassuðu.
Keppt var bæði í gæðum og tíma. Allar suður verða sjónskoðaðar og þær þrjár bestu röntgen-
myndáðar. Urslit verða kunngerð við útskrift 24. maí næstkomandi.
Opinn fundur
um sjávarútveg
Þingmennirnir Hjálmar Árnason og
Magnús Stefánsson boöa til opins fun-
dar um sjávarútveg sunnudaginn
12. maí kl. 16 - 18 í
Framsóknarhúsinu við Hafnargötu (við
hliðina á Glóðinni).
Fundarefni m.a:
síldarsamningar,
staða vertíðarbáta,
halda krókasamningarnir?
línutvöföldun
Fundurinn er öllum opinn
Starfsmannafjöldi Reykjanesbœjar:
Ekki fækkun en meiri þjónusta
Á bæjastjómarfundi Reykja-
nesbæjar sl. þriðjudag barst
skriflegt svar frá Ellerti Ei-
ríkssyni bæjarstjóra við fyrir-
spum Ólafs Thordersen, vara-
bæjarfulltrúa Alþýðuflokks
varðaði starfsmannafjölda
bæjarins fyrir og eftir samein-
ingu Keflavíkur, Njarðvíkur
og Hafna.
Kom fram í svari Ellerts að
heildarfjöldi starfsmanna
Reykjanesbæjar hafi verið
265,27 eftir sameiningu en sé
270,84 í dag. Stöðugildum
eftir sameiningu hefur fækkað
um 10,55. Ný störf em hins
vegar 5,57 og hafa þau verið
auglýst eins og lög gera ráð
fyrir. Sameiginlegur launa-
kostnaður sveitafélaganna
sem að nýja bæjarfélaginu
standa var 501.926, millj. fyr-
ir sameiningu en eftir hana
530.800, millj. sem er hækk-
un um 5,75%.
Ellert sagði sagði þjónustu
bæjarins hafi aukist til muna
og við stofnun Markaðs- og
atvinnumálaskrifstofu hafi
bæst við 3,66 stöðugildi.
Sagði hann einnig starfs-
mannafjölda hafa dregist
saman þrátt fyrir aukna þjón-
ustu á mörgum sviðum. Ánna
Margrét Guðmundsdóttir (A)
sagði það mikilvægt að allar
stöður væm auglýstar og eng-
ar undantekningar gerðar á
því. Drífa Sigfúsdóttir (B)
sagði að hlutimir hafi ekki átt
að gerast strax og að tekist
hefði að ná fram hagræðingu
sem og aukinni þjónustu eftir
sameiningu.
Löggan gegn nöglum!
Nú eiga allir bílar að vera komnir af nagladekkjum. Þetta
veit löggan og er nú að fara í herferð gegn nöglum sem
spæna upp götumar. Ökumenn sem enn em á nagladekkjum
verða sektaðir og þó er vissara að nota peningana til að skip-
ta yfir á sumardekkin, frekar en að borga þúsundir króna til
ríkissjóðs.
Hitaveita Suðurnesja
ÚTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í verkið „Lager
Svartsengi, endurbætur og breytingar, HS96003“. Helstu
verkþættir eru klæðning efri hluta langveggja að utan, íset-
ning þakglugga, endurbætur á loftræsingu í húsinu og frá-
gangur geymsluherbergis fyrir lyftara. Verkinu skal að fullu
lokið 31. júlí 1996.
Útboðsgögn verða afhent hjá Hitaveitu Suðurnesja,
Brekkustíg 36, Reykjanesbæ, frá og með föstudeginum 10.
maí 1996 gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð
á sama stað miðvikudaginn 22. maí 1996 kl. 11.00
HITAVEITA SUÐURNESJA
Víkurfréttir
3