Víkurfréttir - 09.05.1996, Síða 7
R
Ð
Hitaveitan að
hlutafélagi?
Tillaga um stofnun þriggja
manna nefndar til að vinna að
athugun á hagkvæmni þess að
breyta rekstrarfyrirkomulagi
Hitaveitu Suðurnesja, t.d. í
hlutafélag, var borin upp á
síðasta stjómarfundi fyrirtæk-
isins.
Stungið var upp á stjómarfor-
manni, varaformanni og full-
trúa fjármálaráðuneytisins í
nefndina en vegna óskar eins
stjómarmanns var afgreiðslu
tillögunnar frestað til næsta
fundar.
Forstjóri hefur rætt þetta mál á
undanförnum aðalfundum
Hitaveitunnar og gerði það
nokkuð ítarlega á síðasta
fundi sem haldinn var fyrir
skömmu. Lýsti hann yfir
áhyggjum sínum á núverandi
fyrirkomulagi og nefndi skatt-
lagningu sveitarfélaga á fyrir-
tækinu sérstaklega í því sam-
bandi.
I tillögunni á nefndin að vinna
með forstjóra að málinu. Jafn-
framt því verði nefndinni falið
að gera athugun á kostum og
göllum þess, að sveitarfélögin
yfirtaki með einhveijum hætti
hlut ríksins í fyrirtækinu, m.a.
með því að kanna með hvaða
hætti það gæti orðið. Þessar
athuganir verði unnar í sam-
ráði við endurskoðendur fyrir-
tækisins og aðra ráðgjafa eftir
því sem nefndin telur þörf á.
Stefnt er að því að nefndin
ljúki störfum eigi sfðar en í
október næstkomandi.
FAGLEG RÁÐGJÖF
ALLT ÞAÐ NÝJASTA í GARDÍNUEFNUM
25% AFSLÁTTUR
VÍKURBRAUT 62 - GRINDAVÍK - SlMI 426 8711
Kona nef-
bnotin í
miðbænum
Tvítug stúlka hefur verið
kærð fyrir árás á tuttugu og
sex ára kynsystur sína í mið-
bæ Keflavíkur um þarsíðustu
helgi. Kærandinn nefbrotnaði
í átökunum. I skýrslu lögreglu
segist hún einnig hafa verið
slegin í andlit og kvið og í sig
hafa verið sparkað þar sem
hún-lá í götunni. Kærandi hef-
ur lagt fram áverkavottorð
læknis máli sínu til stuðnings.
Rekstrarform H.S:
Misiafnar skoðanir
Á bæjarstjórnarfundi
Reykjanesbæjar sl. þriðju-
dag var rekstrarform Hita-
veitu Suðurnesja til um-
ræðu. Lýsti Kristján Gunn-
arsson (Á) yfir ánægju sinni
með það að málið væri í at-
hugun og sagði hann þær
hugmyndir um að gera Hita-
veituna að hlutafélagi vera
eitthvað til þess að stefna
að. Ellert Eiríksson bæjar-
stjóri sagði málið vera í bið-
stöðu og Jóhann Geirdal (G)
ítrekaði að þótt ekkert væri
því til fyrirstöðu að kanna
möguleikan á nýju rekstrar-
formi þá hefði í raun engin
afstaða verið tekin af Hita-
veitunni þar sem kosningu
nefndar um málið hafi verið
frestað til næsta fundar HS.
Drífa Sigfúsdóttir (B) sagði
að það væri allt í lagi að
skoða formið en þó taldi
hún að núverandi rekstrar-
form hafi gefist vel.
Nóg að gera hjá Björgu sjúkrahjálfara
Björg Hafsteinsdóttir körfu-
knattleikskona úr Keflavík
opnaði í marsmánuði eigin
sjúkraþjálfunarstofu að Faxa-
braut 2 í Keflavík. Lauk hún
prófi í sjúkraþjálfun sl. vor og
vinnur hún nú að endurhæf-
ingu sjúklinga í samráði við
lækna í gegnum Trygginga-
stofnun Ríkisins.
Björg sagði stofuna vera
komna í fullan gang núna og
væri nóg að gera. „Það er alla-
vegana fólk að koma hingað.
Fólk kemur í endurhæfingu
eftir bílslys og einnig sé ég
mikið af fólki með vöðva-
bólgu eða smákvilla eins og
konur með beinþynningu.
Mikið af því fólki sem hingað
kemur í nudd hefur stundað
einhæfa vinnu þar sem alltaf
eru notaðar sömu hreyfmgar
en nuddið er þó aðeins hluti af
þessari sjúkraþjálfun. Það em
bæði böm og fullorðnir sem
og aldraðir sem koma hingað
í allskonar þjálfun", sagði
Björg.
Björg er ein með stofuna núna
en henni bætist viðauki með
vorinu en þá mun Adda Sigur-
jónsdóttir úr Njarðvík taka til
starfa með henni en hún út-
skrifast sem sjúkraþjálfari í
vor.
Það er margt í bígerð hjá
Björgu og hefur hún áhuga á
að starfa meira að fyrirbyggj-
andi hjartaendurhæfingu í
samstaifi við stóm stöðvamar
í Reykjavík, ,,Fólk er að fara
til Reykjavíkur til þess að fá
þá þjónustu og yrði þetta hag-
ræðing fýrir það“ sagði Björg.
Ennfremur sagði hún það vera
stóran mun fyrir fólk að þessi
þjónusta er í gegnum Trygg-
ingastofnun sem tekur þá þátt
í að greiða niður kosmaðinn.
♦ Björg á stofu sinni þar sem hún sinnir fólki á öllum aldri
sem kemur í endurhæfingu.
LEIKFELAG
KEFLMR
Aðalfundur
Aðalfundur Leikfélags Keflavíkur verður
haldinn mánudaginn 13. maí kl. 20.30 að
Vesturbraut 17 (Þotan)
Dagskrá fundarsins:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning stjórnar
3. Önnur mál
Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta og
taka með sé áhugasama gesti.
Heitt kaffi á könnuni, sjáumst hress
Kveöja, stjórnin
Innritun
Börn fædd árið 1990 eiga að hefja
skólagöngu sína í haust.
Af því tilefni er börnum í Njarðvík sem
fædd eru árið 1990 boðið ásamt for-
ráðamönnum að koma í heimsókn í
skólann föstudaginn 10. maí kl. 11.00
Skólastjóri
V íkurfréttir
7