Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.1996, Síða 3

Víkurfréttir - 15.05.1996, Síða 3
FEKK GRASLEPPUNET í SKRÚFUNA Skipverjar á Hugborgu skutu upp neyðarblysi og gerðu þannig vart við sig þegar þeir höfðu fengið grásleppunet í sknífuna utan við Grindavík í sfðustu viku. Strákarnir á Farsæli GK koniu Hugborgu til hjálpar og drógu liana til hafnar þar sem skorið var úr skrúfunni. HLAUT HÖFUÐÁVERKA Ekið var á bam við Baðsvelli í Grindavík á miðvikudag í fyrri viku. Bamið hlaut minni- háttar höfuðáverka en slapp að öðm leiti vel. ÞRETTÁN OFFLJÓTIR Lögreglan í Grindavík tók þrettán ökumenn fyrir of hraðan akstur í síðustu viku. Ökumaður bifhjóls var tekinn á 181 km. hraða á Grinda- víkurvegi. Þá gómuðu grind- vískir lögreglumenn ökumann bifreiðar á '159 km. hraða á Reykjanesbraut. Sigurður Ágústsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn sagði í samtali við blaðið að ökumenn mættu eiga von á að sjá Grindavíkur- lögregluna á brautinni en við hefðbundið eftirlit á Grinda- víkurvegi er alltaf tekinn „smá" rúntur á brautina þar sem yfirleitt eru teknir 2-3 fyrir of hraðan akstur. Sjómanna- og saltfisk- hátíð í Grindavík Mikil sjómanna- og saltfiskhátíð verður haldin í Grindavík dag- ana 29. maí - 2. júní þar sem boðið verður upp á Ijölbreytta dag- skrá í tilefni af sjómannadeginum. Meðal þess sem boðið verður upp á er dansleikir, tónleikar, Silungsveiði, fiskmarkaður, Grindavíkursaga, sjóklæði í 100 ár, Fuglaskoðun, Björgunarsýn- ing, Gönguferðir og fjömferðir, veitingastaðir verða með fisk- rétti og gestakokka og maigt fleira. Bæði tjaldsvæði og og hjól- hýsastæði verða ftí og geta bömin farið í leiktæki. Umskiftingar og annað fólk Bæjarmálefni Keflavíkur em sífelld gamanmál. Síðasta uppákoman er fréttin að Steinþór Jónsson, hótelstjóri, eigi nafnið Reykjanesbær. Bæjarstjóri telur, að sú hugsanlega deila, hver eigi nafnið, eigi að úrskurðast hjá félagsmálaráðherra. Ef að félagsmálaráðherra bakkar hann upp, þá er lýðræði Ellert Eiríkssonar fullnægt. Eins og allir vita hyggst safnaðarstjóm Keflavíkurkirkju reisa mis- jafnlega fallega skúra við kirkjuna, enda þótt mikill meiri hluti íbúanna hafi lýst andúð á því. Kirkjumála- ráðherra finnst það gott mál og þá finnst Ellert það frábært. Annar bæjarfulltrúi, Jóhann Geirdal, formaður verslunar- mannafélags Suðurnesja og varaformaður Alþýðu- bandalagsins hefur fengið lýðræðislega köllun: sá maður eða kona, sem er honum ósammála og lætur þá skoðun í ljósi, skal bannfærð. Þetta að gagnrýna hinn heila- ga Jóhann, gerði fyrrverandi formaður Magnús Gíslason á félagsfundi. Jóhann brást skjótt við og rak Magnús út í ystu myrkur eins og hann hafði áður gert við Gylfa skólastjóra, Hjálmar rektor og Einar sleggjukastara. Var jtetta ekki maðurinn sem að kveldi síðustu sveitarstjórnarkos- ninga hljóp til Drifu og Önnu Margrétar og bauð sinn stuðn- ing við vinstri stjóm í bæjar- félaginu en morguninn eftir hringdi einhver með rödd Jóhanns í Ellert og spurði hvort þeir, Jóhann og Ellert væru ekki vinir og ættu að vinna saman? Þessi vaska framganga Jóhanns við Magnús Garðverja hefur vakið aðdáun fjölmiðlafólks hér í bæ, enda engum dottið í hug að spyrja Magnús um hvað væri deilt. Og nú er Drífa orðin formaður neyten- dasamtakanna, enda þótt hen- nar flokkur hafi barist harðri baráttu gegn frjálri verslun. Sagði einhver að sæmileg laun hafi verið í boði? Laun, vel á minnst, fær Geirdal ekki 160 þúsund á mánuði fyrir sín störf hjá verslunarmönnum á meðan Magnús tók 100 þús. á ári. Að sjálfsögðu ganga bæjarfulltrúar á undan með góðu fordæmi með lækkun eigin launa, þegar launafólk er beðið að herða sultarólina. Að sjálfsögðu. Hilmar Jónsson. Háþrýs tiþvo ttu r á húsum Berglind ehf. sími 421 3986 Eggert URVAL AF ÓDÝRUM G/\RÐYRKJU- VERKFÆRUM Meðal annars: • trjáklippur • limgerðisklippur • greinaklippur • kantskerar Verkfæradeild - Sími 421 1730 JEPPASYNING Ferðaklúbburinn 4x4 heldur jeppasýnmgu imkaup í Njarðvfl á föstudaginn, 17. maí kl. 14:00 til 18:00 Allt áhugafólk um jeppa og ferðamennsku velkomið. Sumarfötin komin SufltöAolufaÁta-* • Ko\\óttattowtíapg«UU HOLMGARÐI - SIMI 421 4799 V íkurfréttir 3

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.