Víkurfréttir - 15.05.1996, Side 7
Sniglar svara lögreglunni
Vegna ummæla Karls Her-
mannssonar aðstoðaryfirlög-
regluþjóns í Keflavík á síðu 4
í DV þann 30.04.96 vill stjóm
Bifhjólasamtaka lýðveldisins,
Snigla koma eftirfarandi á
framfæri:
Fullyrðing sú sem Karl setur
fram að flestir bifhjólamenn
virði ekki hraðatakmarkanir á
ekki við nein rök að styðjast.
Þetta er alhæfing sem setur öll
þau hundruð bifhjólamanna
sem um ísland aka undir einn
hatt sem ökufanta og glæpa-
menn. Hann hefði allt eins
getað sagt að flestir hesta-
menn væru diykkjumenn.
Sniglar hafa frá árinu 1992
rekið öflugt umferðarátak í
samvinnu við tryggingarfé-
lögin og fleiri aðila, sem hefur
skilað sér með stórfelldri
fækkun slysa á biihjólamönn-
um.
Tilvikum hefur fækkað um
36%.
Slösuðum hefur fækkað um
41%
og þar af hefur mikið slösuð-
um fækkað um 67%
(Tekið saman úr slysatölum
Umferðaráðs)
Þrátt fyrir þetta hefur bithjól-
um fjölgað á þessum tíma.
Karl hefði betur sagt að flestir
bifhjólamenn SEM HANN
HEFÐI AFSKIPTI AF, virtu
ekki hraðatakmarkanir og
undanskilið þannig þann
mikla meirihluta sem ekur af
skynsemi og aldrei kemst í
kast við lögin.
Stjórn Snigla hafa borist
kvartanir undan aðgerðum
lögreglunnar í Keflavík sem
hafa falist í því að teknar eru
myndir af hverju hjóli ásamt
eiganda þess. Er þetta væntan-
lega gert lögreglunni til
glöggvunar vegna HUGSAN-
LEGRA LÖGBROTA!!!
Bifhjólasamtök lýðveldisins,
Sniglar hafa frá upphafi reynt
að eyða fordómum í garð bif-
hjólamanna og ávallt leitast
við að hafa gott samstarf við
lögregluna. Teljum við að það
AÐ STILLA UPP BIF-
HJÓLAMÖNNUM SEM
HUGSANLEGUM GLÆPA-
MÖNNUM beri vott um for-
Ein í „fýlu
I dag er föstudagurinn 10.
maí, alveg indælis dagur. Eg
fór snemma á fætur til
próflesturs og leist bara vel á
þennan yndisfagra dag og gat
vart hugsað mér að vera inn-
andyra. Eftir að hafa kvartað
örlítið í móður minni um að
þurfa að sitja inni að lesa í
góða veðrinu datt henni það
snjallræði í hug að slá upp
sóltjaldi og var það bót í máli
því þá gat ég verið úti að lesa
og notið veðurblíðunnar, æð-
islegt, fullkominn dagur.
Ég fylgist með móður minni
fara með þvott á snúruna og
var hún mjög ánægð með
þurrkinn, sem sagt allir mjög
hrifnir af þessum degi og ætla
að njóta hans til hins ýtrasta.
En allt í einu sótti á mig sú
hugsun, hvað er ég að pæla að
sitja hérna úti, ég bý jú í Sand-
gerði og það skal enginn segja
mér að þeir sleppi við að
bræla í þessu blíðskaparveðri
og ég er varla búin að sleppa
þessari hugsun þá sé ég hið
þykka ský leggjast yftr bæinn,
þvflík stækja.
Mér er spurn, er endalaust
hægt að bjóða bæjarbúum
uppá þetta? Er endalaust hægt
að gefa undanþágur? Er ekk-
ert gert svo bæjarbúum líði
vel héma eða er kannski verið
að flæma okkur í burtu? Ég er
allavega orðin ansi þreytt á
þessu og veit ég að svo er um
flesta bæjarbúa. Ég vil að eitt-
hvað sé gert, allavega að þeir
standi við það að loka er
stækjan leggst yfir bæinn.
Sandgerðingur
Aðalfundur
veröur haldinn 22. maí
í húsi félagsins kl. 20.30
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf
Allir félagsmenn velkomnir
dóma og sé ekki góðu sam-
starfi til framdráttar.
Er það von okkar að allir sjái
að sér og eyðileggi ekki mar-
gra ára gott samstarf með for-
dómum og óvarlegu orða-
gjálfri.
Fyrir hönd stjómar Bifhjóla-
samtaka lýðveldisins, Snigla
Gunnar Þór Jónsson,
oddviti stjórnar.
Viðtalstími Atvinnu- og
Ferðamálafulltrúa
Atvinnu- og Ferðamálafulltrúi Mark-
aðs- og atvinnumálaskrifstofunnar
verða með viðtalstíma á skrifstofu
Gerðahrepps miðvikudaginn 22. maí
kl. 13.30-15.30
Sveitarstjóri
TISKUSYNIIMG
á Café Flug f Kjarna á morgun,
uppstigningardag kl. 15:00
Sýndar verða vörur frá versluninni.
Snyrtivörukynningar frá Juvena og Revlon.
Börn úr forskóla Tónlistarskólans í Keflavík
leika undir stjórn Steinunnar Karlsdóttur.
HAPPDRÆTTI
KAFFISALA Á CAFÉ FLUG - ALLIR VELK0MNIR
.twS** c/j-nnúta
Anna
Hcifnargötu 37A Sími 421 3311
SUMARBUSTAÐAEIGENDUR!
Tökum að okkur úðun á
sumarbústaðalöndum á SV-homínu!
Ára^^Sabúnað^-
0DYRT - ABYRGÐ
Tökum að okkur úðun á trjám.
Notum skordýraeitrið
PERMASEKT, sem er skaðlaust
mönnum, fuglum og
gæludýrum.
Úðum einnig við roðamaur.
ogHaísteínnErol
mim
V íkuifréttir
7