Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.1996, Síða 9

Víkurfréttir - 15.05.1996, Síða 9
Járn og skip: Mikill uppgangur í solpöllum „Það er samdóma álit þeirra sem við verslum við að tx'ðin sé góð og örugglega mánuði á undan. Enda hefur hún komið aftan að fólki sem hefur ekki verið undir það búið“, sagði Einar Steinþórs- son verlunarstjóri í Járn og skip. Verslunin hefur auk annars úrval verkfæra tii sumarsins á boðstólum allt frá smáum garðyrkjuverk- fænxm til stón-a sláttuvéla. HveiTiig er með flaggstangir, kaupir fólk slíkt í dag? „Það er nú aðallega fólk sem er komið yfir þrítugt, fertugt og er búið að setja sig niður og klára garðana si'na. Þá vill það oft setja lokahnykkin á þá með fallegri flaggstöng. Stangirnar þarf að panta eftir máli en það er hægt að kaupa toppinn á staðnum“. Eru einhverjar nýjungar í gangi? „Safnkassamir fyrir lífrænan úrgang eru voða mikið að koma inn og eiaim við með eina tegund til þess að prófa. Fólk er farið að átta sig á þessum hlutum og er að byrja á þessu“. Bæjarbúar hafa greinilega eitthvað tekið til við vor- verkin og em þeir í Jám og skip þegar byrjaðir að selja Aburð og lauf- og mosaeyði sem og hrífur og fleira. „Við seljum mikið af pallaefni í sólpaila en það virðist vera mikill uppgangur í því. Það virðist því að sumarið ætli að verða gott svona miðað við hvemig það fer af stað“. Roðamaurinn er viðbjóður -segir Hafsteinn Emilsson, úðari Þrátt fyrir góða tíð er enn ekki kominn tími til þess að úða garða og þarf að bíða eftir því að blóm og tré springi út. Haf- steinn Emilsson er þó í start- holunum en hann hefur séð um hefðbundna garðúðun sl. 10 ár. Fyrst ásamt föður sín- um og síðan sjálfstætt. Hann er þó byrjaður að úða gegn roðamaur sem hann segir hvimleiðann. „Roðamaurinn er alger viðbjóður og fer það mest fyrir bijóstið á fólki að hann fer inn í hús. Það má bú- ast við því að það sé meira af honum núna þar sem veturinn hefur verið óvenju góður. Það þarf mikið frost í langan tíma til þess að drepa hann og sýn- ist mér hann vera hálfum mánuði fyrr núna í ár“. Hafsteinn sagði að allar reglur varðandi úðun væru orðnar strangari varðandi efnisnotk- un og einnig þyrftu úðarar að sækja sérstök námskeið. „Það efni sem ég er að nota h e i t i r Permasett og ef hægt er að tala um eitur sem er um- h verfi s- vænt þá er það þetta efni. Fyrir svona 10- 15 árum var notað eitur sem er ennþá í jarðveginum en þetta efni sem ég nota brotnar niður í jarðveginum. Það er ekkert óeðlilegt að fólk þurfi kannski að úða tvisvar sinn- um yfir sumarið þar sem þessi efni eru eins og lyf sem við tökum inn og eru sterk fyrst en svo minnka áhrifin eftir því sem á líður“. Þetta eru oft sömu garðamir sem Hafsteinn er að úða en segist þó ekki úða hjá fólki ef þess þarf ekki með. „Það hef- ur ekkert upp á sig. Það er eins og að taka magnyl ef þú ert ekki með höfuðverk.“ Hverjir eru helstu skaðvald- amir? „Það er lúsin aðallega og eins leita ég eftir skemmdum í trjám. Maðkurinn er skæður og hann getur étið upp garða á þremur dögum. Það er synd að sjá það gerast hjá fólki ef það áttar sig ekki á því“, sagði Hafsteinn að lokum. GARÐAUÐUN STVRLÁVGS ÓLAFSSONAR Er grenið eða furan illa farin eftir veturinn? Úða greni og furu með lífrænum áburði sem hjálpar til við endurnýjun barrnála. (Koniferen Baisam og Maxicorp). Eyði mosa og illgresi úr grasflötum. Eyði gróðri úr stéttum og innkeyrslum. Leiðandi þjónusta. Upplýsingar í símum 421-2794 og 893-7145 NYTT 0GENDURBÆTT ÚTI-VITRETEX FRÁBÆR MÁLNING Á STEINHÚS ÁSAMT ALLRIVIÐARVÖRN Á TILBODIÚT MAÍ Málningarverslun með fagmennsku í fyrirrúmi! BALDURSGOTU 14 ■ KEFLAVIK - SIMI 421 4737 ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Kosningaskrifstofa opnuð í Keflavík á morgun, fimmtudag Á morgun, fimmtudag kl. 16 verður opnuð kosningaskrifstofa stuðningsmanna Ólafs Ragnars Grímssonar á Suðurnesjum, að Hafnargötu 61 Kefiavík (við Vatnsneslorg). Ólafur Ragnar og Guðrún Katrín munu kynna framboðið og laka á móli sluðningsfólki milli kl. 16 og 18. Ávörp og fyrirspurnir - allir velkomnir! Nemendur Tónlistarskólans f Kefiavík leika, myndlistarmenn frá Suðurnesjum sýna verk sín og kaffiveitingar verða á boðstólum. Kosningaskrifstofan verður opin fyrsl um sinn frá kl. 17 til 21 virka daga og milli kl. 14 og 18 um helgar. Síininn er 421 6«08, fav 421 (>«!(» Ólafur Ragnar og Guðrún Katrín taka á móti stuðningsfólki milli kl. 16 og 18. FORSETAKJÖR 1996 Stuðningsmenn Ólafs Ragnars Grímssonar á Suðurnesjum. Víkurfréttir 9

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.