Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.1996, Qupperneq 19

Víkurfréttir - 15.05.1996, Qupperneq 19
♦ Gullmerkjahafar Víðismanna að undanskildum fjórum sem ekki gátu mætt. Vel heppnað Víðisafmæli Það var svo sannarlega stór síð- asta helgi í Garðinum þegar Víð- ismenn héldu upp á sextíu ára af- mæli sitt með pompi og prakt. Hápunkturinn var hátíðardagskrá í íþróttamiðstöðinni á laugardags- kvöldið. Þar mættu nálægt sex- hundruð manns sem lætur nærri að vera nánast allir fullorðnir í hreppnum, og nutu vel heppnaðs kvölds. Sigurður Jónsson, ritari Víðis og sveitarstjóri var veislu- stjóri en á dagskránni voru ýmis menningaratriði þar sem söngur og tónlist voru í fyrirrúmi auk ræðuhalda og verðlaunaafhend- inga. I byrjun kvöldsins lék kvin- tett Tónlistarskólans í Garði en þar á eftir léku þær Edda Rut Björnsdóttir á trompet og Elín Björk Jónasdóttir á fiðlu. Bjarni Thor Kristinsson, bassi söng nokkur lög og Söngsveitin Vík- ingar sem er karlakór þeirra Garðmanna lét ekki sitt eftir ligg- ja og tók nokkur vel valin lög. Omar Ragnarsson, hin lands- þekkti grínari og fréttamaður spretti síðan úr spori áður en sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson fékk hálfan Garðinn út á dansgólfið í stærsta íþróttasal á Suðumesjum. Finnbogi Björnsson, formaður Víðis flutti afmælisávarp og sagði m.a. að á næsta aðalfundi Víðis yrði það lagt til samþykktaf að stofndagur félagsins yrði 11. maí en í sögu Víðis er það ekki á hreinu hvenær hann er. Finnbogi sagði það vel til fallið í þessu sjávarúvegsplássi að miða við „lokadaginn“ sem er 11. maí. Þá var í fyrsta skipti í sögu Víðis af- hent silfur- og gullmerki félags- ins. Nokkrir frammámenn íþróttafé- laga á Suðumesjum fluttu ávarp og færðu afmælisbaminu gjafir, m.a. Skúli Skúlason frá Keflavík og Gunnlaugur Hreinsson frá Grindavík og Sigurður Valur As- bjarnarson, sveitarstjóri Sand- gerðinga. Bæði Gunnlaugur og Sigurður minntust á nýlokið Suð- umesjamót í knattspyrnu þar sem Víðismenn fóru með sigur af hólmi og færðu þannig félaginu góða afmælisgjöf, Suðurnesja- meistaratitil 1996. MagnúsFinns- son, varaforseti Iþróttasambands íslands steig einnig í pontu og notaði tækifærið til að afhenda Ijómm Garðmönnum gull og silf- urmerki ISÍ. Silfurmerki hlutu þau Heiðar Þorsteinsson og Hrönn Edvinsdóttir en gull í barminn fengu þeir Finnbogi Bjömsson og Sigurður Ingvars- son. I fyrsta skipi vom afhent gull- og silfurmerki Víðis. Gullmerki fengu: Þórir Guðmundsson, Sig- urður Ingvarsson, Sigtryggur Hafsteinsson, Heiðar Þorsteins- son, Asgeir Kjartansson, Eyjólfur Gislason, Ingimundur Guðnason, Júlíus Baldvinsson, Einvarður Albertsson, Finnbogi Bjömsson og mættu þeir allir á hátíðina. Aðrir sem fengu gull vom Jónas Guðmundsson, fyrsti formaður félagsins sem gat ekki komið því við að mæta en sendi hlýjar kveðjur til félagsins sem og þeir Omar Jóhannsson, Magnús Gíslason og Sigurður Gústafsson. Silfur fengu Guðmundur Knúts- son, Guðjón Guðmundsson, Hall- dór Einarsson, Jónatan Ingimars- son, Matthildur Ingvarsdóttir, Karvel Hreiðarsson, Gunnar H. Hásler, Hrönn Edvinsdóttir, Magnús Þ. Magnússon og Tryggvi Einarsson. Félagið fékk margar kveðjur og gjafir, m.a. færði Hreppsnefnd Gerðarhrepps félaginu eitt hund- rað þúsund krónur til kaupa á myndbandstökuvél og þau hjón Kristín og Sigurður Ingvarsson gáfu félaginu tuttugu fótbolta sem ætlaðir eru til notkunar í yngstu flokkunum. ♦ Þessir hlutu silfurmerki Víðis. ♦ Mörg menningaratriði voru. M.a. lék Elín B. Jón- asdóttir á fiðlu. Húsnæöisnefnd Reykjanesbæjar Húsnæðisnefnd Reykjanesbæjar auglýsir 2 íbúðir til sölu. Um er að ræða 89 fermetra 3ja herbergja almenna kaupleiguíbúð og 67 fermetra 2ja herbergja félagslega eignaríbúð. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Húsnæðisnefndar Reykja- nesbæjar Tjarnargötu 12, 230 Kefla- vík, síminn er 421 6700 Húsnæðisnefnd Reykjanesbæjar Reykjabakki ehf. Timburversiun Hjallahraun 2 - 220 Hafnarfirði sími 565 1761 fax 565 0280 - 892 1910 Timbur í öllum stærðum. Gagnvarið timbur. Spónarplötur. Mótakrossviður. Birkikrossviður. Panill, inni og úti. Girðingastaurar. Grindarefni. Innréttingarefni. Sendum um alit land Leitið verðtilboða íþróttafélagið NES Auka aðalfundur verður haldinn í Stapa miðvikudaginn 22. maí kl. 20.30 Dagskrá: Stofnun nýs íþróttabandalags Önnur mál Stjórnin Stofnfundur íþróttabandalags Reykjanesbæjar Samkvæmt tillögu frá íþróttanefnd rík- isins, sem staðfest hefur verið af Menntamálaráðuneytinu, skulu vera tvö íþróttahéruð á Suðurnesjum. Hér með er boðað til stofnfundar íþróttabandalags Reykjanesbæjar miðvikudaginn 29. maí 1996 kl. 20.00 í sal Fjölbrauta Suðurnesja. Undirbúningsnefndin Víkuifréttir 19

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.