Víkurfréttir - 05.12.1996, Síða 15
KÖRFUBOLTI - Bikarkeppni -
íþróttahúsið í Hafnarfirði kl. 20 í
kvöld -16 liða úrslit:
Haukar - Keflavík
DHL deildin í körfubolta -
íþróttahúsið í Keflavík
sunnudagskvöld kl. 20:
Keflavík - KFÍ
Bíllinn er best geymdur heima
Nú í desember mun Lögreglan í
Keflavík og Grindvík, ásamt
öðrum lögregluliðum Suðvest-
urlandi, hafa strangt eftirlit með
ástandi ökumanna.
A þessum tíma er mikið um
starfsmannasantkvæmi og mjög
margir ætla sér eflaust að drek-
ka þar áfenga drykki. Því er
fólki eindregið ráðlagt að skilja
bílinn eftir heima því lögreglan
mun fylgjast gaumgæfilega
með ástandi ökumanna á leið úr
slíkum samkvæmum.
Ökumaður sem staðinn er að
ölvunarakstri í fyrsta sinn getur
búist við 35.000.- kr. sekt og
ökuleyfissviptingu í I ár. Við
annað brot getur sektin orðið
70.000.- kr. og ökuleyfissvipt-
ing í 2-3 ár. Vlð þriðja brot fá
menn ævilanga sviptingu og
varðhald.
Keli er lítill strákur að vestan
sem kann ekki umferðarregl-
umar og þarf Vala vinkona hans
að leiða hann í allan sannleik
um þær. Böm af Suðumesjum
voru ekki í vandræðum með
reglurnar og sögðu sitt álit
óspart á leiksýningu Leikfélags
Keflavíkur í Þotunni sl. laugar-
dag.
Umferðarleikritið „Keli þó“ er
eftir Kristínu og Iðunni Steins-
dætur og var verkið unnið í
Þessar refsingar eru þó smá-
munir miðað við eftirmála þá
sem menn geta lent í ef þeir
valda tjóni ölvaðir undir stýri.
Afleiðingarnar væru að sjálf-
sögðu skelfilegastar ef þeir yllu
einhverjum örkumlum eða
dauða.
Tryggingafélögin, sem þurfa að
greiða bætur vegna tjóns eign-
ast endurkröfurétt á þá sem
tjóninu valda. Astæður endur-
kröfu eru langoftast vegna ölv-
unar tjónvalds og á síðastliðnu
ári vom 105 tjónvaldar krafnir
um 18.638.000,-kr. Þarafvom
90 karlmenn og 15 konur, en
hlutur kvenna í þessum málum
fer vaxandi.
Takið ekki áhættuna, skiljið
bílinn eftir lieima.
Gleðileg jól! Lögreglan
samvinnu við Lögregluna í
Keflavík. Valur Armann Gunn-
arsson, lögreglumaður spjallaði
við ungu áhorfendumar fyrir og
eftir sýninguna og spurði böm-
in ýmissa spurninga og tóku
þau virkan þátt í sýningunni.
Leikritið er ætlað börnum á
leikskólaaldri til 10 ára aldurs
og sér Baldur Þ. Guðmundsson
unr tónlistarftutning. Ein sýning
er eftir. Leikstjóri er Hafsteinn
Gíslason.
Loks Reynissigur
Reynismenn innbyrtu loks sig-
ur í 1. deildinni í körfuknattleik
eftir frekar slaka byrjun þegar
þeir sigruðu I.S. síðastliðin
föstudag. Leikurinn byrjaði
með Iátum þar sem Reynis-
menn náðu 11 stiga forskoti
eftir fimm mínútur en Adam
var ekki lengi í paradís því f.S.
náði að jafna og komast yfir.
Staðan í hálfleik var 35-41 íyr-
ir I.S. I seinni hálfleik var
jafnræði með liðunum fram
undir miðjan hálfleikinn en þá
fóru Reynismenn að bíta frá
sér og náðu loks að tryggja
sinn fyrsta sigur í deildinni í
vetur. Lokastaðan í leiknum
var 91-81. Davíð Grissom átti
góðan leik þó ekki gæti hann
spilað af fullum krafti vegna
meiðsla. Einnig áttu Brad og
Sveinn góðan leik. Stigahæstir
hjá Reynismönnum voru Brad
með 30 stig, Davíð með 23
stig og Sveinn með 17 stig.
Hausthappdrætti
Knattspyrnudeildar
Keflavíkur:
Vinningsnúmer
Þann 26. nóv sl. var dregið í
hausthappdrætti Knattspyrnu-
deildar Keflavíkur. Allir 500
miðarnir seldust og kann knatt-
spymudeildin aðilum bestu þakk-
ir fyrir veittan stuðning.
Vinningsnúmer eru eftirfarandi:
1. Gjafabréf frá S-L að verðmæti
kr. 40.000,-nr. 103
2. Gjafabréf frá S-L að verðmæti
kr. 30.000,-nr. 471
3. Gjafabréf frá S-L að verðmæti
kr. 25.000,- nr. 268
4. Gjafabréf frá K-Sport að verð-
mæti kr. 15.000,- nr. 247
5. Gjafabréf frá Persónu að verð-
mæti 7.500,- nr. 330
ö.Gjafabréf frá Persónu að verð-
mæti 7.500.- nr. 189
7. Gjafabréf frá K-Sport að verð-
mæti 5.000.- nr. 57
8. Gjafabréf frá K-Videó að verð-
mæti 3.500.- nr. 263
9. Gjafabréf frá K-Videó að verð-
mæti 3.500.- nr. 7
10. Gjafabréf frá K-Videó að
verðmæti 3.500,- nr. 168
11. Gjafabréf frá Olsen Olsen að
verðmæti 3.200,- nr. 500
12. Gjafabréf frá Olsen Olsen að
verðmæti 3.200.- nr. 179
13. Gjafabréf frá Olsen Olsen að
verðmæti 3.200,- nr. 2.
Vinninga er hægt að vitja á skrif-
stofu Knattspyrnudeildar Kefla-
víkur, sími: 421-5188
Á morgun lýkur 16 liða úrsli-
tum bikarkeppni karla í
körfuknattleik. Öll Suðumesja-
liðin eiga hinsvegar sína leiki í
kvöld. Keflvíkingar mæta þá
Haukum í Hafnarfirði en
Njarðvík á leik gegn IA heima
og Grindavík á einnig
heimaleik gegn Tindastóli. Allir
leikimir hefjast kl. 20:00.
Grindavík og Njarðvík ættu að
teljast mun sigurstranglegri í
sínum viðureignum enda eiga
bæði liðin heimaleiki og hefur
það töluvert að segja í
bikarkeppni. Keflavík hinsveg-
ar á útileik og það gegn
bikarmeisturunum sjálfum
Haukum, sem eru ávalt erfiðir
heim að sækja. Haukamir koma
án efa tvíefldir eftir óvænt tap
gegn KFI á Isafirði um síðustu
helgi og mæta að öllum líkind-
um grimmir til leiks. Það hræðir
þó ekki þjálfara Keflavíkur
Sigurð Ingimundarson, sem
nýverið gerði sitt lið að
Lengjubikarmeisturum og er
fullur sjálfstrausts. I samtali við
VF sagði Sigurður að ekkert
annað en sigur kæmi til greina
og var staðráðinn í að senda
Hauka út úr keppninni strax í
fyrstu umferð. Aðspurður um
hvemig þeir hyggðust gera það
sagði Sigurður að þeir yrðu að
leggja kapp á að stöðva kanann
hjá Haukum því hann væri
maðurinn sem þeim hefði
gengið erfiðast að stöðva hin-
gað til, en einugis hingað til því
þeir ætluðu að halda honum
niðri í kvöld.
♦ Börnin tóku virkan þátt í umferdarleikritinu Keli Þó sem Leik-
félag Keflavíkur frumsýndi um lielgina.
Göivtlif dansarnirM
Nú er rétti tíminn til að stíga dans.
Gömlu dansarnir eru í KK-salnum
laugardaginn 7. desember.
Húsið opnar kl. 22:00. Ölsala á staðnum.
Grænir vinir sjá um fjörið!
rr
bp
Laus staða hjá
Reykjanesbæ
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa
Reykjanesbæjar auglýsir eftir
STARFSRÁÐGJAFA
Hlutverk starfsráðgjafa er aðallega
fólgið í móttöku og ráðgjöf til atvinnu-
leitenda m.t.t. náms og starfa, ásamt
upplýsingagjöf varðandi réttindi og
skyldur. Krafa um almenna þekkingu
á atvinnumálum, skrifstofustörfum og
tölvukunnátta skilyrði. Sérstaklega er
mikilvægt að starfsráðgjafi hafi góða
reynslu í mannlegum samskiptum.
Áhugi á atvinnumálum kvenna æski-
legur. Um er að ræða tímabundið
starf frá 1. jan til 31. des. 1997.
Umsóknarfrestur er til 15.12. 1996 og
skal umsóknum skilað til M.O.A. Fitj-
um Njarðvík.
Upplýsingar í síma 421-6200.
Framkvæmdastjóri Markaðs- og at-
vinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar.
Leikfélag Keílavíkur:
Keli þó lænin
umferðarneglurnan
Víkurfréttir
15