Víkurfréttir - 23.01.1997, Page 2
Fegurðarvali
að Ijúka
Val á þátttakendum í Fegurðar-
samkeppni Suðumesja 1997 er að
Ijúka en keppnin verður haldin í
Stapa 5. apríl nk. Ibúar í minni
byggðarlögum Suðumesja, Grinda-
vík, Garði, Sandgerði og Vogum
em hvattir til að láta ekki sitt eftir
liggja og benda á stúlkur. Agústa
Jónsdóttir tekur við ábendingum í
símum 421 -6362 eða 421 -3099.
Fjárhagsáœtlun Reykjanesbœjar liigð fram tilfyrri umrœðu:
Minníhlutinn
úti í kuldanum
Stórbpunafundun í Keflavík
Slökkvistjóri Itrunavarna Suðurnesja boðar til opins fund-
ar á föstudag í næstu viku á (ílóðinni í Keflavík.
Að sögn Siginundar Eyþórssonar, slökkviliðsstjóra BS er
markmið fundarins að ná athygli forráðamanna fyrirtækja
og bæjarbúa um áhrif, samvirkni eldvarna og slökkvistarfa
þar sem teknir verða fvrir stórbrunar á svæði Brunavarna
Suðurnesja.
A fundinum niunu margir taka til máls, s.s. forráðamenn
Víkuráss og brunainála á Suðurnesjuin og fleiri.
Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar
var lögð fram til fyrri umræðu
af meirihluta á fundi bæjar-
stjómar sl. þriðjudag.
I framhaldi lagði minnihluti
bæjarstjórnar fram bókun þar
sem vinnubrögð meirihluta í
gerð fjárhagsáætlunar voru
rædd. Kemur fram í bókuninni
að minnihluti hafi ekki tekið
þátt í gerð rekstraráætlunar í
bæjarráði eins og áður hefur
tíðkast og því sé um að ræða
breytingu á vinnubrögðum.
Segir m.a. í bókuninni: „Sú
fjárhagsáætlun sem nú er verið
að leggja fram er þriðja fjár-
Fastei pnasalan
HAFNARGÖTU 27 - KEFLAVÍK SÍMAR421 1420 OG 4214288
ÍG3 3
Hlíðarvegur 44, Njarðvík
I45 ferm. raðhús ásamt 28
ferm. bílskúr. Húsið er í góðu
ástandi m.a. nýja lagnir og
nýtt járn á þaki.
8.900.000.-
Austurgata 1, Sandgerði
84 ferm. einbýlishús. Hagstæð
Byggingarsj.- og Húsbréfalán
áhvílandi.
5.300.000,-
Eyjaholt 4A, Garði
2ja herb. parhús 69 ferm. í
góðu ástandi. Hagstæð lán
áhvílandi.
Tilboð.
w- r S i i Á
Háseyla 9, Njarðvík
152 ferm. einbýli ásamt 46
ferm. bílskúr. Vandað hús.
1-Iagst. Bygg.sj,- og Húsbr.lán
áhvfl. Skipti á minni fasteign
koma til greina.
13.000.000,-
Suðurgata 46, Kellavík
5-6 herb. 139 ferm. einbýli.
m/ 23 ferm. bílskúr. Húsið
hefur verið endum. m.a. lagnir
ofl. Skipti á minni fasteign
koma til greina, einnig ýmsir
aðrir greiðslumöguleikar.
7.500.000.-
Óðinsvellir 10, Keflavík
165 ferm. einbýli ásamt 35
ferm. bílskúr í smíðum. Húsið
selst í núverandi ástandi. Hér
er um fallegt hús að ræða.
Allar nánari upplýsingar um
söluverð ofl. á skrifstofunni.
Heiðarbvammur I, Keflavík
3ja herb. íbúð á 1. hæð í góðu
ástandi. Ymsir góðir greiðslu-
möguleikar koma til greina
m.a. hægt að taka bifreið uppí
útborgun.
4.950.000,-
Heiðarhvammur 5d, Keflavík
2ja herb. íbúð á 2. hæð í mjög
góðu ástandi. Hagstæð
Byggingarsjóðslán áhvflandi.
4.600.000,-
Lyngbraut 15, Garði
144 ferm. einbýli ásamt 34
feim. bflskúr. Góð eign á eftir-
sóttum stað. Hiti í stéttum fyrir
framan útidyr og bflskúr. Stórt
bflaplan.
11.000.000,-
Skoðið myndaglugga okkar, þar eru að finna sýnishorn
affasteignum, sem eru á söluskrá hjá okkur.
hagsáætlun þessa meirihluta.
Hún nær jafnframt yfir síðasta
heila ár þessarar bæjarstjómar.
Þess vegna er það enn mikil-
vægara fyrir meirihlutann að
geta með ffamlagningu hennar,
sýnt bæjarbúum hver áhersluat-
riði meirihlutans eru. Sérstak-
lega er þetta mikilvægt nú þar
sem meirihlutinn hefur enn ekki
lagt fram áætlun til þriggja ára
um framkvæmdir í bænum eins
og lög gera þó ráð fyrir“.
Það kom fram í máli Jónínu
Sanders formanns bæjarráðs að
vinna við gerð fjárhagsáætlunar
yrði skilvirkari kæmu fulltrúar
minnihluta og meirihluta fram
með mótaðar tillögur til um-
ræðu á fundi bæjarstjómar.
Bæjarfulltrúar hafa nú viku til
þess að gera tillögur um breyt-
ingar á fjárhagsáætlun sem
verður tekin til seinni umræðu
þann 4. febrúar nk.
Hafnasamlag Suðurnesja stofnað:
Horft til framtíðar
Hafnarsamlag Suðurnesja var
stofhað sl. mánudag.
Þar sameinast sveitarfélögin
Gerðahreppur, Vatnsleysu-
strandahreppur og Reykja-
nesbær en innan þeirra marka
eru sjö hafnarsvæði og næst
betri hagkvæmni í rekstri með
sameiningunni.
Hafnarsvæði Hafnasamlags
Suðurnesja er fyrir allri stran-
dlengju lögsagnarumdæmis
Gerðahrepps, Reykjanesbæjar
og Vatnsleysustrandarhrepps og
skiptist í Garðsjó, Stakksfjörð
og Hafnaleir. Helstu hafnasvæði
eru Garðshöfh, Njarðvíkurhöfh,
Keflavíkurhöfn, Smábátahöfnin
í Gróf, Helguvíkurhöfn,
Hafnahöfn og Vogahöfn og telj-
ast þau öll til innri hafhar.
Haustið 1995 heimsóttu
samgöngumálaráðherra Halldór
Blöndal og Kristján Pálsson
alþingismaður sveitarfélögin á
Suðumesjum og hvöttu heima-
menn til að mynda hafnasam-
lag. í framhaldi af þeim fundi
var skipuð undirbúningsnefnd
og sátu í henni fulltrúar þeirra
sveitarfélaga sem nú ntynda
Hafnasamlag Suðumesja. Pétur
Jóhannsson hafnarstjóri hafhar-
ínnar Keflavík- Njarðvík var
síðan ráðinn starfsmaður nefh-
darinnar.
Með þessari sameiningu er talið
að betri hagkvæmni náist í
rekstri og mun núverandi starfs-
mannafjöldi Hafnarinnar Kefla-
vík - Njarðvík ekki aukast frá
því sem er í dag fyrr en með
aukinni umferð um hafnirnar.
Horft er til framtíðar með stofn-
un þessa hafnasamlags, bæði
hvað varðar framkvæmda-
áætlun næstu tjögur árin sem og
nýframkvæmdir við nýjar
hafhir í tengslum við stóriðju.
Á framkvæmdaráætlun þessa
árs er fyrirhuguð viðgerð og
endurbætur á grjótvarnar-
garðinum í Vogum og 1998
verður haldið áfram með
grjótvöm utan á löndunarkant-
inn í Garði. Auk þess verða
lagðar lagnir, lýsing og þekja
inna við nýja grjótvamargarðinn
í Keflavíkurhöfn ásamt endur-
bótum á stigum í öllum höf-
-ó sama tíma kvartuð yfir skorti á
faglærðu starfóUti á leikskólum
Skólanefnd Reykjanesbæjar tók
nýverið til umfjöllunar tvær
umsóknir um stöðu leiksskóla-
stjóra leikskólans að Vestur-
braut 13. Tvær sóttu um stöð-
una þær Sigfríður Ingibjörg
Sigurðardóttir og Hulda Olafs-
dóttir og var mælt með Sigfríði
Ingibjörgu í stöðuna.
Málið vakti athygli Önnu Mar-
grétar Guðmundsdóttur, odd-
vita Alþýðuflokks á fundi bæj-
arstjórnar Reykjanesbæjar sl.
þriðjudag og benti hún á að á
sama tíma og skólanefnd væri
að lýsa yfir áhyggjum sínum á
skorti á fagfólki mælti hún með
aðila sem ekki uppfyllti mennt-
unarskilyrði sent frtun hafi ver-
ið tekin í auglýsingu um starfið.
Anna Margrét sagði það skjóta
skökku við og benti á að hinn
umsóknaraðilinn hafi bæði
menntun og mikla reynsu af
leikskólastöfum í sveitarfélag-
inu að baki sér. Samkvæmt
heimildum blaðsins lýkur Sig-
fíður Ingibjörg námi í Fóstur-
skóla Islands í vor en hún hefur
unnið á leikskólanum Garðaseli
til fjölda ára.
Málið var tekið fyrir í bæjarráði
í gær en þar sem blaðið var far-
ið í prentun er ekki ljóst hver
niðurstaðan var.
2
Víkurfréttir