Víkurfréttir - 20.02.1997, Page 6
Hart deilt um
leikskólamál
-Meirihlutinn í Reykjanesbœ lofar nýjum leikskóla
en minnihlutinn vill drög aö áœtlun um leikskólabyggingar í bœjarfélaginu
Leikskólamál voru ofarlega á
baugi á fundi bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar sl. þriðjudag
og hart deilt um það hvort að
framtíðaráætlun skorti í þeim
málaflokki.
Tilefnið var tillaga minnihluta
þess efnis að bæjarstjórn sam-
þykki að fela skólanefnd að
vinna drög að áætlun um upp-
byggingu leikskóla í bæjarfé-
laginu. Tillögunni fylgdi grein-
argerð þar sem segir að sam-
kvæmt lögum eigi skólanefnd
að gera áætlun urn uppbygg-
ingu leikskóla í sveitarfélaginu
til næstu þriggja ára og hafi
slík áætlun verið unnin at'
skólanefnd. Að sögn minni-
hluta hefur þegar verið unnið
eftir hluta þeirrar áætlunar en
bendir jafnframt á að fyrir
liggi tölur um langa biðlista
eftir leikskólaplássum . Þar
vísar minnihlutinn í ársyfirlit
fyrir leikskóla Reykjanesbæjar
árið 1996 þar sem kemur fram
að þriðjungur barna í bæjar-
félaginu er á biðlista eftir vist-
un á leikskóla. Einnig vísar
liann í samþykkt Reykjanes-
bæjar um að leggja sérstaka
áherslu á fjölskylduvænt sveit-
arfélag en það er nú í vinnslu
hjá markaðs- og atvinnumála-
skrifstofu.
Meirihluti bókaði um málið og
þar kom fram að skólanefnd
hefuri þegar unnið 3ja ára
áætlun um uppbyggingu leik-
skóla sem lögð var fram í bæj-
arstjórn í nóvember á síðasta
ári. Kom t'ram í máli Böðvars
Jónssonar (D) að minnihlutinn
væri í raun að óska eftir bygg-
ingu nýs leikskóla og sé það
ekki í samræmi við málflutn-
ing hans við gerð fjárhagsáætl-
unar á fundi bæjarstjórnar
þann 4. febrúar sl. þar sem
hann gagnrýndi m.a. að ný-
framkvæmdir væru fjármagn-
aðar með lántöku. Segir jafn-
framt í bókun meirihluta:
„Unnið hefur verið eftir henni
(Aætlun skólanefndar. Innsk.
blaðamanns.) og verður liður
B í höfn í vor þegar leikskól-
inn að Vesturbraut 13 tekur til
starfa". Einnig kemur það
fram í bókun meirihluta að
undirbúningur að nýjum leik-
skóla verði haftnn í haust þar
sent gert verður ráð fyrir 120
vistunarrýmum og er vísað í
lið C í fyrrgreindri áætlun
skólanefndar. „Að framan-
sögðu sér meirihluti ekki
ástæðu til að láta vinna nýja
áætlun“, segir jaífiframt í bók-
un.
Snarpar umræður urðu um til-
löguna og sagði minnihluti
fréttir af nýjum leikskóla koma
sér á óvart þar sem ekkert hafi
verið rætt urn hann við gerð
fjárhagsáætlunar og sýndi það
hversu mikla virðingu meiri-
hluti bæri fyrir henni. Að sama
skapi gagnrýndi meirihluti
minnihluta fyrir að hafa ekki
komið fram með tillöguna við
gerð fjárhagsáætlunar.
Meirihluta þótti tillagan ótíma-
bær þar sem fyrir liggja tillög-
ur skólanefndar og auk þess
muni leikskólinn að Vestur-
braut 13 stytta biðlista töluvert
en hann mun hefja starfsemi í
vor. Einnig benti meirihluti á
að á kjörtímabilinu hafi leik-
skólarýmum fjölgað um 100
með viðbyggingu við Gimli og
nýjum leikskóla að Vestur-
braut auk þess sem vinna verði
hafin við nýjan leikskóla . Ell-
ert Eiríksson bæjarstjóri benti
einnig á að Reykjanesbær
greiðir niður að hluta gjöld
bama frá 6 mánaða aldri sem
eru í vistun hjá dagmæðrum.
Anna Margrét Guðmundsdótt-
ir (A) sagði það heyra til und-
antekninga ef börn yngri en
3ja ára fái vistun á leikskóla og
gagnrýndi einnig minnihluta
fyrir að gera ekki greinarmun
á daggæslu hjá dagmæðrum
og leikskólum sem væm við-
urkenndir sem fyrsta skólastig.
Jafnramt ítrekaði minnihluti að
forsendur áætlunarinnar væru
breyttar og segir í lokun
bókunnar hans: „Með það í
huga að leikskólinn er fyrsta
skólastigið og sú starfsemi
sem þar á sér stað og sá að-
búnaður sem bömin búa við á
þeim árum kemur til með að
hafa mótandi áhrif á þau til
frambúðar, þarf að vinna að
þessum málum eftir fyrirfram
gerðum áætlunum en ekki til-
vilanakenndum".
Atkvæðagreiðsla á tillögunni
fór eins og umræðumar vom.
Meirihlutinn greiddi atkvæði á
móti alls sex gegn fimm
atkvæðum minnihluta.
Félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar
afhentu Sjúkrahúsi Suðumesja höfðing-
legar gjafir sl. mánudag við sérstaka at-
höfn.
Sumar gjafanna eru jtegar komnar í notk-
un en var tækifærið notað til þess að við-
kontandi aðilar gætu aflient þær form-
lega. Þær gjafir sent atlientar voru eru
GSM sfmi frá Olíusamlagi Kfelavíkur og
nágrennis fyrir vakthafandi lækni, Jóla-
Ijósasería frá Ratbúð R.Ó., Hægindastóll
og myndbandstæki frá Soroptimista-
klúbbi Ketlavíkur, baðkar og lyftibekkur
frá Styrktarfélagi Sjúkrahússins í stað
fyrri búnaðar sem félagið gaf fyrir 18
árum síðan, Telescope og fygihlutir frá
Lionsklúbbi Keflavikur og skrautritaður
texti „spor" til minningar um Ölmu Sig-
urðardóttur sem andaðist á Sjúkrahúsinu
frá dóttir hennar Maríu Magnúsdóttur.
Dagmæður gáfu leikföng fyrir börn til
minningar um Svövu Asbjörnsdóttur,
dagmóður, sent lést í janúar 1995 og
Lionessuklúbbur Keflavíkur gáfu leik-
föng eins og á hverju ári fyrir 15.000 kr.
Anna Margrét Guðmundsdóttir, formaður
stjórnar Sjúkrahúss Suðurnesja veitti
gjöfunum viðtöku og sagði við tækifærið
það vera ánægjulegt að ftnna að almenn-
ingur sé tilbúinn að leggja sitt af mörkum
svo að Sjúkrahús Suðumesja standi undir
nafni. Jóhann Einvarðsson framkvæmd-
arstjóri SHS sagði slíkar gjaftr sýna vel-
vilja almennings til stofnunarinnar og
nyti hún góðs af því.
Leikskólinti Vestur-
braut 13 í Keflavfk
hefur starfsemi í vor:
Hulda
ráðin
Hulda Olafsdóttir hefur verið ráðin
leikskólastjóri leikskólans að Vest-
urbraut 13 og mun hún hefja störf í
byrjun næsta mánaðar. Vonir stan-
da til að leikskólinn hefji starfsemi
sína í vor en gert er ráð fyrir að
hann rúmi 40 til 50 böm. Tvær
deildir verða starfræktar og boðið
verður upp á 4 tíma vistun fyrir og
eftir hádegi.
Eins og greint hefur verið frá
mælti meirihluti skólanefndar
Reykjanesbæjar upphaflega með
því að Sigfríður I. Sigurðardóttir
yrði ráðinn. Þegar málið kom til
afgreiðslu í bæjarstjórn var því
vísað til bæjarráðs á ný sem vísaði
málinu áfram til skólanefndar á
þeim forsendum að leikskólastjóri
þyrfti að vera leikskólakennari
samkvæmt lögum. Sigfríður hefur
ekki prófskírteini upp á vasann en
lýkur námi í vor auk þess að hafa
áratugareynslu við leikskólastörf í
bæjarfélaginu. Samkvæmt heimil-
dum blaðsins hefur þetta mál verið
hið snúnasta því Sigfríður var
beðin um að sækja um stöðuna
eftir að umsóknarfrestur rann út.
Rétt eftir að hún skilaði inn
umsókn sinni ákvað Hulda Ólafs-
dóttir að sækja um stöðuna og við
það vandaðist málið. Því lauk eftir
eftir að hafa farið á upphafspunkt á
ný með því að Hulda var ráðin.
6
Víkuifrétlir