Víkurfréttir - 20.02.1997, Page 9
Sumarbœklingur Úrvar-Útsýn kynntur:
Ótrúkeg viðbrögQ
-þegar uppselt á nokkra gististaði
Úrval-Útsýn var með opið hús sl.
sunnudag ög bauð gestum og gangandi
upp á happdrætti og sælgæti fyrir
bömin. Fjöldi fólks lagði leið sína á
ferðaskrifstofuna og sagðist Anna
Stefánsdóttir starfsmaður ferðaskrifstoí-
unnar aldrei hafa séð annað eins.
þetta gekk bara ofsalega vel og hmgað
’var stöðugur straumur af fólki og giska
ég að um 1.800 til 2.000 manns hafi
heimsótt okkur og skoðað hvaða ferðir
em í boði“, sagði Anna.
Er þetta góðærið?
,Ja, það hlýtur að vera. Það ríkir bara
niik.il bjartsýni í þessu þjóðfélagi".
Óvenjumikið var um bókanir sl. sunnu-
dag og virtist fólk vera ákveðið í því
hvert það vildi fara. Þeim sem kaupa
ferðir snemma bjóðast ýrnis afslátt-
arkjör og að sögn Önnu er rnikil eftir-
spum í rauðar brottfarir sem gefa af-
slátt. Nú þegar er að verða uppselt á
helstu gististaði í Portúgal og Mallorca
og segir Anna viðbrögðin vera hreint
Nú er hægt að kaupa sér utanlandsferð
á Visa raðgreiðslum í allt að 24 mánuði
og bjóst Anna við að einhverjir myndu
nýtasérþað.
Þaá var líf oij fjör á ferða-
skrifstofum Samvinnu-
ferða Landsýnar og Úrvals
Útsýnar um síðustu helgi...
...þegar sumarferðabækl-
ingarnir voru kynnir.
Dagný Gísladóttir kynnti
sérþað lielsta og smellti
af meðfylgjandi myndum.
ijú Samvmnuferbum Landsýn:
i vmsæust
Samvinnuferðir Landsýn voru
með opið hús si. sunnudag þar
sem sumarbæklingurinn var
kynntur. Mikil! fjöldi fólks lagði
leið sína á ferðaskrifstofuna og
kynnti sér hinar ýmsu ferðir en
þær bjóðast nú á góðum kjörum
fyrir þá sem panta tímunlega.
Að sögn Guðmundu Helgadóttur
starfsmanns Samvinnuferða
Landsýnar var rnikið bókað á
fyrsta degi og hefur verið nóg að
gera síðan. „Fólk nýtir sér
stjömubrottfarir en þannig fær
það 10. þúsund króna afslátt á
mann ef það pantar fyrir 10.
mars. Einnig er gefinn 5 þúsund
króna afsláttur á ferðum sem
sem pantaðar eru fyrir þann tíma.
Hvert er fólk að fara?
„Það er mest á Spán og Mallorca
en einnig til Portúgal.
Sumarhúsin í Hollandi eru líka
ntjög vinsæl".
Nýjir áfangastaðir bætast jafnan
við og nú er boðið upp á tvo nýja
á Cala d'or og að sögn
Guðmundu lofar
einnig nýr staður
góðu sem er rétt fyrir
utan Benidonn og
heitir Albír. Hentar
hann vel fjölskyldum
sem vilja ró og næði
en jafnframt er stutt
þaðan til Benidonn.