Víkurfréttir - 20.02.1997, Síða 11
Eiríkur Hermannsson skólamálastjóri:
Abending vegna vinnu nem
enda á starfstíma skóla
Fyrirspurnir hafa borist til
Skólaskrifstofu Reykjanesbjar
vegna vinnu nemenda á starfs-
tíma skóla, einkum við loðnu-
frystingu eða aðra fiskvinnslu.
Að þessu tilefni vill Skólaskrif-
stofa Reykjanesbæjar benda á
40. gr. grunnskólalaga en þar
segir:
„Nemandi má ekki stunda
vinnu á starfstíma skóla valdi
hún þvi' að nemandinn eeti ekki
rækt nám sitt sem skvldi eða
notið nauðsvnlegrar hvfldar að
dómi skóiastjóra og kennara. í
slíkurn tilfellum skal skólastjóri
gera nemanda, forráðamanni
hans og hlutaðeigandi vinnu-
veitanda viðvart. Verði ekki bót
á ráðin skal vísa málinu til
skólanefndar. Vilji forráðamað-
ur bamsins ekki hlíta ákvörðun
skólanefndar getur hvor aðili,
forráðamaður eða skólastjóri,
vísað málinu til bamavemdar-
nefndar". (undirstrikun greinar-
höf.).
Vinna við loðnufrystingu er
tímabundin uppgripavinna en
foreldrum og vinnuveitendum
ber að gæta þess að vinnan hafi
ekki skaðleg áhrif á skólagöngu
og nám bamanna. Duglegir og
skipulagðir nemendur geta
sinnt námi samhliða tímabund-
inni vinnu svo fremi að hún fari
ekki úr hófi fram. Öðru máli
gegnir um þá sem eiga í erfið-
leikum með nám. Lögin eiga að
tryggja rétt nemenda til mennt-
unar. Verði misbrestur á þvf
vegna vinnu á starfstíma eiga
skólastjóri og kennamar að gera
athugasemdir við það í sam-
ræmi við 40. gr. laga og ábend-
ingar [teirra til forráðamanna og
vinnuveitenda ber að taka al-
varlega.
Eiríkur Herntannsson
skólamálastjúri
Þegar Guð biblíunnar varar við öðrum guðum, er
ástæðan að aðrir guðir eru einfaldlega illir guðir
sem hafa það eitt að markmiði að eyðileggja líf
okkar og aðskilja okkur frá hinum eina sanna
Guði. Jesús Kristur sagði : “Varist falsspámenn
....Af ávöxtum jreirra skuluð þér þekkja þá. Tvö tré
líta eins út, annað ber góða ávöxtu , hitt eitraða, þú
bara etur og lifir eða deyrð. Þessi saga gerðist í
Eden fyrir þúsunum ára og er að gerast enn í
dag.Eins og Guð aðvaraði Adam og Evu eins
aðvarar Hann í dag, ef þú etur af vonda trénu
muntu deyja. Guð er góður, og sú velmegun sem
vesturlandabúar njóta er Guði að þakka, vegna
þeirra forvera' okkar er bám gæfu til að eta af
góða trénu.
5. mósebók 11.13.: Ef þér'hlýðið skipunm mínum
trúlega, ..að elska Drottin Guð yðar og þjóna
honum af öllu hjarta yðar og af allri sálu yðar,- þá
mun ég gefa landi yðar regn á réttum tíma, haust-
regn og vorregn, svo að þú megir hirða kom þitt,
aldinlög þinn og olíu þína. Þá mun ég láta gras
spretta í högum þínum handa skepnum þínum, svo
að þú megir eta og saddur verða. Ef við berum
saman þær vestrænu þjóðir sem hafa byggt á
kristinni hugmyndafræði og síðan kom-
múnistaríkin, sem höfnuðu Guði og ofsóttu kristna
menn, þá er munurinn augljós. Eftir að jámtjaldið
féll, kom í ljós að austantjaldsllöndin eru efna-
hagsleg eyðimörk. Lítum síðan á svokölluð þriðja
heims ríki, sem eiga það sameiginlegt að hafa
dýrkað aðra guði, s.s. hindúisma , búddha o.s.frv.
þar er sania sagan, efnahagsleg eyðimörk, fólkið
varla læst eða skrifandi ttg t.d í Indlandi er kýrin
manninum æðri.
Kristinni menningu hefur greinilega fylgt velmeg-
un, menntun og frelsi, sem ekki hefur verið til
staðar í áðumefnum löndum. Af hverju vilja vest-
urlandabúar nú skipta á krisinni trú og guðum sem
hafa sannað sig að vera falsguðir.
Jú, við viljum verá víðsýn , megum ekki vera
þröngsýn og hafa bara einn Guð.Af hverju ekki
'sömu vfðsýni ef ég borga þér með fölsuðum
seðlum. Þeir líta alveg eins út. Við getum verið
víðsýn þangað til við gerum okkur ljóst að við
höfum verið blekkt. Af hverju viljum við þá skipta
á öðrum guðum og afkvæmum þeirra s.s.
Buddisma, jóga, stjörnuspeki, spíritisma,hindú-
isma og nýaldarfræðum, þegar mannkynsagan
hefur málað upp ávextina fyrir okkur . Við emm
að byrja að sjá ávöxtin í okkar eigin þjóðfélagi.
Unga fólkið leitar í ffkniefni af því að það hefur
ekki fengið rétt gildismat, lífið hefur brugðist
væntingum þeirrra og virðingin fyrir lífinu er
þvorrin , vegna agaleysis. Astæðan, okkar kynslóð
hefur ekki kennt bömum okkar að virða og elska
hinn eina sanna Guð, heldur hefur hún elt aðra
guði. Talandi dæmi er að metsölubókin í ár skuli
vera Lög'málin sjö, eftir Deepak Chopra, sem er
blanda af hindúisma og nýöld. Og þetta selst vel á
Islandi í dag. Má ég þá heldur biðja um lögmálin
tíu.Það em léleg skipti, að skipta á Jesú Kristi og
Deepak Chopra.
1. Boðorðið er: Eg er Drottinn Guð þinn, sem
leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu. Þú
skalt ekki aðra guði hafa.
Kristinn Asgrímsson.
PÆJULINAN
ílll IÍOMIN!
Barnafata vers/unin
Lyncjholt
Hafnargötu 37 - Sími 421-3131
FERMINGARBORN 1977
í KEFLAVÍK
20 ára fermingarafmæli
árgangs '63 ásamt þeim sem
fermdust 1977, verður haldið
laugardaginn 19. apríl n.k.
Nú er tækifæri að hittast öll og
taka léttgeggjað minningarflipp.
Taktu þér tak og hringdu núna!
Bryndís G. 421-4252, Freyr S.
421-2144, Ólilng. 421-4856,
Jóna Björg 421-4280.
Grindavík
Móttökuritari
Staða móttökuritara við Heilsu-
gæslustöðina í Grindavík er laus
til umsóknar.
Hér er um afleysingastöðu að ræða
og verður ráðið í hana frá 1. mars
n.k. og ráðningartíminn er
til áramóta.
Umsóknarfrestur er til
27. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunar-
forstjóri í síma 426-7000.
Framkvæmdastjóri.
Starfsstúlka
óskast
Stúlka óskast í heilsdagsvinnu.
Upplýsingar veittar á staðnum.
Islenskur Markaður
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
óskar eftir að ráða starfsfólk
til sumarafleysinga, vaktavinna.
Umsóknareyðublöð Hggja frammi á
skrifstofu Víkurfrétta.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 1997.
Víkurfréttir
11