Víkurfréttir - 20.02.1997, Blaðsíða 15
Spurningakeppni:
Sigurðarnir og
fleiri gáfumenn
frá Sandgerði og
Garði reyna með
sér á morgun
Önnur umferð í spurn-
ingakeppni Björgunarsveita á
Suðumesja á Staðnum verður
á morgun föstudagskvöld.
Þá leiða saman hesta sína full-
trúar frá bæjarstjórn Sand-
gerðis og sveitarstjóm Gerða-
hrepps og má búast við
hörkukeppni. Sigurðarnir
bæjar- og sveitarstjóramir em
miklir spekingar og vita
nánast allt milli himins og
jarðar að því er heimildir
okkar herma.
Þessi keppni er fjáröflun hjá
björgunarsveitunum því 500
kr. aðgangseyrir rennur til
þeirra. Fyrirkomulagið er
úrsláttur og komast sig-
ursveitimar í undankeppninni
í úrslit.
Keppnin hefst kl. 21.30 og er
fólk hvatt til að fjölmenna.
Asamot
í kvöld
Ásamót verður á Knatt-
borðsstofu Suðurnesja í
kvöld, fimmtudagskvöld.
Mótið hefst kl. 19:99 og
eru allir velkomnir.
Þþátttökugjald er kr. 800
krónur og skráning er í
síma 421 3822.
forseta bæjar-
stjórnar eru alla
mánudaga kl. 09-11 á
bæjarskrifstofunum að
Tjarnargötu 12, 2.
hæð, sími 421-6700.
Bæjarstjóri.
Gpindvíkingan sýndu
meistaratakta gegn ÍR
Grindvíkingar unnu sigur á ÍR
í DHL-deildinni í körfuknatt-
leik karla í Grindavík á
fimmtudag með 90 stigum
gegn 74 eftir að hafa verið
undir í leikhléi 38:52.
ÍR-ingar byrjuðu betur og
tókst að ráða ferðinni í fyrri
hálfleik þrátt fyrir að Grind-
víkingar kæmu með smá
spretti inn á milli. I seinni
hálfleik var allt annað Grinda-
víkurlið inná. Vörnin hjá
þeim var frábær og þá kom
góður sóknarleikur í kjölfarið.
Grindavík sýndi sannkallaða
meistaratakta í seinni hálfleik,
flestir boltar rötuðu ofan í
körfuna, þeir hirtu mikið af
fráköstum, pressuvömin gekk
vel og fullt af stoðsendingum
litu dagsins ljós.
Þar fór landsliðsþjálfarinn Jón
Kr. Gíslason fremstur í flokki
en hann átti ellefu stoðsend-
ingar í leiknum.
Stigahæstumenn Grindavíkur:
Herman Myers 33, Marel
Guðlaugsson 14, Pétur Guð-
mundsson 12, Páll Axel Vil-
bergsson 11.
Stigahæstu menn ÍR: Eggert
Garðarson 22, Eiríkur Önund-
arson 22, Tito Baker 13.
Gott hjá Fim-
leikastelpum
Sjö stúlkur frá Fimleikadeild Keflavík-
ur tóku þátt í Skrúfumóti
Fimleiksambandsins um sl. helgi sem
er einstaklingskeppni og var keppt í 1.-
5. þrepi í almennum (tromp) fimleik-
um. Mótið var mjög fjölmennt, um 280
þátttakendur kepptu. A sunnudaginn
var svo Meistaramót FSI í Skrúfu en
þar kepptu þeir efst frá hinu mót-
inu.Keflavíkurstúlkur stóðu sig mjög
vel og unnu til 8 verðlauna. Þrjár
komust á Meistaramólið þær Berglind
Skúladóttir, Guðrún Björgvinsdóttir og
Sonja Kjartansdóttir. Hinar sem kepptu
heita Elísabet Rúnarsdóttir. Hildur
María Magnúsdóttir, Elín Björg Giss-
urardóttir og Eva Hrund Gunnarsdóttir.
Þjálfari stúlknanna er Iris Dröfn Hall-
dórsdóttir.
Auðvelt
hjá Kefla
vík gegn
Blikum
Keflvíkingar sigruðu
Breiðablik auðveldlega í
DHL-deildinni í körl’u-
knattleik karla á finrmtu-
daginn. Lokatölur urðu
71:111. Staðan í hálfleik
var 42:53.
Keflavík náði 14 stiga for-
ystu um miðjan fyrri hálf-
leik, þá voru varamenn
settir inná og í hálfleik
höfðu Blikarnir eins og
áður segir náð að nrinnka
rnuninn í 11 stig, 42:53. I
seinni hálfleik voru það
ekki síst varamenn Kefla-
víkur, með Kristján Guð-
laugsson í broddi fylkingar
sem gerðu það að verkum
að Keflavík vann stórsigur.
Bestir hjá bikarmeistu-
runum voru þeir Kristján
Guðlaugsson (19 stig). Fal-
ur Harðarson (26 stig) og
Guðjón Skúlason (19 stig).
Bestir hjá breiðablik voru
þeir Clifton Buch og Einar
Hannesson.
ftkert lat á hrakfönim Njarðvíhinga
-„Höfum leikið illa og liðsheildin er engin“, segir Astþór Ingason, þjálfari Njarð-
víkinga eftir tap gegn nýliðum Isfirðinga í Ljónagryfjunni
Ekkert lát virðist vera á hrakför-
um Njarðvíkinga um þessar
mundir og á föstudag máttu þeir
þola enn eitt tapið í DHL-deild-
inni í körfuknattleik karla. Að
þessu sinni vom það Isfirðingar
sem sigruðu þá á þeirra eigin
heimavelli 71:82 en staðan í
hálfleik var 37:42.
Fyrri hálfleikur var tilþrifalítill
og ekki mikið fyrir augað, gest-
irnir voru þó ögn skárri og
leiddu í leikhléi eins og áður
sagði 37:42. Síðari hálfleikur
var öllu skárri og þá náðu
Njarðvíkingar að komast yfir,
59:58 með þremur þriggja stiga
körfum frá Örvari Kristjáns-
syni, ungum Njarðvíkingi sem
kom inná snemma í hálfleikn-
um.
„Það hafa allir fengið að spreyta
sig undanfarið og þeir sem sýna
eitthvað hverju sinni fá að spila
svo einfalt er nú þáð. Við höf-
um verið að spila mjög illa und-
anfarið og því eru þeir settir
inná sem em bestir hverju sinni
hvort sem þeir eru ungir eða
aldnir," sagði Ástþór Ingason
þjálfari Njarðvíkur.
Isfirðingar áttu þó síðasta orðið
í leiknum og gerðu 19 stig gegn
3 heimamanna og tryggðu sér
sigurinn.
Stigahæstu menn Njarðvíkur:
Torrey John 13, Örvar Krist-
jánsson 12, Páll Kristinnson 11.
Stigahæstu menn KFÍ: Dereck
Bryant 26, Chicdu Odizdu 17,
Guðni Guðnason 13.
Blaðamanni lék forvitni á að
vita hvað væri að gerast hjá
Njarðvíkurstórveldinu, hvemig
franhaldið leggðist í þjálfarann
og hvort stjómin hefði haft ein-
hver afskipti af gangi mála.
„Það hefur allt farið úrskeðis og
við höfum verið að spila þetta
sem fimm einstaklingar en ekki
sem ein liðsheild. Sökin er al-
gjörlega okkar en ekki dómara,
áhorfenda eða einhverra ann-
arra. Það em bara þessir fimm
menn sem eru inná sem geta
unnið leiki og menn verða að
fara setjast niður og h'ta í eigin
barm. Við þurfum að eiga einn
góðan leik allan tímann ekki
bara helminginn og það gæti
kveikt í liðinu. Manni líst ekki
nógu vel á framhldið en það eitt
veit ég að það býr meira í lið-
inu. Nú er bara að hætta öllu
stressi og leggjast allir á eitt og
tryggja sig í úrslitakeppnina og
vera með liðið á toppnum þá.
Úrslitakeppninn er alveg sér
kapituli og þar getur allt gerst.
Stjómin hefur ekkert haft nein
afskipti af okkur enda geta þeir
ekki unnið leikina íyrir okkur“,
sagði Ástþór Ingason en hann
tók við þjálfun liðsins af
Hrannari Hólm fyrir nokkrum
vikum siðan.
DHL deildin í körfuknattleik - sunnudag kl. 20.
KEFLAVÍK - SKALLAGRÍMUR ííþróttahúsi Keflavíkur.
1. deild kvenna - föstudag kl. 20.
KEFLAVÍK - ÍR í íþróttahúsi Keflavíkur
JL
Landsbanki
íslands
Samvinnuferðir
Landsýn
◦didas
Víkurfréttir
15