Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.09.1997, Blaðsíða 3

Víkurfréttir - 18.09.1997, Blaðsíða 3
Dansk-íslenska fóðurfálagið í Sandgerði: Minkalóðirverksmíqa tehur ti starta í dag Dansk-íslenska fóðurfélagið hefur starfsemi sína í Sandgerði í dag. Undanfama þrjá mánuði hefur verið unnið að uppsetn- ingu verksmiðjunnar í um 5000 fermetra húsnæði sem gengið hefur undir nafhinu Amaborg. Fyrirtækið er í 75% eigu íslen- stea aðila og danir eiga 25% í fyrirtækinu. Fyrirtækið fram- leiðir minkafóður sem flutt verður til Danmerkur og hugs- anlega einnig selt á innlendum markaði. Fóðrið er unnið úr fiskafurðum eins og afskurði, slógi og loðnu. Nýja fyrirtækið mun því keppa um hráefnið við bræðslur, en einungis ein bræðsla á Suðurnesjum getur tekið við þeim úrgangi sem Dansk- íslenska fóðurfélagið sækist eftir. Teitur Garðarsson fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins sagði í samtali við Víkurfréttir að hjá fóðurfélaginu muni starfa 10-12 manns þegar mest verður. Teitur hefur síðustu daga og vikur unnið að kynn- ingu á fyrirtækinu meðal stærri aðila í fiskvinnslu. Teitur sagð- ist í samtali við blaðið muni bjóða hærra verð fyrir úrgang en t.d. bræðslur og það eigi eftir að koma í ljós hversu vel geng- ur að fá hráefni til framleiðsl- unnar. Lögð verður áhersla á að sækja hráefnið reglulega til fiskvinnslufyrirtækjanna, því gæði eru ofarlega á blaði þegar minkafóður er annars vegar. Sérstök rannsóknastofa verður í verksmiðjunni í Sandgerði til að fylgjast með gæðum hráefnis- ins. Framleiðsluferlið er þannig að hráefninu er sturtað í risastóra hakkavél og síðan dælt þaðan beint 1 frystitæki sem frystir hráefnið í stórar blokkir. Sjálf- virkur búnaður raðar síðan blokkunum á bretti sem jafn- framt eru steypt úr minkafóðri. Þannig verður frosið minka- fóðrið flutt út á brettum úr minkafóðri, þannig að ekkert timbur verður flutt út og minkurinn fær að éta brettin! Uppbygging verksmiðjunnar í Sandgerði hefur tekið þrjá mánuði og kostnaður er rúmar eitthundrað milljónir króna. Teitur segir mikinn markað fyrir minkafóður í Danmörku og verksmiðjan hafi ótakmark- aða heimild til framleiðslu. „Við vinnum hér allan sólar- hringinn ef þess verður þörf,“ sagði Teitur Garðarsson fram- kvæmdastjóri að endingu. S E A L y MALIBU AMERÍSKAR UNGLINGADÝNUR Á FRÁBÆRU VERÐI TWIN 97 sm. X190 sm. TWIN XL 97 sm. X 203 sm. FULL135 sm<X190 sm. FULLXL135 sm.X203 sm. QUEEN153 sm.X203 sm. ATHUGWl ÖHvcrðmeð < stálgrind undir dýnum... kr. 28.500«- kr. 33.000.- kr. 38.000.- kr. 44.000.- kr. 45.500.- tf.9 ÞAR SEM GÆDI, ÞJÓNUSTA OG GOTT VERD FARA SAMAN WfferamlÓB msepmet j cd því tileíni bjóðum við 20% AFSLATT af cdirí þjónustu íöstudaginn 19. septembei og laugaidaginn 20. septembei. Kcdíi og með því. Tímapantanii í síma 421-5342 Opið íimmtudaga írá 13-21 Verið velkomin! *'íórsnyrtistofaíiQ|. HAFNARGÖTU 68a - KEFLAVÍK - SÍMI kl\ m UIYIv (ÁDUR FÖNDURST0FAN) Tilboðsdagar T5%-50% afsláttur dropinn Hafnargötu 90, 230 Keflavík, sími 421-4790 V íkurfréttir 3 iiiiiimiiiimnimmmiuiiiim

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.