Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.09.1997, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 18.09.1997, Blaðsíða 15
-liggjum undir feld“, segir Gunnar Oddsson, annari þjálfara Keflavíkur „Við liggjum undir feld og erum að semja hemaðaráætl- un fyrir þrjá síðustu leikina á tímabilinu", sagði Gunnar Oddsson, annar þjálfara Keflavíkurliðsins í Sjóvár-Al- mennra deildinni í knatt- spyrnu en Keflavík mætir IBV í deildinni í Eyjum á sunnudag. „Það er ljóst að við þurfum að bretta upp ermamar. Við ætl- um okkur að ná stigum í tveimur lokaleikjum deildar- innar og koma vel undirbúnir og einbeittir fyrir seinni úr- slitaleikinn gegn Eyjamönn- um í bikamum". Stuðningsmenn liðsins eru eins og þið Sigurður hafið ef- laust heyrt, vonsviknir með gang mála í seinni umferð deildarinnar eftir þetta fljúg- andi start sem liðið fékk. „Já, auðvitað eru allir vonsviknir með þetta dæmi og auðvitað er hægt að benda á margar skýringar. I fyrsta lagi má nefna að við erum ekki með breiðan leikmanna- hóp. I annan stað má segja að þetta sífellda rót á okkar ungu leikmönnum hefur að sjálf- sögðu truflað þá. Þetta eru ungir strákar. I þriðja lagi misstum við besta markvörð landsins á slæmum tíma þó ég telji að Bjarki hafi í heildina komist mjög vel frá sínu í markinu. Það má því segja að margt haft hjálpast að til að gera okkur erfitt fyrir". Hvaða skýring er þá á þessu undragengi í byrjun, sigur í fyrstu sex leikjunum? „Eg held að við höfum farið langt á hugarfarinu. Liðið var við fall í fyrra, okkur gekk illa í undirbúningsleikjunum í vor og þá var okkur spáð slöku gengi f deildinni í sumar. Menn náðu að stilla saman strengina, við héldum mark- inu nánast hreinu og skoruð- um nóg til að vinna. Eftir þessa sigurleiki fóm hin liðin að taka meira mark á liðinu. Kannski vom við ekki teknir mjög alvarlega í byrjun". Markntiðin hafa samt náðst? „Já, við hugsuðum fyrst og fremst um að halda okkur uppi. Það var markmið númer eitt. Úrslit í bikarkeppni er bónusinn okkar í sumar og hver veit nema við eigum eftir að hampa öðmm af tveimur stærstu titlum ársins". Sfðan er það ÍBV á sunnudag- inn? „Við mætum óhræddir gegn Eyjamönnum á sunnudaginn. Eg hef gmn um að það sé stutt í næsta sigur hjá okkur“, sagði Gunnar að lokum. Jón Ingi og Jóhann sigruðu í Leiru Jóhann Júlíusson og Jón Ingi Ægisson léku manna best í fyrirtækjamóti Golfklúbbs Suðurnesja í Leiru sl. lau- gardag. Þeir félagar léku fyrir Hljómval og náðu 51 punkti, tveimur meira en jreir Guðni V. Sveinsson og Gísli Garðarsson sem léku fyrir Byko. I 3. sæti urðu Einar Magnússon og Marteinn Guðnason en þeir léku fyrir tannlæknastofu Einars og hlutu 48 punkta. Kaup- félagsstjórafeðgarnir Síefán og Guðjón Stefánsson náðu fjórða sæti einnig með 48 punkta en í því fimmta uðm þeir Hörður Haraldsson og Sigurður Ásgeirsson með 47 punkta. Taplausír Grindvíkingar Suðurnesjamótinu í körl'uknattleik lýkur á þriðjudag. Grindvíkingar eru efstir og Ital'a ekki tapað leik. Á morgun leika í Njarðvík heimamenn við Grinda- vík sem síðan mæta Keflavík í Grindavík á sunnudag kl. 16. Á þriðjudag leika svo UMEG og llaukar og Kellavík og Njarðvík. Knattborösstofa Suöurnesja Grófinni 8 - Keflavík - sími 421 3822 Opið alla daga kl. 11:30 til 23:30 Aðstoðarmótið um helgina Ásamótin byrja á þriðjudaginn Glæsileg verðiaun í boði. Eysteinn Hauksson og félagar hans i Keflavíkurliðinu hafa ekki átt sjö dagana sæla að undan- förnu. Þeirmæta Eyjamönnum í deildinni á sunnudag. Keflvíkingar mæta Eyjamönnum á sunnudag í Sjóvár-Almennra deildinni: Hernaðaráætlun fyrir lokaátökin Góður sigur Grindavíkur en tap hjá Keílavík gegn Leiítri Grindvíkingar unnu góðan sigur á Stjömunni í Grindavík sl. laugardag 2:1 en Keflvíkingar máttu þola enn eitt tapið, nú gegn Leiftri fyrir norðan 0:3. Sinisa Kekic skoraði bæði mörk Grindvíkinga. Það fyrra á markamínútunni í fyrri hálflleik, þeirri 43. Grétar Einarsson sem varð fyrir því að skora sjálfsmark og koma Stjörnumönnum yfir á 18. mín. átti góða fyrirgjöf inn að vítateigsboganum þar sem Kekic tók við boltanum og skoraði 1:1. Kekic var síðan aftur á ferðinni á lokamínú- tum leiksins og skoraði 2:1, skömmu eftir að Albert Sævarsson hafði varið vítaspyrnu frá Mihajlo Bibercic. Grindvíkingar sendu Garðbæinga því beint niður í 2. deild. í Ólafsfirði fengu Kefl- víkingar á sig slysamark strax á 2. mínútu. Leiftursmenn bættu við tveimur mörkum í síðari hálfleik. Lokatölur 0:3 fyrir heimamenn. Þegar tvær umferðir eru eftir em Keflvflcingar í 6. sæti með 23 stig en Grindvíkingar með 22. Keflavík á leiki eftir gegn tveimur efstu liðunum, ÍBV og IA en Grindavík á eftir að leika við Skallagrím og Leiftur. V íkurfréttir 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.