Víkurfréttir - 18.09.1997, Síða 7
SKIPASALA REGIIMS Á AÐALVÍK OG NJARÐVÍK - ÞORSTEINN ERLINGSSON, FORMAÐUR ÚTVEGSMANNAFÉLAGS SUÐURNESJA:
Skiptir mestu máli að kvóti
skipanna verði hér áfram
„Það skiptir Suðurnesin
miklu máli að bátarnir verði
áfram á þessu svæði og veiti
hér atvinnu fyrir sjómenn
og fiskvinnslufólk. Afla-
heimildir þessara tveggja
báta nema alls um 3% af
heildarkvóta Suðurnesja
eða um 1500 þorskígildum.
í þessu máli skiptir mestu
að aflaheimildirnar fari ekki
út af svæðinu, hvort sem
skipin gera það eða ekki“,
sagði Þorsteinn Erlingsson,
formaður Útvegsmannafélags
Suðumesja á kynningarfundi
sem haldinn var í Keflavík á
miðvikudag í sl. viku.
Umræðu efnið var sala á
tveimur fiskiskipum Regins,
Aðalvík og Njarðvík en Regin
er dótturfyrirtæki Landsbank-
ans en skipin vom áður í eigu
Islenskra Aðalverktaka.
Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbankans sagði á
kynningarfundinum að það
væri vilji fyrir því hjá stjóm-
endum Landsbankans að ski]>
in yrðu áfram gerð út frá Suð-
umesjum, en besta tilboðinu í
þau yrði að sjálfsögðu tekið.
Sverrir sagði að Suðumesja-
menn ættu að sitja fyrir að
öllu jöfnu en Þorsteinn Er-
lingsson sagði í ræðu sinni að
fyrir þremur ámm hafi nokkr-
ir útgerðamenn óskað eftir því
að kaupa þessi skip sem þá
vom sem kunnugt er í eigu Is-
lenskra aðalverktaka.
Vilja kvótann
„Við fengum þau svör að bát-
arnir væru ekki til sölu, en
haft yrði samband við okkur
síðar, ef breyting yrði þar á.
Okkur þykir við látnir vita
ansi seint núna en við munum
engu að síður berjast fyrir því
að kaupa þá, þó aðallega
kvótann".
Þorsteinn sagði að á sínum
tíma hafi umræddur hópur
ætlað að kaupa bátana og
skipta kvótanum jafnt á milli
manna. Vestmannaeyingar
hafa nokkrum sinnum keypt
sameiginlega báta og kvóta í
Eyjum og skipt þeim á milli
sín. Það hefur gengið vel. „Eg
er þess fullviss að mikill áhugi
er meðal aðila í sjávarútvegi
hér á þessu svæði til að kaupa
þessa báta og tryggja áfram-
haldandi rekstur hér enda er
ég ekki í vafa um að hvergi
verður hagkvæmara að gera út
báta á næstu ámm með vax-
andi aflaheimildum í þorski.
Eg hvet þess vegna Lands-
bankann að vinna að því að
skipin verði hér á svæðinu og
seld til aðila sem starfa hér.
Sameiningar
Þorsteinn sagði að með til-
komu hlutabréfamarkaðar og
sameiningar fyrirtækja væri
ekki ólíklegt að sameiningar
ættu eftir að líta dagsins ljós á
Suðurnesjum á næstu ámm.
„Það styrkir svæðið ef fyrir-
tæki innan svæðis sameinast.
Þá eru þau betur búin undir
svona uppákomur og hægt að
bregðast við t.d. með því að
bjóða út hlutafé. Það er hins
vegar ljóst að sameining
smærri fyrirtækja á Suður-
nesjum við stærri fyrirtæki í
öðrum landshlutum skapar
óvissu", sagði Þorsteinn.
Sverrir Hermannsson sagði á
fundinum að það yrði ekki
skilyrði að fyrirtæki samein-
uðust vegna kaupa á skipun-
um, enda væru fjárhagslega
sterk fyrirtæki á Suðumesjum.
Hann vildi ekki nefna neinar
tölur um söluverð eða lána-
kjör en taldi ljóst að lána
þyrfti verulegar upphæðir í
þeim til langs tíma.
Miklar sviptingar hafa verið í
sjávarútvegi að undanförnu.
Þorbjöm hf. í Grindavík hefur
keypt Bakka hf. í Bolungarvík
og er á leið á hlutabréfamark-
aðinn. Miðnes hf. hefur sam-
einast H.B. og Co. á Akranesi
og nú liggur fyrir að Njörður
hf. í Sandgerði sameinist Bú-
landstindi hf. á Djúpavogi.
, J>að hefur einnig nokkuð ver-
ið um kaup á skipum hingað“,
sagði Þorsteinn en til að
mynda hefur fyrirtæki hans,
Saltver hf. í Njarðvík keypt
fjóra báta og kvóta sem nem-
ur samtals um 1600 þorsk-
ígildistonnum á síðustu fjór-
um árum og er nú með um
2600 alls. Fiskanes í Grinda-
vík hefur keypt tvo báta og
kvóta og fleiri fyrirtæki hafa
bætt kvótastöðu sína. „Við
höfum verið að berjast harðri
kvótabaráttu og náð að halda
hlut Suðurnesjamanna
(12,9%) á undanfömum árum.
Þess vegna er mikilvægt að
kvóti Aðalvíkur og Njarðvík-
ur verði hér á svæðinu“, sagði
Þorsteinn.
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur
18:20
19:30
20:30
Spinning
- eróbikk
EvaLOKAÐ
fituhrennsla
Spinning
Judo
Spinning
Reynir - teygjur
Barbara
eróbikk
Spinning
Spinning
- eróbikk
Spinning
Spinning
Reynir - teygjur
eróbikk
Spinning
Spinning
__ w
IFITNESS CENTERl ^mMWMm iMW M W ■ ★
★
VIÐ HOTEL KEFLAVIK
ISÍMI420 7001
12:05
Spinning
Spinning
Spinning
Spinning
Spinning
Spinning
15:30
Judo (frjálst)
17:15
Spinning
Halldór - eróbikk
Spinning Eva
LOKAÐ - fitubr.
Spinning
Halldór
Spinning Eva
LOKAÐ - fitubr.
Spinniny
Spinning
I
09:00
Yíkurfréttir
7