Víkurfréttir - 06.11.1997, Page 3
Markaðsrað stofnað
Stofnfundur Markaðsráðs Reykjanesbæjar verður
haldinn á Glóðinni í Keflavík í kvöld, fnnmtudaginn 6.
nóvember, kl. 20.00.
Markaðsráð Reykjanesbæjar eru samtök hagsmunaað-
ila í Reykjanesbæ. Samtökin vinna ásamt Markaðs- og
atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar, Ferðainála-
samtökunum, samtökum einstakra atvinnugreina,
íbúasamtökum og öðrum að því að efla Reykjanesbæ
sem stærsta verslunar- viðskipta og þjónustusvæði Suð-
urnesja.
I____1______________________________1
Nýr útgefandi fréttablaðs Varn-
arliðsins, Jhe White Falcon"
Vamarliðið á Keflavíkurflug-
velli hefur samið við útgáfu-
fyrirtækið Mark-mið í Kefla-
vík um útgáfu vikulegs frétta-
blaðs síns, The White Falcon,
sem gefið hefur verið út á
Keflavíkurflugvelli frá árinu
1952.
Bandaríkjaher hóf útgáfu
fréttablaðsins skömmu eftir
komu bandarísks heriiðs til
íslands árið 1941 fyrir liðs-
menn sína. Blaðið kom út
vikulega til ársins 1946 en ári
eftir að vamarliðið var stofn-
að var útgáfa blaðsins hafin
að nýju og hefur það flutt
varnarliðsmönnum fréttir af
málefnum líðandi stundar
undanfarin 45 ár.
Banaslys
við Mánatorg
Banaslys varð á Mánatorgi
við Mánagrund rétt eftir kl.
ftmm síðdegis sl. föstudag.
Maðurinn sem lést var 30 ára
gamall og var hann að dreifa
mulningi á vegaaxlir við nýtt
hringtorg sem tengir Sand-
gerði og Garð við Reykjanes-
braut þegar hann féll og lenti
undir dreifaranum sem var
aftan í vömbíl.
Maðurinn var fluttur á
Sjúkrahús Suðurnesja þar
sem hann var úrskurðaður lát-
inn. Mun hann ekki vera af
Suðumesjum.
Myndlistasýningin Garði
1. og 2. nóvember.
Mig langar að þakka öllum þeim fólmörgu
sem komu í Sœborgu ú sýninguna mína
hjartanlega fyrir komuna.
Fanný Hauksdóttir.
OOOSAMKAUP
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
er sýndu okkur samúð við andlát og
útför móður minnar og systur,
Guðrúnar Kalmansdóttur
Djúpavogi 9, Höfnum
Bragi Thurman og fjölskylda
og Sigríður Kalmansdóttir.
Nýtt útlit og nýjctr áherslur
í Búsáhaldadeild!
Rýmum ÍYrirnýjum vörum í búsáhaldadeild.
30-80% afsláttur af leikföngum, gjaíavöru
og geisladiskum á tilboðspöllum um helgina.
Einstakt tœkifœri til að gera góð kaup.
Fyrstir koma - fyrstir fá!
DAGAR
HEFM
iSamkaup!
Matslákí /dadeild um lielaína
Víkurfréttir
3