Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.11.1997, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 06.11.1997, Blaðsíða 15
Toppleikur í 1. deild kvenna. Áhugaverðasti leikurinn þessa vikuna var leikur Grindvíkinga og Keflvíkinga í kvennaboltanum síðastliðinn laugardag. Grindavíkur fögnuðu sigri í leikslok 43-40. Leikurinn var frábær skemmtun án þess að vera áferðarfallegur. Gríðarleg barátta beggja liða í vöm í bland við illa ígrun- daðar sóknaraðgerðir ollu lágu stigaskori. Sem betur fer neðst skemmtanagildi kör- fuknattleiks ekki af skomðunt stigum held- ur kappi og dugnaði keppenda og í þetta sinn skein keppnisandinn úr hverju andliti. Sigurinn hefði getað fallið báðum liðum í skaut en það varð hlutskipti Keflvíkinga að tapa öðmm leiknum í röð í toppslagnum. StigahæstarGrindvíkinga voru Penní með 14 og Anna Dís 8. Anna María skoraði 19 fyrir Keflvíkinga og Erla Þorsteins 10. Lína leiksins: baráttugleði beggja liða var aðdáu- narverð. DHL-deiIdin Keflvíkingar töpuðu á Sauðarkróki 88-79 á föstudagskvöld. Staðan í hálfleik var 39-35 fyrir heimamenn. Keflvíkingar nutu ekki krafta Birgis Birgis en hann var ffá vegna meiðsla og Falur Harðar varð að hætta keppni í miðjum leik. Staða Keflvíkinga í upphafi móts er önnur en liðið á að venjast og má það ekki við meiðslum eða veikind- um lykilleikmanna ætli það sér að vera í toppslagnum. Stigahæstir að þessu sinni vom Dingle 24, Kristján 15 og Guðjón 14. Lína leiksins: Njarðvíkingar sigmðu Valsmenn að Hlíðarenda 96-89 eftir að hafa verið undir í hálfleik 43-49.1 fjarvem erlends leikmanns tók Kristinn Einarsson mikinn fjörkipp og lék best Njarðvfldnga, enTeitur, Friðrik. Örvar og Páll léku allir vel. Annars em Valsmenn eitt af slakari liðum deildarinnar og kanski betra að vera spar á hrósið gegn botnliðunum. Lína leiksins: Kristinn Einarsson 26 stig, 8 ffáköst, 4 stoðsendingar og 3 stolnir boltar. Renaultbikar- keppni KKÍ Ekki vom Jteir spennandi leikir Suðumesjaliðanna í 32 liða úrslitum bikarkeppninnar (tetta árið. Áhugaverðasti leikurinn var leikur Njarðvíkinga og Keflavík B, Með liði Keflavík B léku m. a. landsliðsþjálfarinn Jón Kr. Gíslason. þjál- fari Hauka Einar Einarsson, þjálfari Keflavík A Sigurður Ingimundarson, Davíd Grisson fyrmm landsliðsmaður, fyrirliði knattspymuliðs Keflvíkinga Gestur Gylfason og margir fleiri heiðursmenn. Njarðvíkingar tefldu fram nýjum erlendum leikmanni Petey Sessoms og var þetta fyrsti leikur hans fyrir liðið. Komst hann ágætle- ga frá leiknum þó eitthvað vantaði á úthaldið. Sigmðu Njarðvíkingar örugglega 108-72. Keflvíkingar léku gegn erfiðasta andstæðingnum. úrvalsdeildarliði Akureyringa, og rótburstuðu þá 125-72. Nýliöinn HalldórKarlsson lék best Keflvíkinga og skoraði 31 stig. Grindvíkingar léku sama leik og Keflvíkingar og burstuðu Stafholtstungumenn 119-63. Helgi Jónas fór fyrir sínum mönnum og skoraði 34 stig. Besta lið landsins í heimsókn í kvöld mætir topplið Hauka í heintsókn til Keflvíkinga. Haukar em á toppi deildar- innar og hafa ófeimnir Iýst því yfir að Jteir séu með besta vamarlið deildarinnar og langbesta vamannann deildarinnar, Sigfús Gizzurarson. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, segir lið sitt hafa þurft að endurskoða margt eftir tapleikinn á Króknum og einbeiting leikmanna sé nú orðin eins og best verður á kosið. Hlakkar í Sigga að mæta toppliðinu, segir tímaset- ninguna ekki getað verið betri, og hvetur stuðningsmenn liðsins til að mæta og að- stoða iiðið við að koma Hafnfirðingum aftur niður á jörðina. Guðjón Skúlason, fyrirliði, sækir á sömu mið og segir enga ástæðu fyrir stuðningsmenn liðsins að óttast einhvem öldudal. stutt sé á toppinn og liðið viti hvað þarl' til og hafi getuna til að koma sér þangað aftur. Sessoms með gegn Grindvíkingum Annað kvöld mætir hitt topplið deildarinnar í heimsókn í Njarðvík. Grindvíkingar hafa ekki enn tapað leik í deildarkeppninni og Jteir Darryl Wilson og Helgi Jónas eru án efa sterkasta bakvarðapar landsins. Þeir verða þó án skyttunnar Unndórs Sigurðssonar sem er meiddur. Njarðvíkingar hafa fengið til liðs við sig nýjan bandarískan leikmann Petey Sessoms. Hann er að sögn kunnugra mikil skytta verður fróðlegt að sjá hvor gerir betur Wilson eða Sessoms. Þetta er leikur, alveg eins og leikur Kefivíkinga og Hauka, sem enginn körfuknattleiksunnandi má missa af. Ekki ólfkt Keflvíkingum myndi Njarðvíkingunt ekki sáma að fá fullt hús áhorfenda nema grindvískir væru. Teitur"langt frá sínu besta" Örlygsson sagði | sína menn vera vel undirbúna því ljóst væri að Wilson og Helgi yrðu erfiðir viðfangs en “Ljónagryljan” yrði ekki gefln baráttulaust. Sessoms kvaðst hlakka til að leika gegn Grindvíkingum og vonaðist til að geta fært stuðningsmönnum Njarðvíkinga sigur á toppliðinu. Hreyfiþroski barna: Hvers vegna íþrótta- skóla fyrir börn? I nútíma þjóðfélagi er framboð „kyrrsetu- efnis“ mun meira en áður var. Með Jtessu á ég við að meira fram- boð er af sjónvarpsefni, mynd- böndum og tölvuleikjum sem ætluð eru fyrir böm. Kyrrsetulíf hefur haft í för með sér að hreyfifærni margra barna er mjög ábótavant og hreyfiþroski þeirra er hægur vegna skorts á krefjandi viðfangsefnum til að reyna sig við. Rannsóknir hafa sýnt að fjöl- breytt hreyfinánt á unga aldri hefur jákvæð áhrif á aðra þroskaþætti barnsins eins og sálar-, félags- og líffræðilegan þroska. Með bættri hreyfifæmi eflist sjálfsöryggi barnsins og það á auðveldara með að aðlag- ast umhverfi sínu. Sá möguleiki að vera meðvitaður um líkama sinn og geta hreyft sig frjálst er stórt skref í þroska bamsins á þeirri leið að verða sjálfstæður einstaklingur. Fjölbreytt hreyfi- nám hefur svo að sjálfsögðu mikilvæga líffræðilega þýðingu fyrir bamið. Það lærir að Jtekkja líkama sinn og hreyfingar hans auk Jtess sem beinin, vöðvamir, hjartað og lungun þroskast og styrkjast vegna áhrifa hreyfing- arinnar. Af Jtessu má sjá að ekki má líta á hreyfiþroskann sem sjálfstæðan feril heldur einn þátt af mörgum í órjúfanlegri heild bamsins og þroska Jtess. Leikurinn er líf bamsins bæði í gamni og alvöru. „Hjá bömum em málin leikin en ekki rædd". Lítið yfir bamahóp í frímínút- um og sjáið hvemig böm leika sér. Hvemig leika böm sem em feitlagin, til baka eða em klunn- ar? Fjölbreytt hreyfinám frá unga aldri gefur fleiri bömum möguleika á að vera tekin inn í hópinn og geta tekið þátt í leiknum. Hreyfifæmi hefur því með beinum hætti áhrif á fé- lagslega viðurkenningu innan hópsins sem er baminu mikil- væg. Áhrifin snerta einnig sjálfsímynd og sálarlíf bamsins þar sem það tekst t.d. á við lítið sjálfstraust, höfnun og stríðni. Nú hefur íþrótta- og ungmenna- félagið Keflavík fylgt í fótspor margra annarra félaga og komið á fót íþróttaskóla fyrir böm á aldrinum þriggja til fimm ára. Markmið skólans er að efla hreyfifæmi bamanna og vinna með þroska Jjeirra og gefa þeim þannig tækifæri á að fást við fjölbreytta hreyfireynslu. Von- andi tekst að gera góða einstak- linga betri. Með þessu vonast íþróttafélagið til að börnin í bæjarfélaginu séu meðvituð um að íþróttir og leikir eru fyrir alla og allir geta verið með. Undirritaður vill fyrir hönd Keflavíkur bjóða 3-5 ára böm- um og foreldrum þeirra að heimsækja skólann í íþróttahúsi Myllubakkaskóla n.k. laugar- dag milli 9 og 11 til að reyna sig og kynnast starfmu af eigin raun. Kristinn Oskarsson íþróttakennari. r Iþróttaskóli barnanna KEFLAVÍK Laugardaginn 8. nóvember fer fram kynning á starfsemi skólans og skráning á næsta námskeið sem hefst 15. nóvember. Skólinn er fyrir öll börn á aldrinum 3ja-5 ára (fædd 92- '94). Opið hús frá 09:15 til 10:45 í íþróttahúsi M yllubakkaskóla. STANG VEIÐIMENN! Uppskeruhátíð verður haldin í KK-salnum við Vesturbraut laugardaginn 15. nóvember. Húsið opnar kl. 19:30. Villibráðarhlaðborð - bikarafhending - happdrætti - hljómsveit - og gaman gaman. Miðasala verður í húsi félagsins mánudaginn 10. og fimmtudaginn 13. nóvember kl. 20-22. Miðaverð kr. 3200.- Sjáumst hress og kát! Skemmtinefndin. Pessirtveirstórlaxar háðu einvígi ísumar. Pessi með skeggið sigraðL Víkurfréttir 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.