Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.11.1997, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 06.11.1997, Blaðsíða 7
Besta sjoppan í bænum fær góðar viðtökun Þrjár aukasýningar Tónlistarskólinn í Keflavík hef- ur undanfama daga sýnt söng- leikinn Bestu sjoppuna í bæn- um eftir Þorstein Eggertsson við frábærar viðtökur og hefur verið húsfýllir á öllunr sýning- um. Því hefur verið ákveðið að efna til þriggja aukasýninga í vik- unni. Sú fyrsta verður fimmtu- dagskvöldið 6. nóventber kl. 20.30 og tvær aukasýningar verða sunnudaginn 9. nóvem- berkl. 17.00 og 20.30. Sýningin er sett upp í tilefni af 40 ára afmæli Tónlistarskóla Keflavíkur og eru öll lögin eftir lagahöfunda af Suðurnesjunt s.s. Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson, Jóhann Helgason, Jóhann G. Jóhannsson, Rúnar Júlíusson og ntarga fleiri. I sýningunni er sagt frá áhöth Kvalarinnar frá Olafsvík sem hefur stuttan stans í Keflavíkur- höfn. Áhafnamteðlimir fara út á lífið og koma við á Bestu sjoppunni í bænum. Þar hitta þeir fyrir alls konar fólk og hlutir fara að gerast. Leikstjóri sýningarinnar er Hulda Ólafsdóttir og hljóm- sveitarstjóri er Karen Sturlaugs- son. Emilía Dröfn er höfundur dansa og Gróa Hreinsdóttir er kórstjóri en útsetningu tónlistar annaðist Þórir Baldursson. Þátt- takendur í sýningunni eru tæp- lega 50 og em allir nemendur í tónlistarskólanum. Þar fyrir utan starfar fjöldi að- stoðarfólks við sýninguna. Miðasala og pantanir fara fram á skrifstofu skólans alla virka daga frá kl. 13-17.00 og í síma 421-1153. Verð aðgöngumiða er kr. 1000 fyrir fullorðna og kr. 700 fyrir börn á grunnskóla- aldri. Ef 10 eða fleiri panta saman fæst einn frímiði fyrir hverja 10. Afmaeliskaffi Sparisjóðsins! í tilefni af 90 ára afmælis Sparisjóðsins í Keflavík er Suðurnesjamönnum boðið upp á afmæliskaffi í afgreiðslum Sparisjóðsins. í afgreiðslunum í Keflavík, Njarðvík og Grindavík verður boðið upp á tónlistaratriði frá kl. 10-16 I KEFLAVIK VíHirCrát.tiv GRAFÍSK HÓNNUN, auglýsingaþjónusta

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.