Víkurfréttir - 06.11.1997, Side 8
Páll Pétursson félagsmálaráðherra um launahækkanir kennara:
Sveitarfélög verða sjálf
að bera kostnaðinn
Páll Pélursson félagsmálaráð-
herra sagði í ávarpi sfnu 20.
aðalfundi SSS sem haldin var
um helgina að sveitarfélögin
yrðu sjálf að bera kostnað
vegna launahækkanna kenn-
ara þar sem samið hafí verið
umfram almennar kjaravið-
ræður í þjóðfélaginu.
Páll sagði það ekki eðlilegt að
sveitarfélögin „rukki“ ríkið
vegna launahækkananna held-
ur verði sveitarfélögin að
standa straum af þeim í gegn-
um útsvarshækkun eða jöfn-
unarsjóð. Jafnframt tók hann
fram að samningur urn flutn-
ing grunnskólana verður end-
urskoðaður árið 2000.
Að sögn Páls eru fjármála-
samskipti ríkis og sveitarfé-
laga viðkvæm en þó sagðist
hann telja að færa beri verk-
efni frá ríki til sveitarfélaga
eins og gert hafði verið með
grunnskólana og til stendur
með málefni fatlaðra. Hann
sagði yfirfærslu grunnskól-
anna hafa tekist vel og hefði
ekkert óvænt borið að fyrir
utan launahækkanir kennara
sem hann sagði að yrðu sveit-
arfélögum þungar í skauti.
Páll ræddi einnig um húsa-
leigubætur en nú liggur fyrir
frumvarp í félagsmálaráðu-
neyti þar sem lög um húsa-
leigubætur hafa verið endur-
skoðuð. Að sögn Páls hafa
húsaleigubæturnar sannað
gildi sitt og munu þær færast
alfarið til sveitarfélaganna
árið 1998. Kom fram í máli
hans að bætumar ná einnig til
leiguíbúða sveitarfélaga.
Nokkur tregða hefur verið hjá
sveitarfélögum við að taka
upp bætumar og að sögn Páls
hefur það orðið til þess að
ungt námsfólk hefur flutt lög-
heimili sitt frá sinni heima-
byggð.
Sveitarfélögin hafa deilt hart á
meðferð skatta á húsaleigu-
bótum og hefur þess verið
krafist að þær verði skatt-
frjálsar. Páll sagði ekki vera
vilja til þess innan fjármála-
ráðuneytis þar sem það er
talið opna kerfið og flækja
það. Hann sagði það hag-
kvæmara að skila innheimtum
skatti aftur til sveitarfélaganna
þar sem mikilvægt væri að
styrkja leigumarkaðinn..
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★ ★
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
NAMSKEIÐ FYRIR
17-2.0 ÁRA ÖKUMENN
í jboði Sjóvá-AImenma trygginga hí.
Námskeiðið verður haldið í Fjölbrautaskóla Suðurnesja,
laugardagirm 8. nóvember kl. 11:00-17:00.
Við gerum stundum glappaskot sem við getum iært af. Hvað umferðina vardar þá tekur
það okkur mörg ár að ná góðri færni sem ökumenn. Meðan vid erum að ná þessari
færni er okkur hættara viö mistökum. Því munu Sjóvá-Almennar tryggingar bjóða
ungum ökumönnum á aldrinum 17-20 ára á dags námskeid um ökutækjatryggingar
og tjónamál í Keflavík.
Á námskeiðinu verða skoðaðir þeir þættir sem hjálpað geta ungum ökumönnum til að
verða enn betri ökumenn. Góð reynsla er af námskeiðum þessum og má geta þess að
þeir sem sótt hafa námskeiðin eru í þrefallt minni hættu að lenda í tjóni.
Með þátttöku á námskeiðinu fá þátttakendur tveggja bónus-
flokka hækkun á bílatryggingu á sínu nafni (allt að 20%
lækkun iðngjalds á ári). Séu þeir ekki með bíl tryggðan, eiga
þeir þessa hækkun inni þegarþeir koma með bíl í tryggingu.
Á stórum fólksbíl nemur upphæðin um 18.000.- kr. á ári eða
um kr. 104.000.- á næstu 9 árum meðan þú ert að ná fullum
bónus. (12.000.- kr. á ári fyrir lítinn bíl).
NÁMSKEIÐIÐ ER FRÍTT - ÖLLUM 17-20 ÁRA
ÖKUMÖNNUM ER BOÐIÐ AÐ KOMAl
SKRÁNJNGHJÁ UMBOÐISJÁVÁ-ALMENNRA
KEFLAVTK í SÍMA 421-3099
SJOVADIPALMENNAR
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra kynnti á aðalfundinum
nýtt ffumvarp sem lagt verður
fyrir núverandi þing um hús-
næðiskerfi sveitarfélaganna.
„Það þarf að sm'ða vankantana
af húsnæðiskerfinu án þess að
það verði sveitarfélögunum of
mikil baggi. Hægt er að lána
kaupverð beint til einstaklinga
þannig að þeir geti fest sér hús-
næði við hæfi á hinum al-
menna markaði og öðlast eign-
artryggingu. Sveitarfélögin
gætu komið að því með því að
ábyrgjast hluta af láninu eða
með beinum fjárstuöningi".
Aðalfundur SSS var á tíðum
ekki ályktunarbær og á tímabili
gekk illa að samþykkja reikn-
inga SSS þar sem aðeins vant-
aði upp á fjölda atkvæðisbærra
fúndargesta. Það tókst þó um
síðir en margir veltu því fyrir
sér í framhaldi hvort ekki þyrfti
að fækka þeim sem þyrftu að
samþykkja mál á fundinum þar
sem hann stæði yfir í tvo daga
og ekki gætu allir séð sér fært
að sitja þá báða. Tala fundar-
gesta er því breytileg og oft er
orðið fátt í salnum þegar álykt-
anir em samþykktar í lok fund-
ar. Enda sagði Drífa Sigfús-
dóttir formaður SSS það hafa
gerst áður að ótrúlegustu mál
væru samþykkt í lok fundar
þegar fáir væru eftir til þess að
andmæla. Drífa lagði jafnframt
til að fúndurinn yrði aðeins
haldinn einn dag í staðin fyrir
tvo eins og verið hefur.
Þórólfur Þórlindsson prófess-
or við félagsvísindadeild Há-
skóla Islands vakti mikla at-
hygli með erindi sínu á aðal-
fúndinum og kveikti liann
marga elda í fundargestum.
Hugmyndir hans þóttu ferskar
og sérstaka athygli vakti sú til-
laga hans að einungis ættu að
vera tvö skyldufög í íslenskum
gmnnskólum; stærðfræði og
Islenska. Vafalaust yrðu margir
nemendur ánægðir með þá þró-
un mála. Mikill áhugi varfyrir
skólamálum á fundinum og
varð fundargestum á orði að
[reir hefðu þurft heilan dag í
umræðumar.
Kjaramál á SSS fundi:
ÓÁNÆGJA MED
STARFMATSKERFI
Kjaramál voru til umræðu á
aðalfundi SSS um helgina og
þá einkum það starfsmatskerfi
sem í noktun er hjá sveitarfé-
lögum.
í ræðu Drífu Sigfúsdóttur for-
manns SSS kom fram að
sníða þurfi sem fyrst ýmsa
agnúa af núverandi kerfí sem
komið hafa í ljós eða ræða við
stéttarfélög á Suðurnesjum
um annað fyrirkomulag.
„Það hefur iðulega tekið lang-
an tíma frá því að viðkomandi
sveitarfélag eða stofnun send-
ir frá sér mál þar til það hefur
fengið fullnaðarafgreiðslu.
þessi biðtími er báðunt aðil-
um til ama og skapar hann
bæði óvissu og óþægindi sem
best er að vera án“, sagði
Drífa.
Eftir að erindi unt starfsmat
hefur farið frá starfsmanni eða
yfirmanni til starfskjaranefnd-
ar er það sent til starfsmats-
nefndar sem metur það og
sendir aftur til starfskjara-
nefndar sem afgreiðir erindið
til viðkomandi stjómar.
„Þá er loks hægt að greiða
viðkontandi þau laun sem
hann á rétt á samkvæmt kerf-
inu. Þetta er seinlegt kerfi og
það er óeðlilegt að geta ekki
sagt nýjum starfsmanni hver
laun hans verða".
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum haldinn í
Reykjanesbæ, 31. október og 1. nóvember 1997 skorar á yfir
völd vegamála að þegar verði ráðist í tvöföldun Reykjanes-
brautar.
Fundurinn telur óþarft að minna á öll þau rök sem fram hafa
komið um nauðsyn þessarar frantkvæmdar.
Jafnframt minnir fundurinn á fyrri ályktanir sambandsins um
vegamál a Suðumesjunt.
8
Víkurfréttir