Víkurfréttir - 13.11.1997, Blaðsíða 3
I
Lukkudagar
ífullum gangi
Vinningaskrá
hangir uppi í
SAMKAUP
áföstudögum.
SAMKAUP
Skoðanakönnun framsókn-
armanna í byrjun nýs árs
Uppstillingamefnd Framsókn-
arfélaganna í Reykjanesbæ
samþykkti á fundi fulltrúaráðs
þann 12. október sl. að láta fara
fram skoðanakönnun meðal að-
almanna og varamanna þeirra
félagsmanna sem nú eiga sæti í
fulltrúaráði flokksins vegna
kosninga til bæjarstjórnar í
Reykjanesbæ næsta vor.
Skoðanakönnunin verður leyni-
leg og fer fram í janúar á næsta
ári.
í framhaldi af því auglýsir upp-
stillingamefnd eftir frambjóð-
endum sem ætla að taka þátt í
könnuninni en framboðum skal
skilað fyrir 1. desember
næstkomandi.
■ Myndavélar mæla hrada á Reykjanesbraut
Lögreglan í Keflavík hefur tekið þátt í hraðaátaki á Reykjanes-
braut sl. viku og jafnframt hafa ný tæki verið notuð sem mæla
hraða ökutækja og taka mynd af þeim um leið.
Að sögn Karls Hermannssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hafa 20
ökumenn verið teknir á Reykjanesbrautinni í vikunni en þó hefur
hraðinn ekki mælst mikill og reynist aðeins vera rétt yftr mörkun-
um. Nýja tækið mældi og myndaði fimm ökumenn en sá sem ók
hraðast mældist á 128 km hraða.
■ Brotist inn í Hólmgarð
Lögreglunni í Keflavík barst tilkynning um innbrot í verslunina
Hólmgarð í Keflavík sl. miðvikudagsmorgun.
Innbrotsþjófamir fóm inn um aðaldymar og inn á skrifstofu verslun-
arinnar þaðan sem þeir tóku með sér peninga. Málið telst enn óupp-
lýst.
Kristján látinn
Kristján Sigurðsson, fyrrverandi yfirlæknir
Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs lést á
Landsspítalanum 9. nóv. sl. en hann hefði
orðið 73 ára 14. nóv. nk.
Kristján var yfirlæknir sjúkrahússins í rúm
tuttugu ár en hann hóf störf árið 1971 í
Keflavík og starfaði til ársins 1992. Allt lfá
starfslokum hans í Keflavík bjó hann ásamt eftirlifandi
eiginkonu sinni, Valgerði Halldórsdóttur í Reykjavík. Þau
eignuðust fimm böm sem öll em uppkomin.
Keflvfldngar og Suðumesjamenn minnast Kristjáns sem
glaðværðs læknis sem f mörg ár var alltaf „á vakt“. BCristján
sótti sín síðustu ár fundi af og til í Lionsklúbbi Keflavíkur, þar
sem hann var félagi, þó hann væri fluttur í höfuðborgina og
hélt þannig tenglsum sínum við Suðumesjamenn sem hann
þjónaði svo vel í tvo áratugi.
Guðlaug Magnús-
dóttir látin
Guðlaug Magnúsdóttir, Jaðri, Höfnum
lést á Landsspítalanum 29. okt. sl. sex-
tíu og tveggja ára gömul.
Guðlaug og eftirlifandi eiginmaður
hennar, Jón Borgarson, áttu saman
fjóra syni og eina fósturdóttur. Þau voru blaðafólkið í
Höfnunum og hafa komið Víkurfréttum til skila í hvert hús
í Höfnum um árabil, einnig á þeim tíma þegar blaðið lá
frammi á hinum ýmsum stöðum á Suðumesjum. Þá fengu
Hafnamenn betri þjónustu en aðrir Suðumesjamenn, fyrir
tilstilli Gullu og Jóns.
Starfsfólk Víkurfrétta vottar fjölskyldu og ættingjum
samúðar vegna fráfalls Guðlaugar.
Tvær nýjar línur frá
GRAHAMWEBB
Mllúnikgjqurð, hrdn og dnjöld
VATNSNESTORGI
SÍMI 421 4848
JÓLAVÖR UMARKAÐ UR!
MIKIÐ ÚRVAL AFJÓLAVÖRUM
Amerískar gæðavörur
áfrábærum veróum!
Víkurfréttir
3