Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.11.1997, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 13.11.1997, Blaðsíða 15
Inn við beinid ’þvtótmúm en vhm eáiáaeiavi Grunnskólakennarar hafa matur. “ nýveriö samW vW sveitarfé- lögin í landinu um yfir þrjá- tíu prósenta launahœkkun og ejlaust hefur mörgum léttt við þau tWindi. Inga Sveina er vonandi sátt viö nýgeröa samninga en hún kennir við Holtaskóla í Keflavík. Inga er borinn og barnfœddur Kejlvíkingur og var hún svo vœn að sýna okkur hvernig liún vœri inn við beinið. Nafn: Inga Sveina Ásmunds- dóttir. Aldur: 27 ára. Fjölskylduhagir: Gift Kristni Jóhannssyni.. Börn: Bergur Edgar 2ja ára. Átthagar: Keflavík. Starf: Grunnskólakennari. Laun: Brúttó laun um síðustu mánaðarmót 57.960. Besti matur: Kínverskur Besti drykkur: Eg drekk óhóflega af diet-Pepsi. Uppáhaldspersóna: Bergur sonur minn. Tónlist: Flest allt sem fellur undir normalkúrfu. Áhugamál: Að hugsa vel um heilsuna. íþróttafélag: ÍBK. Gæludýrið: Því miður ekki neitt. Hvenær vaknar þú á morgnana: 7.00. Morgunmatur: Senós. Heimilisstörf: Þvotturinn er mín „einkaeign" - ekki að ástæðulausu. Pólitíkin: Eg kýs menn og málefni - ekki flokka. Það fvndnasta: Þegar ég fékk hláturskast á 2. bekk í þjóð- leikhúsinu á hádrama- tísku verki. Bókin á náttborðinu: Hér leynist drengur eftir Judy og Sean Barron. Helsti veikleiki: Söfnunar- árátta á skóm. Helsti kostur: Einlægni og heiðarleiki. Besta sumarfríið: Eina sum- arfríið sem ég hef tekið eftir að ég komst til vits og ára var útskriftarferð FS til Ibiza sum- arið 1990. Fallegasti staður á Islandi: Eyjamar á Breiðafirði. Hvað fer mest í taugarnar á þér: Þunnt launaumslag. Hvað ætlar þú að gera við tímann ef til verkfalls kenn- ara kemur: Allt það sem ég hef ekki tíma til að gera í dag. Umferð á Reykjanesbraut Á undanfömum 30 árum hafa 43 látist í 36 umferðarslysum á Reykjanesbraut og margir slasast alvarlega. í umferðaröryggisáætlun rík- isstjómarinnar til ársins 2001 er sérstök áhersla lögð á bar- áttu gegn ólöglegum öku- hraða sem aðferð til þess að fækka alvarlegum umferðar- slysum. I tengslum við áætl- unina hefur verið ákveðið að leggja aukna áherslu á um- ferðareftirlit á Reykjanesbraut á næstu mánuðum. Um er að ræða samstarf Ríkislögreglu- stjórans, samstarfsnefndar lögreglu á Suð-Vesturlandi, Umferðarráðs og Vegagerðar- innar. Meginmarkmiðið er að draga úr ökuhraða á brautinni. Mik- ill hraði veldur alvarlegustu slysunum í umferðinni og flestum banaslysunum. Sérstök áhersla verður lögð á að sinna eftirliti á þeim köfl- um vegarins þar sem flest slys hafa átt sér stað á undanföm- um árum. Ríkislögreglustjórinn leggur ríka áherslu á samræmdar að- gerðir lögreglu til að stemma stigu við hraðakstri. Það ásamt samvinnu við aðrar stofnanir sem vinna að um- ferðaröryggismálum er frama- lag til að draga úr því óásætt- anlega gjaldi sem umferðar- n-; slys hafa kostað landsmenn um mörg undanfarin ár. Lögreglan í Reykjavík, Kópa- vogi, Hafnarfirði og Keflavík leggja til lögreglumenn og ökutæki til að sinna þessu eft- irliti sem unnið verður eftir sérstakri áætlun. Við eftirlitið verður beitt hefð- bundnum aðferðum, en auk þess verður hraðamyndavél, sem lögregla hefur tekið í notkun, nýtt í þessu skyni. Til þess að minna vegfarendur á aukið eftirlit munu lögregla, Umferðarráð og Vegagerðin birta auglýsingar í fjölmiðlum um ökuhraða. Einnig verður fræðsluefni dreift til vegfar- enda. Þá hefur verið ákveðið að endurgera myndefni um Reykjanesbraut, til þess að vekja athygli á þeim hættum sem þar eru fyrir hendi. Lögreglan, Umferðarráð og Vegagerðin óska eftir góðu samstarfi við vegfarendur á Reykjanesbraut og annars staðar á landinu í því skyni að hamla á móti óhóflegum hraða í umferðinni. Ríkislögreglustjórinn, Sam- starfsnefnd lögreglu á Suð- Vesturlandi, Umferðarráð og Vegagerðin. Viðskiptavinir athugið! Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður Kolbrún Björnsdóttir grasaiæknir ekki hjá okkur föstudaginn 14. nóvember eins og áætlað var heldur kemur hún föstudaginn 28. nóvember og verður með ókeypis ráðgjöf fyrir viðskiptavini. Athugið! Ný sending af súrdeigsbrauðum Hólmgarði 2 - Keflavík - Sími 421-4799 t Utför móður okkar og tengðamóður, Kristínar Danivalsdóttur Faxabraut 13 (Hlévangi) Keflavík sem Iést9. nóvembersl. ferfram frá Keflavíkurkirkju, laugardaginn 15. nóvembernk. kl. 14. Hilmar Pétursson Jóhann Pétursson Kristján Pétursson Páll Pétursson Unnur Pétursdóttir Asdís Jónsdóttir Ingibjörg Elíasdóttir Ríkey Lúðvíksdóttir Halla Njarðvik Snorri Þorgeirsson barnabörn og barnabarnabörn. Naglaskólinn auglýsir! Vandað námskeið hefst nú í nóvember. Kennt verður á akríl, gel, og fiberglass neglur. Einnig verður kennt á airbrush tækni og listrænar nagla- skreytingar. Nánari upplýsingar á Snyrtistofu Lindu ísíma 421-4068. Linda Sigurðardóttir, sn yrtifræðingur. Heiðný Stefánsdóttir, Naglatæknir. V íkurfréttir 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.