Víkurfréttir - 13.11.1997, Blaðsíða 7
MIKIL ÁHRIF
Aðgerðin mun hafa mikil
áhrif á líf Halldóm. Eftir þessa
aðgerð þarf hún ekki lengur
að fara í skilun í nýmavél Ifkt
og fyrir aðgerðina og heilsa
hennar er betri. Þegar lengra
líður frá aðgerðinni mun hún
þurfa minna af lyfjum en áður
og minni hætta er á bakteríu-
sýkingum í þvagi sem að sögn
foreldra hennar varð uppruna-
lega til þess að nýra hennar
eyðilagðist. Halldóra getur nú
farið á klósett og losað þvag
eðlilega og jafnframt hefur
mataræði hennar gjörbreyst.
Hún getur nú nánast borðað
hvaða mat sem er og það er
mikill léttir að sögn foreldra
Halldóru og notaði hún tæki-
færið og bragðaði á banda-
ríska hamborgaranum.
Að sögn Sigfúsar og Ingi-
bjargar er Dagbjört mjög sátt
við þá ákvörðun að hafa gefið
Halldóm nýra sitt en hún var
nokkuð máttfarin eftir aðgerð-
ina. Dagbjört starfar á sauma-
stofunni Liljunum í Keflavík
og mun hún taka því rólega
næstu 3 mánuðina.
Halldóra mun ávallt vera á of-
næmisbælandi lyfjum þar sem
sú hætta er fyrir hendi að of-
næmiskerfi líkamans hafni
nýja líffærinu. Þau lyf hafa
það í för með sér að hún er
mjög næm fýrir öllum sýking-
um og þurfa foreldrar hennar
að passa vel upp á hana.
LÆRIR HEIMA
Hún mun því fá heimakennslu
fram að jólum en foreldrar
hennar vonast til þess að hún
geti mætt í skólann eftir ára-
mót. „Hún hefur lítið úthald
en annars líður henni ágæt-
lega. Hún finnur ekki fyrir
aukaverkunum eða vanlíðan
en lyfin fara nokkuð í skap-
gerð hennar", segir Ingibjörg
móðir hennar.
Halldóra mun fara í eftirlit til
Viðars Arnar tvisvar í viku
næstu tvo mánuðina en svo
mun það minnka eftir því sem
frá líður aðgerðinni.
Fylgdi þvf ekki mikill léttir
þegar aðgerðinni var lokið?
.J’að var alveg geysilegur létt-
ir. Þetta var í raun mikið álag
allan tímann. Maður þurfti að
bjarga sér á öðru tungumáli
og þetta var búið að vera mik-
il bið“.
Hvað sagði Halldóra sjálf eftir
aðgerðina?
„Hún sagði að sér liði vel og
var hún að hugsa um að fara
fram úr rúminu“, segir Ingi-
björg. „Hún upplifði mikinn
létti og hún sagði við mig að
[ það hefði komið mjög góð til-
finning yfir sig þegar hún
vaknaði eftir aðgerðina og
heyrði að hún hafði tekist
mjög vel. Það var eins og hún
hefði fengið uppljómun og sú
tilfínning flæddi um hana að
það væri í rauninni að gerast
kraftaverk", sagði Sigfús, fað-
ir Halldóru.
Staðið var fyrir söfnun á Suð-
| urnesjum til þess að styðja
Halldóm og fjölskyldu hennar
vegna aðgerðarinnar og söfn-
uðust um kr. 1.300 þúsund.
Foreldrar hennar vildu koma á
framfæri innilegu þakklæti
sínu fyrir þann stuðning og
hlýhug sem bæjarbúar hafa
sýnt.
STERKIR STRAUMAR
„Við erum sannfærð um að
sterkir straumar frá Islandi
hafi hjálpað okkur þarna úti
þvf það var ekki einleikið
hvað þetta gekk vel. Það er al-
veg einstakt að upplifa svona
samkennd“, segir Sigfús.
Þau segja fólk mikið hafa
spurt um líðan Halldóru á
förnum vegi og óskað henni
góðrar ferðar fyrir aðgerðina.
„Þegar við komum heim eftir
aðgerðina var maður um-
faðmaður og fólk vild ifá að
heyra hvernig hafi gengið.
Þetta hefur verið alveg stór-
kostlegt og fjölskylda okkar
hefur jafnframt staðið við hlið
okkar eins og klettur“.
Dagbjört móðursystir Hall-
dóru eftir aðgerðina. Hún var
mjög sátt við þá ákvörðun
sína að gefa Halldóru annað
nýra sitt.
Pabbi hugar að litlu
stúlkunni sinni eftir að-
gerðina. I/ið höfuðlag
Halldóru má sjá viður-
kenningarskjal sem hún
fékk frá svæfingarhjúkr-
unarfræðingi sem starf-
aði við aðgerðina.
i1
1 iiiH gg a m
Nóvembertilboð!
(ifvegg- og loftfestingum fyrir sjónvörp,
hátalam og myndbandstœki.
,Sfiin.viiitf/ inyndhtnulstteki m/NTSC
afspilun (anieríska kerfid).
Verð trá kr. 26‘.900.-
28" sjónvarpstwki í mikln úrvali.
\erð frá kr. 49.900.-
t
l\intendo 64, örugglega
besta leikjatölva í heimi
í dag, á besta
verdi á landinu,
aðeins kr. 23.500.-
Þar að auki er
10% afsláttur
af öllum leikjum í
Nintendo tölvur.
Ilikið úrval af
þráðlausum síinum.
Þjónustum og seljiim símkerfi,
Jijófa- og brunavamakerfi.
Komið og leitið tilboða og ráðlegginga.
Allar almennar rafeindaviðgerðir.
mm
Baldursgötu 14 ■ Keflavík ■ sími 4215991
Víknrfréttir