Víkurfréttir - 30.04.1997, Blaðsíða 8
LÖgreg|an
oq kallar
Allar björgunarsveitir á Suðurnesjum, slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og
Keflavíkurflugvallar, lögreglan, Rauðakrossfólk og Landhelgisgæzlan tóku þátt í
umfangsmikilli æfingu sem svæðisstjórn björgunarsveita setti upp við
Grindavíkurveg um síðustu helgi. Sviðsett var umferðarslys þar sem olíuflutningabíll
og hópferðabifreið lentu í hörðum árekstri. A fimmta tug manna „slasaðist" í árekstr-
inum. Að æfingunni lokinni var haldinn fundur um hvemig til tókst í nýrri bjötgunar-
stöð Ægis í Garði. Var það niðurstaðan að í heild hafi æfingin tekist vel, þó svo upp
hafi komið nokkrir hnökrar. Það er hins vegar tilgangur æfingar sem þessarar að finna
veika punkta, svo allt megi vera í 100% lagi þegar til alvörunnar kemur.
Hilmar Bragi Bárðarson fylgdist með æfíngunni og tók meðfvlgjandi myundir.
Þegar Ijóst var að nokkrir farþegar
rútunnar voru mjög alvarlega
slasaðir var þyrla Landhelgis-
gæzlunnar köllud til. TF- LÍF flutti
fimm manns á „sjúkrahús" i Gardi.
Lendingastjóri undirbýr komu TF-LIFá slysstað.
Hinir slösudu höfðu verið
farðaðir á videigandi hátt.
Slasaður rútufarþegi búinn undir
þurluflug til sjúkrahúss.
Brosað þrátt
fyrir höfuðáverka.
Það er svo sem
ekkert sældarlíf að
leika sjúkling.
Sérstakt efni var
notad til að stækka
sjáaldur í auga
þessarar stúlku.
Að ofan er komið
með slasaða á
sjúkrahús í Garði.
Slasadui madurjluttui ur
oliubilnuni^sem rutaÚok a
8
Y íkurfréttir